Búnaðarrit - 01.01.1902, Side 112
104
án mikils tilkostnaðar, styðja að því að bæta nautgripakyn-
ið og um leið landbúnaðinn.
Hvanneyri, í janúar 1902
11. Gr'ónfeldt.
11.
í viðbót, við skýrslu herra mjólkurskóiakennara II.
Grönfeldts, skal bér bætt við uokkrum orðum viðvikjandi
mjólkurbúum, sem þegar eru stofnuð, og rekstri þeirra.
Arið 1900 var bið fyrsta mjólkurbú sett á fót; það er
búið á Seli í Hrunamannahreppi i Árnessýslu. Það tók til
starfa 10 júli, og voru félagsinenn að eins 5. Síðastliðið
sumar, var annað bú stofnað i sömu sveit, búið i Birtinga-
holti, 2 í Ölfusinu og 1 i Skagafirðinum. — I haust, er leið,
var formönnum þessara mjólkurbúa sendar fyrirspurnir, við-
víkjaudi rekstri búanua, 'stærð þeirra og sölu smjörsins, og
þeir beðnir um að svara þeim. — Prá þrem búunum hafa
komið svör, og skal hér getið hins helzta, er þau greina.
Um mjólkurbúið á Páfastööum í Skagafirði er fátt að segja
Formaður þess og aðalfrömuður Albert Kristjánsson, sem
þar býr, hefir i bréfi til Búnaðarfélags Islands, dags. 30.
des. f. á., komist þannig að orði: „Tilraun sú, er gjörð var
hór með smjörsamlög, var mjög smá vaxin, sem stafaði af
þvi, að smjörgjörðaráhöldin komu ekki fyr en i ágústmánuði
samlagsmenuirnir sárfáir, og gengu sumir úr sökum veik-
inda“. Enn fremur getur hann þess, að eugiu vit.neskja
hafi þá, er bréfið var skrifað, verið kominn um sölu smjörs-
ins. ■— Búið í Birtingalwlti, sem er rjómabú, starfaði frá 18.
júní til 21. sept. Eólagsmenn voru 14, og höfðu samtals 65
kýr og 600 ær. Búið framleiddi 4734 pd. afsmjöri. Meiri
liluti þess var sendur til Englands og seldur þar. Það var
sent, 25. júli, 26. ágúst og 24. sept., og seldist sem hér
segir: Fyrsta sendingin á 75 au. pd., önnur á 77 au. og
hin þriðja á 81 eyrir pd. Smjörið var vanalega sent til
Reykjavíkur vikulega, og geyint þar í íshúsi unz það var