Búnaðarrit - 01.01.1902, Page 166
158
Áður en eg skil við þennan kafla, vil eg fara nokkrum
orðum uin inarkað fyrir ull og gærur í útlöndum.
Eins og kuunugt er heflr ull vor fallið meira og meira
i verði á seinni árum, og það eru því miður engar líkur til
að hún muni stíga aftur í verði, svo nokkru nemi fyrat
úm sinn. Orsökiu til þessarnr verðlækkunar liggur
í að Meriuosféð (spanska fjárkynið) í Ástralíu og Suð-
ur-Ameriku fjölgar st.öðugt nijög, því fóðrun og hirðing á
sauðíé i þessum lönduin er mjög ódýr. Ullin af Merinos-
fénu er þar að auki mikið betri enn af voru fé, og á seinni
árum hefir vcrið fundið upp að þrýsta heuni samau með
þrýstivélum, svo að flutningurinn til Evrópu verður tiltölu-
lega ódýr, þó að vegurinn sé langur. Eina ráðið fyrir oss
er því að vinna ull vora sjálfir og selja hinar unuu voðir,
er vér ekki þurfum sjálfir að nota, til útlanda. — Annars
vil eg geta þess að mikið af ull vorri á seinui árum hefir
verið selt til New-york.
Markaður fyrir gærur hefir verið og er enu aðallega í
Danmörku; þó er talsvert á seinni árum selt til Bretlands
og Noregs. Um sölu á gærum til útlanda er hið sama að
segja og uin sölu á ull: að liúti ætti sem fyrst að liætta,
og skinuiu að sútast hér, og seljast sútuð, og með þvi að
byrjuu er gjörð í þvi efni á Austfjörðum megum vór von-
andi gjöra ráð fyrir að þessi markaður eins og liann er nú
eigi ekki raikla framtið fyrir sér.
II. Hrossamarkaðurinn.
Aðalmarkaðurinn fyrir hesta vora í útlöndum hefir
verið og er enn á Bretlandi, þó nokkuð haíi verið selt á
seinni áruin til Danmerkur. Drátt fyrir alla anmarkana við
þennan markað, þá hefir þó hestasala vor til útlauda gefið
af sór talsverða peninga. Eftir seinustu skýrsluin (frá 1899)
hafa verið seldir 5696 hestar til útlanda (þar af 8/„ til Bret-
lands), fyrir 306,825 kr. eða að meðaltali rúmlega 54 kr. hver.
Hvað meðalverðið á liestum vorum hefir verið á ýmsurn