Búnaðarrit - 01.01.1902, Page 274
266
þess óskað, að þeir kæmu, ef þess væri kostur, til fundar-
halda við búnaðarfélögin að vetrinum, og að þeir í skýrsl-
um sinum bendi á þá menn, sem sórstaklega skara fram úr
öðrum í sérstökwm greinum landbúnaðarins. Fyrir béraðið
var þess óskað sérstaklega að Sigurður ráðanautur Sigurðs-
son ferðaðist að haustinu til leiðbeininga um niðurhreppa
Mýrasýslu og Guðjón búfræðiskandidat Guðmundsson kæmi
til fundar við kynbótanefnd bóraðsins um eða eftir vetur-
nætur.
Plægingar. Um þær voru miklar umræður og í sam-
bandi við það, hvaða horfur mundu vera með grassáningu.
Talið var liklegt að samkomulag gæti komist á þar í bér-
aði, milli fleiri eða færri búnaðarfélaga, að ráða mann í sam-
einingu til plæginga, og skorað á Bf. ísl. að það leggi fram
verulegan styrk, ef búnaðarfélögin i einu béraði gera sam-
tök um, að ráða mann sumarlangt til að plægja og berfa.
Búnaðarstyrkurinn. í sambandivið umræðurum gadda-
vírsgirðingar var skorað á Bf. ísl. að hlutast til um, að
landsjóðsstyrkurinn verði framvegis veittur fyrir hverskonar
gripheldar girðingar.
Áburðarnýting. Talið mjög áríðandi að Bf. ísl. láti
sér sérstaklega ant um, að koma inn hjá bæudum að fara
sem allra bezt með áburðiun og auka hann.
Skógarleifar. tíkorað á Bf. ísl. að gefa leiðbeiningar
um það, hvernig varðveita megi skógarleifar vorar og taka
til yfirvegunar, hvort ekki megi gera lagaákvæði um það.
Búnaðarritið. Óskað að fá i Búnaðarritinu stutt yfirlit
yfir lög og fjárhag búnaðarfólaganna á landinu.
Sala íslenzkra afurða. Lýst yfir þeirri skoðun að nauð-
synlegt væri að hafa verzlunarerindreka í útlöndum.
Ábúðarlöggjöfin. Óskað milliþinganefndar til að taka
til rækilegrar íhugunar lögin um bygging, ábúð og úttekt
jarða.
Af hálfu stjórnenda landbúnaðarfélagsius var skýrt frá
fyrirkomulagi Ræktunarsjóðsins, garðyrkjukenslunni í Gróðr-
arstöðinni, verkstjórnarstyrkuum og ýmsum ráðstöfunum og