Hlín - 01.01.1954, Page 6
Hvaða gagn hefur Samband norðlenskra
kvenna unnið á þeim fjörutíu árum,
sem það hefur starfað?
(Ofanritaðri spurningu beindi formaður S. N. K., á síðast-
liðnum vetri til formanna hjeraðssambandanna og bað þá að
svara, fer hjer á eftir eitt svarið):
í þriðju grein laga S. N. K. segir svo: „Tilgangur Sam-
bandsins er að efla sarnúð og samvinnu kvenna og styrkja
hverskonar mannúðar- og menningarstarfsemi á fjelags-
svæðinu.“
S. N. K. hefur jafnan haft yfir litlu fje að ráða, svo að
þess er eigi að vænta, að sýnilegt gagn af störfum þess beri
hátt við loft. En það er engum vafa bundið, að S. N. K.
hefur starfað samkvæmt tilgangi sínum og átt upptök og
unnið að mörgu því, er til gagns og menningar horfir. —
Skal nú rifjuð upp starfssaga þess í stuttu máli:
Þegar S. N. K. var stofnað, voru um 20 starfandi kven-
fjelög á sambandssvæðinu. — Nú eru um 70 kvenfjelög
innan vjebanda S. N. K. Hefur meirihluti þeirra risið á
legg fyrir atbeina eða áhrif Sambandsins, og undir for-
ystu þess hafa kvenfjelögin í hverju hjeraði myndað með
sjer hjeraðssamband, (Kvenfjelagasamband Suður-Þing-
eyinga var stofnað 9 árum fyr en S. N. K.) og nú nýlega
hafa kvenfjelög Akureyrarbæjar stofnað sjerstakt sam-
band.
Stjórn S. N. K. hefur jafnan gert sjer far um að lialda
ársfundi Sambandsins til skiftis í li jeraðasamböndunum
og á Akureyri, til að auka kynningu og glæða samúð og
samvinnuhug meðal kvenna á öllu sambandssvæðinu og