Hlín - 01.01.1954, Page 27
Hlín
25
lega er það rjett, að hver maður hafi sinn ákveðna lit,
þessvegna eru menn svo ólíkir, og þegar alt kemur til alls,
erum við geislabrot, samsett af ótal litum og litbrigðum,
sem svo aftur endurspeglast í dagfari okkar og athöfnum.
Þessar systur, sem hjer verður leitast við að minnast,
Þorbjörg Sigurðardóttir Bergmann og Guðlaug Sigurðar-
dóttir, voru báðar sannir fulltrúar sinnar samtíðar:
Tryggar, trúfastar og skylduræknar. — Þær hjeldu þeirri
stefnu til dauðadags að gera frekar kröfur til sjálfra sín
en annara. — Þeim var það báðum sameiginlegt að vilja
ljetta byrðar þeirra, sem erfið lífskjör áttu, og skildu
manna best, hvernig siíkt starf þarf að vinna. Það var
ekki gert til þess að stækka sjálfan sig í augum annara,
lieldur var þeirra mesta ánægja að vinna í kyrþey.
Guðlaug Sigurðardóttir var fædd 13. marz 1888 í Páls-
bæ á Seltjarnarnesi. Fluttist hún með foreldrum sínum að
Seli við Reykjavík. — Hún lærði karlmannafatasaum á
unga aldri. — Allar voru þessar systur prýðisvel verki
farnar.
Guðlaug giftist eftirlifandi manni sínum, Sigurjóni
Ólafssyni, skipstjóra, 1908. Bjuggu þau hjón fyrstu bú-
Þorbjörg Sigurðardóttir Bergmann.
Guðlaug Sigurðardóttir.