Hlín - 01.01.1954, Síða 93
Hlin
91
fært sjer — auk fiskmetis, mjólkur og kjöts — nýja jurta-
fæðu. — Grænmetið, beint úr garðinum, — þrungið lífgef-
andi efnum, er jurtirnar drekka í sig frá geislum sólar og
frjóefnum moldar. — Engin fæða jafnast á við ávexti og
grænmeti sem fjör- og steinefnagjafi.
En jeg held, að enn þann dag, sjeu alt of mörg heimili
á okkar ágæta landi, sem ekki notfæra sjer möguleikana,
sem fyrir hendi eru til öflunar og notkunar grænmetis. —
Koma þar til ýmsar orsakir. — Sumir álíta það sennilega
of tímafrekt að rækta sitt grænmeti sjálfur, en til sveita
þarf það að vera heimaræktað, ef liægt á að vera að bera
það daglega á borð. — Til eru einnig þeir, sem halda
dauðahaldi í gamla slagorðið, að þeir sjeu ekki „grasbít-
ir“, og reyna ekki til að bragða matjurtir, þó á borð sjeu
bornar. Þeir telja það sjálfsagt eitthvað sjer samboðnara
að vera „dýrbítir'1, svo maður noti það orð, sem fyrst kem-
ur í hugann, þegar maður heyrir hitt. — En sleppum því
gaspri. — Enn aðrir rækta, en gera það á þann hátt, að
uppskeran verður ljeleg — og gefast þá upp.
Það er mín reynsla, að það sje í lófa lagið, hafi maður
mold á annað borð og sýni ofurlitla alúð, að rækta með
góðum árangri nægar matjurtir fyrir eigið heimili. — En
þess þarf að gæta að gera það senr gera þarf á rjettum árs-
tíma. — Að því ber að stefna, að á hverju bygðu bóli
landsins, senr mold lrefur til yfirráða, sje ræktað lrelst senr
f jölbreyttast grænnreti, og að það sje nratreitt og notað. —
í sveitum landsins er nrjög auðvelt að rækta yfrið nóg til
heinrilisþarfa, ef vilji er fyrir hendi. — Þó er staðreyndin
sú, að sveitirnar, þar sem landrýmið er nóg og aðstaðan
góð, eru yi irleitt á eftir kaupstöðunum í því að kunna að
nota og nreta ágæti nratjurtanna. — Eólkið kann síður át-
ið, og er sumt svo langt á eftir sínum tíma, að það vill
ekki reyna að læra það. — Þetta er þó að sjálfsögðu nrjög
misjafnt, og æ fleiri og fleiri skilja lrvílík búdrýgindi og
hollusta er að góðunr matjurtagarði með fjölbreyttum
átgróðri. — Og líklegt þykir nrér, að sá tími komi von