Hlín - 01.01.1954, Blaðsíða 105
Hlin
103
anda, og gert út um málin með sanngimi. — í námuhjer-
uðum, eins og Ruhr og Wales, hefur siðferðisvakningin
kornið í veg fyrir verkföll. — Og austur á Indlandi eru
einmitt nú að gerast eftirtektarverðir hlutir. — Siðferðis-
hreyfingin gerir rnikið að því að stefna saman fulltrúum
þjóða og flokka, alt frá austri til vesturs, til þess að menn
geti ræðst við og kynst, óbundnir af þeim viðjum, er á
þeim hvíla við samningaborðin eða á þingfundum. —
Þetta hefur víða haft mikil áhrif.
A vorri öld togast tvær stefnur á í heiminum. — Annars
vegar er einræðið, sem birtist annaðhvort í fasisma eða
kommúnisma. — Hins vegar er lýðræði og frjáls hugsun.
— MRA lætur sig ekki skifta stjórnmálin senr slík, en vill
sigra einræðisandann með því að breyta mönnunum, sem
með málin fara. Skoskur iðjuhöldur hefur nýlega sagt í
blaðagrein að það, sem bæði kommúnismi og fasismi
hefði sameiginlegt, væri sú skoðun, að eigingirni manns-
ins væri driffjöður allra framkvæmda. — En MRA hefði
reynslu fyrir því, að hægt sje að breyta nrannlegu eðli, og
það geti stjórnast af óeigingjörnum lrvötunr, svo senr
lönguninni til að nræta þörfum venjulegs fólks til fæðis,
klæða, Irúsnæðis o. s. frv. ,,Eitt af því, sem Siðferðisleg
endurreisn lrefur að markmiði, er að gera vinnu og auð
alls lreinrsins öllum tiltækan, en ekki sjereign neins ein-
staklings, stjettar eða kynflokks."
Án þess að gera of nrikið úr áhrifunr siðferðislrreyfing-
arinnar, hygg jeg það ekki of sagt, að hún hafi látið eftir
sig þýðingarmikil spor í viðskiftalífi nrargra landa.
Eins og gefur að skilja, má eitt og annað finna að MRA-
lrreyfingunni, en það er ekki tækifæri til jress í lítilli
grein að skýra frá þeim athugasemdum, sem fram hafa
komið. — „Þetta er hjálpræðisher fína fólksins", segja
sumir. En raunar er það ekki rjett, því að hreyfingin
virðist ná til állra, og skilur ekki „fína“ fólkið eftir, eins
og sunrar aðrar trúarhreyfingar hafa tilhneigingu til. —
„Hún er of yfirborðsleg", segja sunrir, og finst nóg um