Hlín - 01.01.1954, Qupperneq 21
Hlin
19
En af hverju er jeg að bregða upp þessari ófullkomnu
mynd af þessu merka heimili? Það er af því, að á þessu
heimili ólst Hólmfríður upp. — Hún með sína velgerðu,
stórbrotnu lund, lifði æsku sína og þroskaár í hinni sögu-
ríku Viðey með góðu, mentuðu og göfugu fólki. — Hún
hlaut öðrum fremur að sjá nauðsynina á sjermentun
kvenna í heimilisstörfum, jafnt þeirn, sem daglega þarf
að endurtaka, svo sem matreiðslu og ræstingu og hinum,
þar sem þörf er á varðveislu, kaupum á matvælum, fatn-
aði og öllu sem heyrir heimilinu til.
Hólmfríður fann það brátt, að hún gat ekki komið því í
framkvæmd að kenna alt, sem húsmæðraskólar þurfa að
fræða nemendur sína um. Til þess hafði skólinn engin
skilyrði. En hann bætti úr brýnustu þörf, og Hólmfríður
vann þjóðinni stórt og mikið nytsemdarstarf. — Hólm-
fríðiir hefði sómt sjer vel sem foringi og forstöðukona
fyrir skóla, sem starfað hefði í sveit og átt húsakynni og
aðstöðu, líkt og 10 mánaða húsmæðraskólarnir í Noregi.
Hólmfríður ráðstafaði eigum sínurn 1942. Þá gaf hún
Húsmæðraskóla Reykjavíkur ýms áhöld og borðbúnað. —
En löngun hennar var, að komið yrði á fót fleiri hús-
mæðraskólum í Reykjavík, og til þess gaf hún Húsmæðra-
skólanum í Reykjavík lniseign sína, Þingholtsstræti 28 í
Reykjavík.
Hólmfríður ljest að heimili sínu 14. apríl 1945 á 92.
aldursári.
Foreldrar hennar voru prófastshjónin, síra Gísli Jó-
hannesson frá Hofsstaðaseli í Skagafirði og kona hans,
Guðlaug Eiríksdóttir Sverrisens sýslumanns í Kollabæ. —
Hólmfríður var fædd á Reynivöllum í Kjós, og var elst
sinna systkina. — Síra Gísli var prófastur Kjalarnesþings.
Hann dó ungur.
Jeg hef dregið hjer upp ófullkomna mynd af starfi og
lífi Hólmfríðar Gísladóttur. Við konurnar, og þjóðin öll,
stöndunt í þakkarskuld við hana eins og svo marga, sem
liafa rutt brautina.
8»