Hlín - 01.01.1954, Blaðsíða 47
Hlín
45
þeim í 9 ár, eða þar til hún giftist föður mínum, Guð-
mundi Jónassyni í Ási í Vatnsdal. Þau bjuggu saman 37
ár og eignuðust 3 börn, tvö dóu kornung, jeg lifði ein af
þeim. — Faðir minn andaðist 1904.
Þegar móðir mín tók við ráðsmensku í Haukagili, þótti
benni mikil vöntun á þrifnaði og allri umgengni, sem
bún fór svo smátt og smátt að færa til betri vegar, bæði í
matargerð og allri ræstun á beimilinu. — Nágrannakon-
urnar dáðust að öllum þrifnaði, sem þeim fanst vera kom-
inn á heimilið, síðan móðir mín tók við innanbæjarráð-
um. Hún þvoði og skúraði alla baðstofuna á bverjum
laugardegi, sem þá hafði ekki verið siður, en ef móðir
mín byrjaði seint á þvottinum, þá sagði fóstra hennar:
„Hananú, er nú búinn allur þrifnaðurinn.“ — Þegar hún
fór að venjast hreinlæti, þá sá bún bvað það var mikið
skemtilegra og hollara fyrir líf og sál, því bún var gáfu-
kona og góðhjörtuð.
Að Ási fóru foreldrar mínir 1879. Tengdaforeldramir
tóku vel á móti þeim og gott samlyndi var á milli þeirra,
en amma okkar, Sigurlaug Jónsdóttir frá Kornsá, dó þá á
þorranum 1880, og móðir mín vakti yfir henni á nóttunni
þær 3 vikur, sem hún lá að andláti sínu. — Svo tóku for-
eldrar mínir við bústörfum vorið eftir, þá var búinu skift,
og afi okkar, Jónas Guðmundsson, hætti þá að búa, og var
svo hjá okkur þangað til hann ljest 1904 á níræðasta ári.
Sigurlaug Guðmundsdótir frá Ási í Vatnsdal.*
* Ás í Vatnsdal var ábúðar- og eignarjörð forfeðra okkar Sig-
urlaugar. — H. B.