Hlín - 01.01.1954, Page 161
Hlín
159
boðskap úr blikandi stjömum,
sem báru henni ljós yfir hel.
Og ennþá í sál minni ómar,
er undrast jeg hnattanna fans:
„Hún Imba átti glóandi gimstein
úr gullnámu sannleikans.11
EYÐIBÓT.
Jeg læt hjer með þulu, er mjer datt í hug, í sambandi við þá
sögu, að fyrir nokkru síðan hafi hjón á heiðarkoti komið upp
10 eða 20 börnum og átt 10 ær og eina kú.
Keli var karlinn nefndur,
en kerling hans hjet Bót.
Hann vann úti alla daga,
hún inni við sitt dót.
Börnin voru mörg og mögur,
en mögnuðust, komust vel á fót.
Sextán munnar sagt er þurfi seigling mat.
Er það ekki afrek mest hvað Keli gat?
Inn til heiða oft er strangt að eiga bú,
ekki síst með ærnar tíu og eina kú.
Svona lifði samt hann Keli sómakarl.
Vildi nokkur vera nú í sporum hans?
Koma þó til vits og ára fjórtán manns.
Nú er orðið autt og tómt í Eyðibót,
oftar hleypur enginn þar með lítinn fót.
Sagt er mjer að sagan verði seinna skráð.
Svo er kvatt með drottins náð. •
G. E.
Leiðrjetting við 10. vísuna í kvæðinu „Öfugmælavísur" í
„Hlín“ 34. árg., frá Þóreyju Jónsdóttur, Kleifarstöðum í Gufu-
dalssveit:
„Fljúgandi jeg sauðinn sá,
Saltarann hjá tröllum.
Hesta sigla hafi á.
Hoppa skip á fjöllum.“