Hlín - 01.01.1954, Síða 77
Hlin
75
Hjúkrunarkonur og hjálparstúlkur á
Akranesi.
í nýútkomnum Læknaskýrslum eru gefnar upplýsingar
um heilbrigðismálin í landinu. Er þess getið þar, að lítið
sem ekkert sje um hjálparstúlkur eða hjúkrunarkonur ut-
an sjúkrahúsanna í mannmörgum bæjum og þorpum, og
sjeu það hin mestu vandræði, svo allir verði að fara á
sjúkrahús, þó um minni aðgerðir sje að ræða.
Það er gaman að athuga það í þessu sambandi, að fyrir
nærfelt 50 árum var framkvæmd einföld og heilbrigð
aðferð í þessu efni á Akureyri. — Hjúkrunarfjleagið
,,H 1 íf“ hafði um 25 ára skeið hjúkrunarkonu, stundum
tvær, stundum einnig vökukonu og hjálparstúlku í sinni
þjónustu, sem aðstoðuðu á heimilununr, bæði vegna sjúk-
dóma og ellilasleika. — Mæltist starfið mjög vel fyrir. —
Önnur bæjarfjelög og mörg sveitafjelög tóku svipaóa
starfsemi upp nreð góðunr árangri.
Einn af þeinr bæjum, sem rjeði til sín hjúkrunarkonu
á þessunr árrurr, var Akranes, og hefur starfsemin aldrei
fallið niður þar í bæ og hefur orðið að mjög góðu gagni.
Leyfi jeg mjer að birta lrjer kafla úr brjefi frá mikils-
metnum borgara Akraness unr þessi efni:
„Það nrun lrafa verið árið 1926, sem stofnað var „Hjúkr-
unarfjelag Akurnesinga, fyrir aðalforgöngu síra Þorsteins
Briem, senr þá var lrjer sóknarprestur. — Þá var hjer eng-
inn spítali, og því oft erfitt á heimilum, er veikindi bar
að höndunr. — Þá var hjer aðeins einn læknir og ein ljós-
nróðir, senr auðvitað lröfðu nógu öðru að sinna, en að fást
við hjúkrun. — Þá hafði hjer verið starfandi Sjúkrasanrlag
frá 1918. — Var jeg þar lengi formaður, og þótti okkur
illt að geta ekki eittlrvað orðið þarna að liði, eins og þörf-
in var orðin rík í þessurn efnunr. — Til þess að gera þSPta