Hlín - 01.01.1954, Page 50
48
Hlin
, Jeg vil vitja þín æska um veglausan mar
eins og vinar á horfinni strönd,
og jeg man það var vor, er jeg mætti þjer þar,
það var morgun um himin og lönd“.
Og á öðrum stað er til:
„Á sumarmorgni æskunnar sól í heiði skein,
silfurskær var lindin og rós á hvetTÍ grein,
unaðsraddir söngfugla óma heyrði jeg blítt,
og alt mjer sýndist vera svo dýrðlegt og blítt“.
Já, það var einmitt á ein-
urn slíkum morgni, sem
mín kæra æskuvina fædd-
ist. — Það var 10. júní 1907.
Hún hjet Sigurlína Guðný,
og var dóttir hjónanna Sig-
urjóns Sigtryggssonar og
Hólmfríðar Friðfinnsdótt-
ur, sem þá bjuggu í Stóru-
brekku í Fljótum. — Mitt
heimili var í Minnibrekku,
sem er næsti bær við, og að-
eins örstutt milli bæja, því
túnin liggja saman. Hólm-
fríður var ljósmóðir í
hreppnum nær 20 ár og því
oft að heiman. Það varð því fljótt mitt hlutskifti að verða
barnfóstra og síðar leiksystir Sigurlínu, en sjálf var jeg
átta ára, er hún fæddist.
Eftir að Sigurlína fæddist bjuggu foreldrar hennar 5
ár í Stórubrekku, og mátti með sanni segja að við uxum
eins og „vorblóm á vallarbala grænum í vörmu sólarljósi
og lireina fjallablænum". — Vorið 1912 fluttist vinkona
mín með foreldrum sínum að Skeiði, sem er ekki mjög
larigt frá Minnibrekku. Þar var hún í 9 ár, — Öll þau ár
Sigurlina Guðný Sigurjánsdóttir.