Hlín - 01.01.1954, Blaðsíða 78
76
Hlin
mögulegra, með því að fleiri aðilar kæmu til, (án þess að
þetta yrði þó „ríkis- eða bæjarrekstur"), þótti okkur því
hið mesta þjóðráð að mynda um þetta almenn samtök, til
þess að ljetta á Samlaginu, því þá stóð mikill fjöldi utan
við það, meðan það var enn ekki skyldukvöð. — Báðir
þessir aðilar stóðu því að hjúkrunarkonunni og greiddu
henni kaupið að hálfu hvor. — Löngu seinna færðist svo
þessi helmingagreiðsla yfir á bæinn, enda urðu síðar
margvíslegar breytingar á Almannatryggingunum, og
Hjúkrunarfjelagið hvarf í skuggann.
Lengst gegndi þessu starfi hjer ágæt stúlka, Herdís
Jónsdóttir að nafni. — Næst henni kom, — og var nokkuð
lengi, — Lovísa Lúðvígsdóttir, frá Seyðisfirði, og eitthvað
í forföllum hennar og eftir að hún fór, Elín Einarsdóttir.
En hinn 1. jan. 1947 er svo ráðin hingað Jóna Guð-
mundsdóttir, hjúkrunarkona, og starfar hún hjer enn. —
Bærinn og Sjúkrasamlagið greiða henni kaupið að hálfu
hvor aðili. — Hún hjúkrar í bænum eftir þörfum á heim-
ilunum, að ráði læknanna, þar sem þörfin er mest.
Áður en sjúkrahúsið tók til starfa, var hjer auðvitað
ákaflega mikið að gera á þessum vettvangi, en síðan það
byrjaði, er hjúkrunarkonan ekki að staðaldri á heimilun-
um, því þá fara þeir sjúklingar, sem þess þurfa, beint á
sjúkrahúsið, — en hún annast skólahjúkrun og ljóslækn-
ingar þar, starfar einnig á Elliheimilinu eftir þörfum, auk
ýmiskonar eftirlits og hjúkrunaraðstoðar á heimilunum
hjá þeim sjúklingum, sem ekki liggja á sjúkrahúsi. — En
til viðbótar þessu er hún svo heilbrigðisfulltrúi (innan-
húss), og hefur þannig eftirlit með allri umgengni í versl-
unum, brauðgerðarhúsum o. þ. u. 1.
Eins og þú sjer af þessu hefur hjúkrunar- og hjálpar-
stúlkustarfið hjer á Akranesi aldrei fallið niður. — Það
hefur verið unnið óslitið í þessi 28 ár með blessunarrík-
um árangri."
Olafur B. Björnsson.