Hlín - 01.01.1954, Blaðsíða 96
94
Hlín
hlú þar að, þó stundirnar sjeu ekki altaf langar, sem hún
í hvert sinn má missa til þess. — Konan ætti því sjálf að
velja garði heimilisins stað.
Annað atriði, sem á ríður að í lagi sje, er að garðurinn
sje vel girtur. — Engar skepnur mega komast þangað inn,
þar með talin hænsnin. — Er þá t. d. vírnet ágætt girðing-
arefni. — Þegar þetta tvent er komið í lag, er hægt að fara
að undirbúa jarðveginn, — bera vel í og stinga upp. Hús-
dýraáburður er langbestur. — Girðingu, viðhald hennar
og árlegan undirbúning moldarinnar fyrir útplöntun og
sáningu, fer best á að bóndinn taki að sjer að leysa af
bendi.
Seinnipartinn í mars þarf að fara að hugsa fyrir að ala
upp plöntur í garðinn. — Jeg hef gert það á þann hátt, að
í kassa, ca. 40—50 cm. langan, 25—35 cm. breiðan og ca.
10—12 cm. djúpan, hef jeg útbúið sáðbeðið. — í botninn
á kassanum er látið dálítið lag af hrossataði og góð gróð-
urmold þar ofan á. — Lítið borð er haft á kassanum. — í
kassann er síðan sáð í raðir, alljjjett, höfuðkáli, toppkáli,
blómkáli, rauðkáli, og ef til vill grænkáli til snemmra
nota. — Kassinn er hafður í glugga innanhúss. — A fám
dögum spírar fræið og í lok apríl eru plönturnar orðnar
fallegar og fyrirferðarmiklar í sáðkassanum. — Úr því þarf
að fara að venja þær við útiloftið, — herða þær, — fyrst
stund og stund úr degi, þegar gott er veður, en smálengja
útivistina, og seinustu sólarhringana, áður en út er plant-
að, er plöntukassinn hafður alveg úti, ef veður frekast
leyfir. — Að sjálfsögðu þarf að sjá vel um það, að nægi-
lega sje vökvað í kassanum, bæði meðan hann er inni og
úti. — Úr slíkum kössum hef jeg ekki ,,priklað“, en plant-
að beint út í beðin, j/enjulega upp úr 20. maí og rótar-
vökvað vel, þegar plantað er út. — Hefur mjer gefist þetta
ágætlega, þrátt fyrir það, þó oft hafi í hinum köldu vorurn
nú undanfarin ár, leikið naprir næðingar um plönturnar
nýútplantaðar. — Þær hafa náð sjer fljótt og vel og gert
sitt tilætlaða gagn. — Þannig hefur mjer reynst fyrirhafn-