Hlín - 01.01.1954, Blaðsíða 19
Hlín
17
fylgd með Friðriki konungi VIII, heimsótti hann þá
Hólmfríði og færði henni gjafir.
Eftir tveggja og hálfs árs veru í Danmörku, hvarf Hólm-
fríður heirn með gott veganesti og tók við lífsstarfi sínu,
sem nú var fastákveðið. — Hún tók við forystu á hús-
stjórnarskóla frú Elínar Briem. Hafði hann fengið hús-
næði í hinu nýja húsi Iðnaðarmannafjelagsins, ,,Iðnó“, á
efri hæð, en niðri var leiksvið og áhorfendasalur, sem
einnig var notaður fyrir fundahöld og skemtisamkomur.
Frú Elín hafði ekki sjeð sjer fært að byggja hús fyrir
skólann, en staðsetti hann í hinu nýja húsi iðnaðarmanna,
„Iðnó“, við Tjörnina. — Búnaðarfjelag íslands hafði feng-
ið byggingarlóð frú Elínar, gegn því að styrkja skólann
fjárhagslega. — Skólinn átti að starfa í 3ja mánaða náms-
skeiðum með 12 nemendum. — Aðalkenslan var mat-
reiðsla og hússtörf, og var það hlutverk Hólmfríðar að
annast þá kenslu. — Auk þess voru haldnir fyrirlestrar í
heilsufræði, garðrækt og heimilishjúkrun.
Frú Elín var stofnandi og aðalhvatamaður að stofnun
þessa skóla, og á hún miklar þakkir skilið fyrir það. — En
ekki er hægt að dylja það, að skólinn var stofnaður í fá-
tækt af sterkum og góðviljuðum liugsiónaríkum konum.
— Hann var fátækur, er hann hóf starf sitt, og það urðu
ekki mörg ár, sem Búnaðarf jelagið sá sjer fært að styrkja
liann. — Hólmfríður eignaðist skólann eftir nokkur ár og
fleytti honum áfram á matsölu í stórum stíl. — Árið 1902
varð Hólmfríður fyrir því láni, að til hennar rjeðist ment-
aður kennari í hússtjórnarfræðum, Ingunn Bergmann.
Var hún Hólmfríðar hægri hönd æ síðan.
Það eru mörg lmndruð stúlkur, sem hafa notið kenslu
í skóla Hólmfríðar, „Hússtjórn". — Bætti skólinn mikið
úr þeirri miklu þörf, sem var fyrir slíkan skóla. — Þegar
„Iðnó“ var seld, varð hann að flytjast þaðan, en ekki vildi
Hólmfríður hætta að starfa, þó hún væri orðin roskin
kona. — Hún keypti stórhýsið Þingholtsstræti 28, og hjelt
3