Hlín - 01.01.1954, Blaðsíða 59
Hlin
57
arans“, en i'orstöðukonan stjórnaði og leit eftir vinnu-
brögðum, og rnikil var sú sláturgerð, og þakka jeg þeim
góða haustmat, hvað við þrifumst þann vetur. Þrátt fyrir
mjólkurskort, en sætt te og slátur á málurn, reyndist okk-
ur holl fæða. — Forstöðukonan fjekk því ráðið, að þetta
haust voru nokkrir sauðir látnir ganga í Eyjarey, og þeirn
svo slátrað smásaman — fengum við þá einu sinni í viku
nýtt slátur í miðdegismat og slátursúpu með rófurn. — En
annars mun matseðillinn hafa verið þessi þann vetur: Á
sunnudögum steik og kartöflur og sæt súpa. — Á mánu-
dögum saltfiskur, kartöflur og grjónasúpa. — Á þriðju-
dögum slátur og vellingur. — Á miðvikudögum saltkjöts-
súpa með rófum. — Á fimtudögum saltfiskur, kartöflur og
grjónasúpa. — Á föstudögum baunir. — Á laugardögum
slátur og vellingur, eða þá grjónasúpa ef mjólk fjekst ekki.
— Um rniðjan daginn fengum við molakaffi. — Á morgn-
ana fengum við þennan vetur.sætt te og hálfa rúg-sikti-
mjölsköku steikta í tólg, sem gerð hafði verið daginn áð-
ur. — Öll matreiðsla fór fram eftir „Kvennafræðaranum".
Stúlkur komu í skólastofuna kk 8 og byrjaði fyrsti tínri
þá, venjulega einhver yfirheyrsla t. d. í landafræði í 1.
deild. — Heilsufræði í 2. deild og uppeldisfræði í 3. deild.
— Þar næst var skriftarkensla eða ritæfingar eftir upp-
lestri. — Svo kom matarhlje í hálfa klukkustund. — Þar
næst byrjaði liandavinnukensla, saumur á karlmanna- og
kvenfatnaði ýmiskonar. — Margar af stúlkunum komu
með saumavjelar, og var það mikill flýtisauki, og nauðsyn-
legt fyrir þær stúlkur, sem mikið stunduðu fatasaum. —
Handavinnutími var til kl. 3. — Þá var matarhlje. Eftir
miðdegisverð komu aukatímar, svo sem enska, orgelspil
og fleira.
Á laugardagskvöldin máttum við leika okkur í borð-
stofunni. — Þær stúlkur, sem höfðu alist upp í kauptún-
um, eða þar sem dans var iðkaður, kendu hinum, og líru-
kassa höfðurn við með danslögum. — Og svo fórum við í