Fréttablaðið - 01.07.2011, Page 17

Fréttablaðið - 01.07.2011, Page 17
FÖSTUDAGUR 1. júlí 2011 reykjavik.is FEGURRI MIÐBORG OPIN HÚS Í AUSTURSTRÆTI 22 OG LÆKJARGÖTU 2 Á milli kl. 15 – 18 í dag – Eflum miðborgina saman! Reykjavíkurborg hefur lokið framkvæmdum við endurbyggingu húsanna við Austurstræti 22 og Lækjargötu 2. Margvísleg starfsemi mun fara fram í þessum glæsilegu húsum sem setja mikinn svip á miðborgina og hafa rekstraraðilar þegar hafið framsækna starfsemi í húsunum. Af þessu tilefni og vegna opnunar göngugötunnar í Austurstræti er almenningi boðið að skoða húsin á milli kl. 15 – 18 í dag, föstudaginn 1. júlí. Göngugatan á Laugavegi, frá Vatnsstíg að Skólavörðustíg, verður einnig opnuð í dag. Kolbeinn Proppé, blaðamaður á Fréttablaðinu, veltir upp mik- ilvægri spurningu í framhaldi af grein minni í hér blaðinu um veg- tolla. Þar lýsi ég því hvernig ég hafði fengið í fangið hugmynd- ir um að ráðist yrði í kostnaðar- samar flýtiframkvæmdir í vega- málum og yrðu þær fjármagnaðar með vegtollum á viðkomandi leið- um. Aldrei hef ég verið áhugasam- ur um þessa aðferðafræði en málið engu að síður þess eðlis – verið að selja aðgang að vegum, ekki spít- ölum – að ég kvaðst reiðubúinn að hafa um það forgöngu að því til- skyldu að um þetta yrði samstaða og þeir sem ættu að borga brús- ann væru sáttir. Svo reyndist ekki vera og lýsti ég því þá yfir að við yrðum að hlusta á rödd þjóðar- innar. Þá spyr Kolbeinn: „Ef rödd þjóðarinnar á að ráða í þessu máli, gildir það þá ekki um önnur? Mun Ögmundur framvegis fylgja meiri- hluta í umdeildum málum svo sem um aðild að Nató og fleiri hitamál? Mun sannfæringin víkja fyrir skoðanakönnunum?“ Svar mitt við því hvort meiri- hlutavilji þjóðarinnar eigi að ráða er tvímælalaust játandi. Ef meiri- hlutinn vill vera í Nató þá verðum við þar. Ef meirihlutinn vill ganga þaðan út þá gerum við það. Það breytir því ekki að ég er og verð andstæðingur aðildar Íslands að Nató og hreyfir engin skoðana- könnun eða atkvæðagreiðsla þeirri sannfæringu minni. Það gildir um öll grundvallarmál. Þar vil ég vera trúr eigin sannfæringu hvað sem líður vilja annarra og berjast fyrir henni af alefli. Ef þeir sem treyst er fyrir framkvæmdarvaldinu ganga hins vegar þvert á almanna- viljann í grundvallarmálum og þröngva minnihlutasjónarmiðum upp á samfélagið, fyrirgera þeir þar með pólitískum tilverurétti sínum. Að sjálfsögðu ætti það við um mig sem aðra ráðherra. Þann- ig á lýðræðið að virka. Það hefur einmitt verið okkar ógæfa í lang- an tíma að virða ekki lýðræðið sem skyldi. Þegar samtök atvinnurekenda ætlast nú til þess af mér, sem handhafa framkvæmdavalds, að ráðast í umdeilda tollheimtu sem mikil andstaða hefur risið gegn þá fer ég að sjálfsögðu að almanna- viljanum fremur en vilja gæslu- manna þröngra hagsmuna sem því miður hafa látið í veðri vaka að rándýrar framkvæmdir á kostnað skattborgara og neytenda skapi fleiri störf og meiri arðsemi en reyndin yrði. En það má ágætur blaðamað- ur Fréttablaðsins vita að í því er engin mótsögn fólgin að vera trúr sannfæringu sinni annars vegar og virða lýðræðislegan vilja hins vegar. Svar mitt við því hvort meiri- hlutavilji þjóðarinnar eigi að ráða er tvímælalaust játandi. Ef meirihlut- inn vill vera í Nató þá verðum við þar. Ef meiri- hlutinn vill ganga þaðan út þá gerum við það. Um lýð- ræði og sannfær- ingu Stjórnmál Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.