Fréttablaðið - 01.07.2011, Blaðsíða 50
1. júlí 2011 FÖSTUDAGUR38
sport@frettabladid.is
Nettóvöllur, áhorf.: 800
Keflavík Valur
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 8–22 (2–11)
Varin skot Ómar 8 – Haraldur 2
Horn 3–7
Aukaspyrnur fengnar 13–7
Rangstöður 1–4
VALUR 4–3–3
Sindri Snær Jensson 6
Jónas Tór Næs 7
Halldór K. Halldórs. 7
Atli Sv. Þórarinsson 7
Pól Justinussen 7
Haukur Sigurðsson 7
Guðjón Lýðsson 6
(55., Andri Stefáns. 6)
Rúnar Sigurjónsson 8
*Arnar Sv. Geirs. 8
Jón Vilhelm Ákason 8
(84., Sigurbjörn Hre. -)
Christian Mouritzen 7
*Maður leiksins
KEFLAV. 4–3–3
Ómar Jóhannsson 8
Guðjón Antoníusson 5
Haraldur Guðmunds. 4
Adam Larsson 5
Brynjar Guðmunds. 3
(65., Goran Jovan. 5)
Einar O. Einarsson 5
Andri St. Birgisson 4
(69., Arnór Trausta. 5)
Hilmar Geir Eiðsson 4
Magnús Þorsteinsson 3
Jóhann B. Guðmund. 4
Guðmundur Steinars. 3
(84., Bojan Ljubicic -)
0-1 Guðjón Pétur Lýðsson, víti (22.)
0-2 Pól Jóhannus Justinussen (60.)
0-2
Kristinn Jakobsson (5)
BIRGIR LEIFUR HAFÞÓRSSON lék á einu höggi yfir pari, eða 73 höggum, á fyrsta degi á móti í
Svíþjóð. Mótið er liður í Áskorendamótaröðinni. Alls taka 136 kylfingar þátt í mótinu og þarf Birgir Leifur að
leika talsvert betur í dag ef hann ætlar að komast í gegnum niðurskurðinn.
Pepsi-deild karla:
Keflavík-Valur 0-2
STAÐAN:
KR 8 6 2 0 17-6 20
Valur 8 6 0 2 11-4 18
ÍBV 8 5 1 2 11-6 16
Fylkir 8 4 2 2 13-11 14
FH 8 3 3 2 13-9 12
Stjarnan 8 3 2 3 12-13 11
Breiðablik 8 3 2 3 12-14 11
Keflavík 8 2 2 4 10-12 8
Þór 8 2 2 4 8-14 8
Grindavík 8 2 1 5 9-14 7
Víkingur 8 1 3 4 5-10 6
Fram 8 0 2 6 5-13 2
Evrópudeild UEFA:
ÍBV-St. Patricks 1-0
1-0 Andri Ólafsson, víti (50.)
ÍF Fuglafjörður-KR 1-3
1-0 Dánjal Á Lakjuni (8.), 1-1 Kjartan Henry
Finnbogason (22.), 1-2 Guðmundur Reynir Gunn-
arsson (30.), 1-3 Baldur Sigurðsson (79.)
1. deild karla:
BÍ/Bolungarvík-Selfoss 0-1
- Ibrahima Ndiaye.
ÍR-Þróttur 0-1
- Sveinbjörn Jónasson.
Fjölnir-Leiknir 4-3
Ágúst Þór Ágústsson, Ómar Hákonarson, Geir
Kristinsson, Kristinn Freyr Sigurðsson - Pape Faye,
Fannar Arnarsson 2.
Grótta-ÍA 0-2
- Gary Martin, Arnar Már Guðjónsson.
Upplýsingar frá fótbolti.net
HM-kvenna:
Kanada-Frakkland 0-4
- Gaetane Thiney 2, Camille Abily, Elodie Thomas.
Þýskaland-Nígería 1-0
Simone Laudehr.
ÚRSLIT
TENNIS Það verða þær Maria
Sharapova og Petra Kvitova sem
mætast í úrslitum í einliðaleik
kvenna á Wimbledon-mótinu í
tennis. Þær lögðu andstæðinga
sína í undanúrslitum mótsins í
dag.
Hin rússneska Maria Sharap-
ova lagði Þjóðverjann Sabine Lis-
icki í tveimur settum.
Þetta er í fyrsta sinn sem
Sharapova kemst í úrslit Wimble-
don-mótsins síðan árið 2004
þegar hún sigraði á mótinu.
Í síðari leik dagsins sigraði
Tékkinn Petra Kvitova hina hvít-
rússnesku Victoriu Azarenka í
þremur settum. Kvitova er fyrsta
örvhenta konan sem kemst í
úrslit mótsins síðan landi hennar
Martina Mavratilova, sem síðan
þá var bandarískur ríkisborgari,
komst í úrslit árið 1994.
Úrslitaleikurinn í kvennaflokki
fer fram á laugardag. - ktd
Wimbledon-mótið í tennis:
Sharapova
komst í úrslit
FÓTBOLTI ÍBV vann í gær 1-0 sigur
á írska liðinu St. Patrick‘s Athletic
í fyrri viðureign liðanna í fyrstu
umferð forkeppni Evrópudeildar
UEFA. Andri Ólafsson skoraði eina
mark leiksins úr vítaspyrnu í upp-
hafi síðari hálfleiks.
Eyjamenn áttu tvær góðar
marktilraunir þar fyrir utan sem
markvörður Íranna varði vel í
bæði skiptin en þar fyrir utan var
ógnun Eyjamanna lítil. Leikmenn
St. Pat‘s fengu nokkur góð færi í
leiknum, til að mynda skalla í slá
auk þess sem að Eyjamenn björg-
uðu einu sinni á marklínu.
Fyrri hálfleikur var afar róleg-
ur og lítið markvert sem átti sér
stað. Eyjamenn voru langt frá
sínu besta og það fína spil sem
hefur einkennt liðið í sumar var
víðsfjarri. Enda ákvað Heimir
Hallgrímsson, þjálfari liðsins, að
stokka upp og láta liðið spila 4-4-2
í seinni hálfleik.
„Við lentum í vandræðum því
við vorum að gefa langar sending-
ar fram á völlinn. En um leið og
við settum boltann niður á jörð-
ina og fórum að láta hann ganga
manna á milli mátti sjá að við
erum með betra fótboltalið,“ sagði
Heimir eftir leikinn.
„Það þýddi lítið að spila þessum
löngu boltum fram þar sem við
erum með frekar lágvaxna leik-
menn. Þeir eru hins vegar með
tveggja metra menn í hverri stöðu
og töpum við því alltaf á þannig
spilamennsku.“
Írarnir náðu oft að skapa sér
hættu með föstum leikatriðum –
hornspyrnum, aukaspyrnum og
jafnvel innköstum. „St. Patrick‘s
er með sterkt lið og ef leikmenn fá
að spila sinn leik þá eru þeir erf-
iðir viðureignar. Þeir vilja gefa
marga langa bolta fram á völlinn
og eru með mikið af fyrirgjöfum,“
sagði Heimir.
Eyjamenn sóttu ekki mikið síð-
asta hálftíma leiksins og hleyptu
Írunum ansi nálægt eigin marki.
Finnur Ólafsson, leikmaður ÍBV,
segir að það verði að laga fyrir
næsta leiik. „Það er ljóst að við
þurfum að spila betur í seinni
leiknum til að komast áfram. Þá
getum við ekki leyft okkur að detta
svona langt til baka,“ sagði Finn-
ur. „Þeir áttu nokkur færi en þar
fyrir utan fannst mér ekki stafa
mikil hætta af þeim. En það sem
er mikilvægast er að við unnum og
náðum að halda hreinu sem verður
að teljast mjög sterkt.“
Þjálfari St. Pat‘s, Peter Mahon,
sagði að úrslitin hefðu verið sér
vonbrigði. Hann reiknar þó með
allt öðruvísi leik á Írlandi og ætlar
hann liði sínu að komast áfram.
„Við fengum færi til að skora og
vinna leikinn. Ég hef engar kvart-
anir yfir vítaspyrnudóminum enda
fannst mér hann réttur. En að öðru
leyti fannst mér þeir ekki skapa
sér mörg færi í leiknum. Mögu-
leikar okkar fyrir seinni leikinn
eru góðir. Ég á von á allt öðruvísi
leik og ég er sannfærður um að ef
okkur tekst að skora snemma þá
getum við unnið leikinn og kom-
ist áfram.“
Heimir viðurkennir að 1-0 for-
ysta sé ekkert sérlega mikið en
er langt því frá búinn að afskrifa
sína menn. „Við þurfum að vera
einbeittari í seinni leiknum. Það
var vandamál í dag, kannski af því
að þetta var fyrsti Evrópuleikur-
inn hjá langflestum af okkar leik-
mönnum. Auðvitað er smá spenna
í ungum mönnum fyrir svona leik
en hún er vonandi farin og við
getum spilað betur í seinni leikn-
um á Írlandi.“ eirikur@frettabladid.is
Þurfum að spila betur á Írlandi
ÍBV fer með nauma 1-0 forystu í seinni leikinn gegn St. Patrick‘s Athletics í forkeppni Evrópudeildar UEFA.
Andri Ólafsson skoraði í gær eina mark Eyjamanna sem máttu þakka fyrir að hafa haldið hreinu í leiknum.
EINBEITTUR Eiður Aron átti mjög fínan leik í vörn ÍBV í gær sem hélt hreinu gegn sterku írsku liði. Á neðri myndinni fagnar
Þórarinn Ingi í leikslok. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
FÓTBOLTI Valsmenn mættu mun
ákveðnari til leiks í Keflavík í gær-
kvöldi. Allar aðstæður til knatt-
spyrnuiðkunar voru þær bestu og
Hlíðarendapiltar nýttu sér þær til
hins ýtrasta. Þeir héldu boltanum
á jörðinni og spiluðu honum vel sín
á milli. Á miðjunni höfðu þeir öll
völd og voru duglegir að nýta sér
breidd vallarins með Jón Vilhelm
og Arnar Svein í banastuði á könt-
unum. Á sama tíma gekk hvorki né
rak hjá Keflvíkingum. Þeir beittu
löngum sendingum fram völl-
inn sem ullu varnarmönnum Vals
litlum vandræðum.
„Þetta var þungt hjá okkur í
kvöld, mjög þungt. Við áttum ekk-
ert skilið. Þeir voru bara betri,“
sagði Jóhann Birnir Guðmundsson
leikmaður Keflavíkur.
Í raun er ótrúlegt að Valsmenn
hafi aðeins unnið tveggja marka
sigur. Svo miklir voru yfirburðirn-
ir. Fyrra markið kom úr vítaspyrnu
sem dæmd var eftir að brotið var á
Jóni Vilhelm í markteig Keflavíkur.
Jón Vilhelm var við það að senda
boltann í opið markið eftir að Ómar
hafði varið skot Valsmanna en Guð-
jón Árni braut á honum.
Valsmenn rændir upplögðu
marktækifæri og Kristinn Jak-
obsson dómari leiksins hefði sam-
kvæmt reglum leiksins átt að vísa
Guðjóni Árna af velli. Sem betur
fer fyrir Valsmenn skoraði Guð-
jón Pétur úr vítinu og liðið leiddi
með einu marki í hálfleik.
Í síðari hálfleik var sama ein-
stefnan og ef ekki hefði verið
fyrir stórleik Ómars Jóhanns-
sonar í marki Keflavíkur hefði
leiknum lokið með stórsigri Vals.
Ómar varði margsinnis frá Vals-
mönnum í dauðafærum og var
langbesti leikmaður Keflavíkur í
leiknum. Í raun sá eini sem sýndi
hvað í honum bjó.
„Já, það má segja að hann hafi
reddað því að þetta hafi ekki verið
burst. Við vorum aldrei inni í
leiknum og ég man ekki eftir því
að við höfum fengið færi,“ sagði
Jóhann Birnir. Næsti leikur Kefl-
víkinga er gegn KR í 8-liða úrslit-
um Valitor-bikarins á sunnudag.
Spilamennska eins og sást í gær-
kvöldi mun duga þeim skammt í
þeim leik.
Valsarar geta hins vegar gengið
virkilega sáttir frá leiknum. Þeir
höfðu yfirburði á öllum sviðum
frá fyrstu spyrnu til hinnar síð-
ustu. Líklega besti leikur liðsins
í sumar.
„Mér leið vel eins og öllu lið-
inu. Við vorum búnir að undir-
búa okkur vel og þetta gekk full-
komlega upp. Við gjörsamlega
stjórnuðum þessum leik og áttum
sigurinn skilið. Það er eiginlega
ótrúlegt að hann hafi ekki verið
stærri,“ sagði Arnar Sveinn Geirs-
son sem var frábær í liði Vals.
- ktd
Valsmenn komnir í annað sætið og farnir að anda ofan í hálsmálið á KR eftir sterkan útisigur í Keflavík:
Sprækir Valsarar yfirspiluðu Keflvíkinga
KÁTUR Kristján Guðmundsson náði að leggja gömlu lærisveinana í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI