Fréttablaðið - 01.07.2011, Side 54
1. júlí 2011 FÖSTUDAGUR42
FÖSTUDAGSLAGIÐ
„All of the Lights með Kanye
West kemur mér í góðan fíling á
föstudögum. Fyrir leiki eru það
hins vegar Rammstein, Limp
Bizkit og annað hart rokk.“
Kristinn Steindórsson, markahæsti leik-
maður Pepsi-deildar karla.
„Þetta leggst mjög vel í mig. Það
verður gaman að prófa eitthvað
nýtt,“ segir popparinn Eyjólfur
Kristjánsson.
Hann verður heiðursgestur tón-
listarhátíðarinnar Innipúkans um
verslunarmannahelgina og stíg-
ur þar á svið með hljómsveitinni
Valdimar.
„Þeir eru tiltölulega nýir í
bransanum en ég er gamall „lord“.
Ég er búinn að heyra mikið í þeim
í útvarpinu og ég hef bara gaman
af þeim,“ bætir Eyfi við. Þetta
verður í fyrsta sinn sem hann
spilar á Innipúkanum. „Ég er
annálaður útipúkamaður en ég er
nýbyrjaður að vera í bænum um
verslunarmannahelgina,“ segir
Eyfi, sem spilaði lengi vel í Kerl-
ingarfjöllum þessa helgi og síðar
meir á Þjóðhátíð í Eyjum. Þar
hefur hann ekki verið síðan 2007.
Valdimar Guðmundsson, for-
sprakki Valdimars, hlakkar til að
syngja með Eyfa. „Eyfi er einn af
þessum toppum í poppinu. Ég veit
ekki hvernig ég mun tækla það
ef ég fer að syngja með honum
Nínu. Ég hef heyrt marga reyna
að syngja það lag og mistakast
hörmulega,“ segir hann og hlær.
Síðasta ár var heiðursgestur
Innipúkans sjálfur Raggi Bjarna
sem hélt vel heppnaða tónleika
með unglömbunum í Retro Stef-
son og verður því forvitnilegt að
fylgjast með samstarfi Eyfa og
Valdimars. Eyfi varð fimmtug-
ur í apríl og gaf af því tilefni út
safnplötu og fór í tónleikaferð um
landið.
Innipúkinn fer fram í tíunda
skipti í miðborg Reykjavíkur um
verslunarmannahelgina. Hátíðin
teygir sig að þessu sinni yfir þrjá
daga og fer fram föstudags- til
sunnudagskvölds, dagana 29.-31.
júlí, og verður Iðnó aðaltónleika-
staðurinn. Miðasala hefst í dag á
Midi.is.
Meðal annarra flytjenda á
hátíðinni verða Agent Fresco,
Apparat, Jónas Sigurðsson,
Skakka manage, Pascal pinon og
Snorri Helgason.
freyr@frettabladid.is
EYJÓLFUR KRISTJÁNSSON: VERÐUR GAMAN AÐ PRÓFA EITTHVAÐ NÝTT
Lávarðurinn Eyfi tekur
Valdimar undir sinn væng
LEIÐA SAMAN HESTA SÍNA Eyjólfur
Kristjánsson og hljómsveitin Valdimar,
með söngvarann Valdimar Guðmunds-
son í fararbroddi, spila saman á Innipúk-
anum. Ekki er ósennilegt að köflóttar
skyrtur verði einkennisklæðnaður þessa
óvænta bræðings.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Þetta er pínulítið eins og að fara
í sumarbúðir,“ segir Sólveig Arn-
arsdóttir leikkona. Síðasta tvo
og hálfan mánuðinn hefur Sól-
veig verið á Gotlandi, lítilli eyju
undan ströndum Svíþjóðar, við
tökur á þýskum sakamálaþátt-
um, Der Kommissar und Das
Meer eða Lögregluforinginn og
hafið. Um er að ræða tvær níutíu
mínútna langar sjónvarpsmynd-
ir sem byggðar eru á samnefnd-
um bókum eftir sænska höfund-
inn Mari Jungstedt. Leikkonan
hefur ekki verið ein á tökustað,
með henni eru maðurinn hennar
og nýfætt barn. „Og það kippir
sér enginn upp við það þegar ég
þarf að gefa því að drekka á milli
atriða.“
Þetta er sjötta árið í röð sem Sól-
veig leikur í þáttunum en þeir hafa
notið mikilla vinsælda í Þýska-
landi. „Síðasti þáttur mældist til
að mynda með yfir tuttugu pró-
sent áhorf sem þykir nokkuð gott
í 90 milljóna samfélagi.“ Þeir hafa
jafnframt verið sýndir í öðrum
þýskumælandi löndum eins og
Austurríki og svo í Skandinavíu.
Og leikkonan er orðin nokkuð fræg
fyrir leik sinn í þýsku sjónvarpi,
hún er stundum stoppuð úti á götu
og beðin um eiginhandaáritun.
Flestir þættir á þýskum sjón-
varpsstöðvum sem ekki eru leikn-
ir á móðurmálinu eru talsettir.
Og þar sem lunginn úr leikara-
liði þáttanna er frá Norðurlöndun-
um eru þeir með þýskan talsetj-
ara. Nema Sólveig, hún talar sína
þýsku án nokkurrar utanaðkom-
andi aðstoðar enda menntuð í Berl-
ín og hefur verið með annan fót-
inn þar. „Ég hef alltaf unnið mikið
í Þýskalandi og það er frábært að
geta unnið bæði þar og heima.“ - fgg
Sólveig vinsæl hjá Þjóðverjum
Í ÞÝSKUM SPENNUÞÁTTUM Sólveig
Arnarsdóttir leikur eitt aðalhlutverkanna
í þýsku sakamálaþáttunum Lögreglufor-
ingjanum og hafinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Paul Potts, hinn heimsþekkti tenór
úr Britain ś Got Talent, verður aftur
gestur á jólatónleikum Björgvins
Halldórssonar í ár. Þetta staðfestir
Björgvin í samtali við Fréttablaðið.
Söngvarinn segir Potts hafa sleg-
ið í gegn á tónleikunum í fyrra, fólk
hafi risið úr sætum til að hylla hann.
„Við fengum mikil og góð viðbrögð
við frammistöðu hans, áhorfendur
gjörsamlega elskuðu hann. Potts var
líka alveg í skýjunum yfir viðtökun-
um sem hann fékk, sendi okkur póst
og lýsti því yfir að hann langaði að
koma aftur.“ Og Björg-
vin tók hann á orðinu.
Fjórtán þúsund gestir
sóttu Jólagesti Björg-
vins í fyrra en þetta er
fimmta árið í röð
sem tónleikarn-
ir eru haldn-
i r. Björg-
vin segir
þá verða
stærri í
sniðum með ári hverju og ætlunin
sé að gera enn betur í ár. „Þeir eru
farnir að taka á sig mjög atvinnu-
mannslegan brag.“
Björgvin er á fullu þessa dagana,
hann er á leiðinni til Akureyrar með
stórsveit í tilefni af sextugs afmæl-
inu sínu en hugðist reyndar fyrst
skella sér í hljóðver því söngvarinn
er að taka upp plötu með hljómsveit
sinni Hjartagosunum. Er ráðgert
að hún komi út um miðjan júlí. „Ég
hef sjaldan eða aldrei verið í betra
formi.“ - fgg
Potts aftur með Bó
GÓÐUR DÚETT Paul Potts
hyggst koma aftur til
Íslands og syngja á Jóla-
gestum Björgvins
Halldórssonar
í Laugardals-
höll. Potts
sló í gegn á
tónleikunum í
fyrra.
„Það var heiður fyrir mig að taka
þátt í þessu,“ segir borgarfulltrú-
inn Gísli Marteinn Baldursson.
Hann steig óvænt upp á svið með
hljómsveitinni Skakkamanage á
Bakkusi í fyrrakvöld og fór með
rullu borgarstjóra í laginu Coloni-
al. „Þau vissu að ég væri mikill
aðdáandi sveitarinnar og að ég
ætlaði á þessa tónleika og þau báðu
mig um að leika borgarstjórann
þeirra,“ segir Gísli Marteinn sem
þekktist að sjálfsögðu boðið. Um
er að ræða kafla í laginu þar sem
söngvarinn Svavar Pétur Eysteins-
son kallar á „herra borgarstjóra“
úr salnum og þá kemur þekktur
einstaklingur upp á svið og tekur
þátt í stuttum leikþætti.
Aðspurður segist Gísli Marteinn
reyna að fara á eins marga litla tón-
leika og hann mögulega getur. „Ég
er ekki mikið fyrir Eagles og svo-
leiðis stóra tónleika með útlenskum
númerum en litlir tónleikar með
góðum íslenskum hljómsveitum
finnst mér meiriháttar.“
Svavar Pétur úr Skakkamanage
hefur áður fengið upp á svið kappa
á borð við Grím Atlason, fyrrver-
andi bæjarstjóra Bolungarvíkur,
Árna Vilhjálmsson úr FM Belfast
og listmálarann Davíð Örn Hall-
dórsson. „Við erum búin að vera
með bæjarstjóra og borgarstjóra-
efnið Gísla Martein. Ætli þetta
endi ekki á því að sjálfur borgar-
stjórinn verði fenginn til að leika
borgarstjórann,“ segir Svavar
Pétur. „Við erum virkilega glöð
yfir að hafa fengið Gísla Martein.
Ef hann verður borgarstjóri held
ég að hann geti þakkað okkur fyrir
það.“ - fb
Gísli Marteinn lék borgarstjóra
UPPI Á SVIÐI Gísli Marteinn Baldursson
uppi á sviði með Skakkamanage.
Meðal annars efnis:
Í landi sorpsins
Urðunarstöðin á Álfsnesi veitir vísbendingar um lifnaðarhætti
og breytt neyslumynstur Íslendinga.
Rabbarbara núna
Stiklað á stóru í sögu hins þrautseiga rabbarbara.
Páll Óskar gæti stjórnað
prinsa- og prinsessuskóla
Elísabet Jökulsdóttir og Björn Bragi
Arnarsson setjast á rökstóla.