Búfræðingurinn - 01.01.1940, Page 10
8
BÚFRÆÐINGURINN
11 f. h. var messa í Hvanneyrarkirkju. Flutti hana sóknar-
presturinn, dr. Eirikur Albertsson að Hesti, og þótti ræða
lians mjög snjöll. Á kirkjuorgelið lék Lárus Jónsson organ-
leikari úr Hafnarfirði og fórst það prýðilega úr hendi.
Rétt áður en messan skyldi liefjasl, kom karlakórinn Fóst-
hræður úr Reykjavik, og aðstoðuðu sumir úr kórnum við
sönginn í kirkjunni.
Eftir að miðdegisverður liafði verið snæddur kl. 12, hófst
samkoman kl. 1 e. li. Hafði verið komið fyrir tveimur
flaggstöngum á Kirkjuhólnum, rétt austan við íbúðarhúsið,
og á milli þeirra var tjaldað, svo að allgott skjól var af því
og brekkunni gegn norðannæðingi þeim, er var um dag-
inn. Um morguninn komu tveir starfsmenn Útvarpsins, og
höfðu þeir nú komið fyrir tækjum sinum á hólnum, því
að útvarpa átti ræðum og söng frá liátiðinni kl. 1—4 um
daginn. Enn fremur vorum við svo heppnir að geta fengið
Helga Hjörvar skrifstofustjóra Útvarpsins til þess að koma
til okkar og vera þul útvarpsins héðan.
Klukkan rúmlega 1 setti skólastjóri Runólfur Sveinsson
samkomuna með ræðu. Eftir það fluttu eftirtaldir menn
ræður, en karlakórinn Fósthræður söng nokkur lög á milli:
Rjarni Ásgeirsson formaður Búnaðarfélags Islands, Stein-
grímur Steinþórsson búnaðarmálastjóri (minni Halldórs
Yilhjálmssonar skólastjóra), Guðmundur Jónsson kenn-
ari (ágrip af sögu Hvanneyrarskólans), Pálmi Einarsson
ráðunautur (minni hænda), Jón Hannesson bóndi í Deild-
artungu (minni skólans), Pétur Ottesen alþingismaður og
Hermann Jónasson forsætis- og landbúnaðarráðlierra. Á-
formað hafði verið að afhjúpa þennan dag hrjóstlíkan úr
eir af Ilalldóri Vilhjálmssyni, sem gert var af Rikharði
Jónssyni myndhöggvara, og margir nemendur Halldórs
gáfu skólanum. Hafði verið gerður fótstallur fyrir líkn-
eskið úti í garðinum, en fyrir frábært seinlæti myndhöggv-
arans kom það of seint til landsins úr steypunni, svo að
ekki var liægt að setja það upp, og var það gert við
skólasetningu haustið 1939 án sérstakrar viðhafnar, og
þóttu þetta hin verstu mistök. En Steingrímur afhenti þó