Búfræðingurinn - 01.01.1940, Qupperneq 15
BÚFRÆÐINGURINN
9
líkneskið skólanum fyrir hönd nemenda Halldórs. Eftir
ræðuhöldin söng karlakórinn Fóstbræður, undir stjórn
Jóns Halldórssonar, við mikla hrifningu áheyrenda, en
þeim söng var ekki útvarpað.
Á eftir söngnum sýndi úrvalsflokkur karla úr Ármanni
(Sviþjóðarfarar) leikfimi, og þótti það hin bezta skemmt-
un. Loks var stiginn dans fram eftir kvöldi og ]>ar með
lokið minningarhátíð Bændaskólans á Hvanneyri.
Samkoman var liin ánægjulegasta og fór vel fram.
Væntir stjórn Hvanneyrings þess og aðrir, er að henni
stóðu, að þaðan hafi allir farið með góðar endurminningar.
Og einkum vonumst við til, að þeir Hvanneyringar, er sóttu
mótið, hafi eignazt þar ánægjustundir, sem i framtíðinni
geti varpað sólskinsgeislum í huga þeirra og þannig ó-
]>eint endurgreitt þann kostnað og fyrirhöfn, er ferða-
lagið og dvölin á Hvanneyri liafði í för með sér.
Gestirnir. Auk þeirra aðkominna ræðumanna, sem að
framan eru laidir, var eftirtöldum gestum boðið á há-
tíðahöldin: Ólafi Jónssyni, fyrrum skólastjóra; frú Ragn-
heiði Torfadóttur, ekkju Hjartar Snorrasonar skólastjóra;
frú Svövu Þórliallsdóttur, fyrrum konu Halldórs Vil-
hjálmssonar skólastjóra og börnum þeirra: Valgerði,
Birni, Sigríði, Svövu og Þórhaili; Birni Bjarnarsyni, fyrr-
um bónda í Grafarliolti í Mosfellssveit og þeim nemend-
um, er fyrstir útskrifuðust frá Hvanneyri og hægt var að
ná til, en það voru þeir Hjörlur Hansson að Grjóteyri i
Andakílshreppi, Gísli Þorbjarnarson Reykjavík og Ivrist-
ján Benjaminsson bóndi að Ytri-Tjörnum i Eyjafirði.
Allir þessir gestir komu, nema sá síðast nefndi. Ennfremur
var i boði okkar á sunnudaginn Jón Magnússon skáld og
frú hans.
Ekki verður hér hægt að telja alla þá Hvanneyringa
eða aðra, er sóttu mótið, en nokkurra fleiri skal þó
getið, einkum liinna eldri Hvanneyringa. Af fyrrverandi
kennurum skólans voru þessir mættir: Guðmundur Kr.
(iuðmundsson, Jónas Guðmundsson, Pálmi Einarsson,
Steingrímur Steinþórsson og Þorgils Guðmundsson. Þessir