Búfræðingurinn - 01.01.1940, Síða 30
24
BÚFRÆfilNGUliINN
Dýrin þurfa nauðsynlega að fá eftirfarandi:
1. Nægilega mikla fæðu úr dýraríkinu, þ. e. nægilega
eggjalivítu ásajnt nnkkru af feiti.
2. Hæfilega mikil kolvetni úr jurtarikinu: korn, græn-
meti, ber og aðra ávexti.
3. Hæfilega mikil og fjölbreyll steinefni i svipuðum
hlutfölium og þau er á líkama dýranna.
4. Nægilegan forða af vítamínum.
5. Nægilegt viðbalds- og vaxtarfóður, reiknað i liitaein-
ingum.
Næringarefnin skiftast þannig i flokka: 1. Eggjahvíta.
2. Feiti. 3. Kolvetni. 4. Steinefni. 5. Vítamín. 6. Vatn.
/. Effffjahvíluefnin eru frábrugðin feiti og kolvetnuni í
því, að þau innihalda köfnunarefnissambönd, og án
eggjabvítu i fóðrinu geta vefir dýranna ekki mvndast og
viðhaldist. Dýr geta lifað um stund, án þess að fá eggja-
hvitu í fóðrinu, og nota þau þá, á meðan endist, eggja-
Iivítu úr eigin vefjum. Þegar það er þrotið, deyja dýrin
úr eggjahvítuhungri, enda þótt nægilegt sé í fóðrinu af
öllum öðrum efnum. Auk þess að hvggja upp vefina, geta
eggjahvítuefnin hrunnið og notast sem hita- og aflgjafi
í líkamanum.
2. Feitin brennur i líkamanum og myndar hita og afl.
Auk þess safnast hún i vefina sem forðanælring. Refir
þurfa tilíölulega litla fitu í fóðrinu, og getur mikil fita,
sérstaklega að sumrinu, verið mjög skaðleg.
3. Kolvetnin hrenna einnig i líkamanum og mynda liita og
afl. Samkvæmt framangreindu mún láta nærri, að ref-
um sé eðlilegast, að um % af fæðunni sé kolvetnasam-
hönd úr jurtaríkinu.
4. Steinefni (sölt) eru ófrávikjanlega nauðsynleg fyrir
hyggingu alls líkamans, heinagrind, vöðva, handvefi, hlóð
o. s. frv. Af sömu áslæðu er þeirra mjög mikil þörf i fæð-
unni handa dýrum, sem ganga með fóstur og handa vax-
andi ungviði. Það er lifsnauðsyn að sjá um, að þau séu til
staðar i nægilegu magni og réttum hlutföllum í fóðrinu.
Það eru einkum fosfórsúru kalksöltin, sem aldrei má vanta.