Búfræðingurinn - 01.01.1940, Side 56
50
BÚFRÆÐINGURINN
Kaup, fæði og hestavinna ..... kr. 3.03 85,0 %
Leiga o. fl................... — 0.53 15,0 —
Alls kr. 3.56 100,0 %
Vinnustundir alls, tala .............. 5,3
Framleiðsluverð útheyshestsins er þvi að meðaltali um
3% króna, og þar af er 85% vinna og fæði. Borið saman
við töðuna, er hestburðurinn þannig nær þvi einum þriðja
ódýrari af útheyinu. En í þvi sambandi her að minnast
þess, að töðuhesturinn er verðmeiri til fóðurs en útheys-
hesturinn. Hversu miklu þar munar, verður elcki sagt
með neinni vissu, bæði vegna þess að engin nákvæm vog
er notuð, þegar hey er metið i hestburðum, og hins vegar
er bæði taða og úthey mjög svo misjafnt að gæðum. En
sennilegt má telja, að þar sem þessar meðaltölur gilda,
sé ekki mikill munur á framleiðsluverði á hverri fóður-
einingu i töðu og útheyi.
Framleiðsluverð útheysins er mjög svo jnisjafnt. Lægst
hefir það fundizt 1.08 kr., en liæst 9.57 kr., en lang oftast
er það milli 2.50 og 4.50 kr.
Til öflunar á hverjum hestburði af útheyi hefir farið
5,3 klst. alls, og er það líkt og til öflunar töðunnar alls.
En sé aðeins tekinn sá tími, er fer til heyvinnu, þá verð-
ur hann mun meiri fyrir útheyið, því að næstum allur
timinn fer til heyöflunar heinlínis, en aðeins um 80%
hjá töðu eða 4,2 klst. af 5,2 alls. Á þessu sést, að hey-
skapur er vfirleitt auðveldari á túni en á engi.
Nautgripir.
Stærð kúabúa þeirra, sem sendir liafa verið búreikn-
ingar frá, er að meðaltali um 6 „reiknaðir“ nautgripir
og þar af um 5 mjólkandi kýr. Þetta eru þvi allmiklu
stæirri bú en að meðaltali fyrir allt landið, en meðalbóndi
á landinu mun hafa um 5 nautgripi alls og 3—4 mjólk-
andi kýr.
Hér fer á eftir tafla um helztu niðurstöður nautgripa-
reiknings, talið i kr. pr. „reiknaðan“ nautgrip og %. Til