Búfræðingurinn - 01.01.1940, Síða 71
BÚFRÆÐINGURINN
65
sjúkdómar, kúaberklar og sinitandi kálfalát, mjög lítið út-
breiddir. Á liinn bóginn vildu þessir menn leggja aðal-
áherzlu á hreinlæti og vanduirkni við mjólkurframleiðslu.
Mjólkin tapar alltaf nokkru í gæðum við gerilsneyð-
ingu. Fyrst og fremst rýrast fjörefnin. Einnig tapar hún
nýmjólkurbragðinu, og finnst mörgum það svo mikill ó-
kostur, að þeir vilja ekki gerilsneydda mjólk. Þá vaknar
sú spurning: Er oss nauðsynlegt liér á íslandi, að mjólk
sé yfirleitt gerilsneydd? Að þuí er snertir kúasjúlcdóma
virðist þörfin um gerilsneijðingu eklci vera aðkallandi,
þar sem mjög litið er um sjúkdójna í kúm hér á landi og
sízt af öllu næjna sjúkdóma; þeirra gætir litið. Smitandi
fósturlát í kúm (Bang-sýking) er óþekkt hér á landi.
Senmlega þarf heldur ekki að reikna með kúaberklum;
að minnsta kosti Jienda þær rannsóknir, sem fyrir liendi
eru um það efni, ekki til þess. Berklar munu þó hafa
fundizt í kúm hér á landi, en líkur benda til þess, að þar
tiafi verið að ræða um sýkingu kúnna af mannaberkla-
gerlinum (typus humanus), en ekki af nautgripaberkla-
gerlinum (typus bovinus). Ileyrt liefi ég, að slik sýking
liafi einnig komið fyrir í nautgripum í Finnlandi og Svi-
þjóð. Af herklagerlinum eru til þrjú afbrigði þau tvö,
sem ég gat um, og svo fuglaafbrigðið (typus gallinac-
eus). Það er rétt að geta þess, að á síðast liðnu ári berkla-
prófaði ég á ljórða hundrað kýr í Borgarfirði og Stykkis-
hólirii, og reyndist engin þeirra sýkt.
En sýktar geta komist í mjótkina, þótt ekki stafi þeir
frá kúnum sjálfum. Þeir sýklar geta stafað frá þeim, sem
hirða um kýrnar, frá mjaltafólki og öðrum þeim, sem
að einhverju teyti starfa að mjólkurvinnslunni, frá því
mjólkin kemur úr kýrspenanum og þangað til neytand-
inn tekur við henni. Sjúkdómar, sem á þennan hátt geta
borist með mjólkinni, eru: berklaveiki, skarlatssótt, barna-
veiki, taugaveiki og taugaveikisbróðir, svo að nokkrir séu
nefndir. Ég lield, að yfirleitt sé of mikið lagt upp úr geril-
sneyðingu mjólkur, en hreinlæti og vandvirkni alls konar
við mjólkurframleiðsluna, ásamt eftirliti, of lítill gaumur
5