Búfræðingurinn - 01.01.1940, Page 76
70
BÚFRÆÐINGUR 1 N N
gerðar tilraunir nieð þorskalýsi lianda kúin. (Þorskalýsi
er auðugt af A- og D-fjörefnum.) Kúnni gefin 20 g af
þorskalýsi á dag eða væn matskeið. k7r talið, að hreýsti
og frjósemi kúnna aukist af þorskalýsisgjöfinni. Á ein-
um stað, þar sem slík tilraun var gerð, var því einnig
haldið fram, að kýrin mjólkaði nærri 1 litra meira á dag,
er þorskalýsið hafði verið gefið uin tíma. Fyrir þeirri
staðhæfingu liggja að vísu ekki gildar sannanir, en þvi
var slegið föstu, að flestar j>ær kýr, sem fengu þorska-
lýsi, „gengu“ á eðlilegum tíma eða 6—8 vikuin frá hurði.
Oft hiðja menn um lvf til þess að gefa kúnum inn og fá
þær þannig til að „ganga“. Það er til fjöldi af lyfjum,
sem notuð eru í þessum lilgangi, t. d. lyf, sem verka beint
á æxlunarfærin með aukinni hlóðsókn eins og t. d. yohim-
hin. Einnig má nefna hormónalyf og bætiefnalyf. Ekkcrt
af þessum lyfjum er öruggt, en geta að vísu stundum
koniið að gagni. — Fyrsta atriðið er, að fóðrunin sé
rétt. — Legbólgu og skeiðarbólgu verður að lækna
með lyfjum. Það er álit sérfræðinga, að oft heri svo
lítið á legbólgu, að lienni sé ekki veitl atliygli; engin
útferð og legið ekki fyrirferðameira en eðlilega, þegar
ar það er þuklað frá endaþarminum. Kýrin „gengur“ reglu-
lega, en „heldur“ elrki. í slikuin tilfellum hefir gefizt vcl
að sprauta inn í legið Lugolsvökva 3 %c, en ekki er þetta
öruggt. Ef kýr „ganga“ ekki, „liggja niðri“, nægir stund-
um að sprengja gul ber, sem oft finnast í eggjastokkun-
um; kýrin „gengur“ þá á eftir. Enn fremur er oft hægt
að lækna kýr, sem lcika á riðli og „halda“ ekki, með þvi
að sprengja vessafvltar blöðrur, sem oft finnast í eggja-
stokkum slíkra kúa. — En ekkert af þessu, sem ég liefi
nefnt, er öruggt. — Fyrst er að vita eitthvað um ástand
kýrinnar og liaga svo aðgerðunum eftir því.
Að lokum vil ég minnast dálítið á júgurbólgu. — Það
fer venjulega svo, að eftir því sem mjólkurframleiðslan
eykst og kýrnar verða nythærri, því nieir her á júgur-
bólgu. Er okkur því nauðsynlegt að vera á verði gegn
þessum sjúkdómi, því þó að júgurbólgan sé ekki hráð-