Búfræðingurinn - 01.01.1940, Side 110
104
BÚFRÆÐINGURINN
þrem mánuðum mjólkurskeiðsins, verður að gefa mikið
á dag, eigi liún að geta það. En nú takmarkar stæirð okkar
kúa, hve mikið þurrefni þær geta tekið til sin i fóðrinu
og þar með, live mikið liejr þær geti étið mest á dag. Yfir
14 kg af þurrefni munu mjög fáar kýr hérlendar geta
tekið til sín á dag, og fái þær það í ágætri löðu, geta þær
af því mjólkað um 14 kg á dag, Kýrnar, sem hafa eðli til
þess að mjólka meira, þurfa fóðurbæti, þ. e. noklcurn liluta
af fóðrinu í því ástandi, að mikið sé af meltanlegum nær-
ingarefnum í hverju þurrefnis-kg af fóðrinu. Ég set liér
nytlínur yfir tvær kýr islenzkar, til að sýna mismun okk-
ar kúa, livað þetta snertir.
Önnur þessi kýr fer í háa nyt og mjólkar mikinn hluta
af ársnytinni fyrst á mjólkurskeiðinu. Aftur stendur hún
geld síðari liluta þess. Hún mjólkar mikið um árið. Mundi
verða dæmd ágæt, ef miðað væri við hæstu dagsnyt og
líka góð, ef miðað væri við ársnytina. En sá, sem átti þessa
kú, gaf henni 400 kg af mat á ári og var þó í minnsta lagi.
Hin kýrin fer í þriðjungi lægri nyt eftir burðinn, en skilar
þó hærri ársnyt. Og hún mjólkar ekki meira, þegar frá
eru teknar fáar vikur fyrst eftir burðinn, en hún getur
gert af góðri töðu, enda fékk liún ekki fóðurbæti. Saman-
burðurinn á því, livernig þessar tvær kýr breyta heima-
aflaða fóðrinu i mjólk, er allur i vil þeirrar, sem fer i lægri
nytina og heldur betur á sér. Það er tvímælalaust betri
kýrin. Þessu sjónarmiði hefir verið gefinn of lítill gaumur.
Það hefir enn lítið tillil verið tekið til þessa sjónarmiðs,
þegar valin liafa verið lífdýr. En þetta þarf að gera. Og
það er meiri þörf nú að gera það en áður. Veldur þar bæði
það, hve erfitt er að fá fóðunbæti og svo hitt, að við höfum
nú orðið svo mikla mjólk liér í landi, að lílið vit er í því
að vera að breyta erlendu aðkeyptu fóðri i mjólk, nema
sem minnst að liæigt er. Þess vegna þarf að setja á kálf-
ana af kyni þeirra kúa, sem geta skilað upp í kring um
4000 kg ársnyt af vel feilri mjólk, án þess að bóndinn þurfi
að kaupa fóðurbæti handa þeim.