Búfræðingurinn - 01.01.1940, Side 119
BÚFRÆÐINGURINN
113
geymslur og ganga. Svo lýsir það upp 25 kúa fjós með
5 ljósum. 1 heyhlöðu eru 2 tengiluktir.
Þessi ljós eru vitanlega sjaldan eða aldrei notuð öll í
einu, en þau hafa nú í næstum fjóra mánuði verið notuð
eftir þörfum og ríflega það. Þó hefir stöku sinnum orðið
að gæta nokkurs hófs i notkun þeirra, og þrisvar hafa
þau þrotið að mestu í nokkra ldukkutíma í einu. Engin
bilun liefir átl sér stað á þessum tima, ekki svo mikið
sem ein einasta pera sprungið.
Stöðin sjálf kostaði 325 kr., leiðslur, gevmar og annað
tilheyrandi um 275 kr. eða allt upp komið 600 kr. Öll
vinna við uppsetningu og raflagnir var unnin af heima-
mönnum i lijáverkum síðari hluta sláttar og var frekar
til ánægju en útgjalda.
(Guömundur Marteinsson, Baugsvegi 26, Reykjavík, hefir um-
boð hér á landi fyrir hinar amerísku vindrafstöðvar, en Kaup-
félag Eyfirðinga mun hafa útsölu á þeim norðanlands. Eftirfar-
andi upplýsingar hefir lir. Guðmundur Marteinsson látið Búfræð-
ingnum í té um stærð stöðvanna og verð:
Slærð, Nægir fvrir tölu Verð,
wött ljósstæðn samtímis kr.
120 4— 7 250—290
200—225 8—10 490—550
500 20—25 700
600 25—30 830
1000 40—45 1190
1200 45—50 1400
Tvær minnstu gerðirnar eru vel fallnar til lýsinga á sveitabæj-
nm og einnig til hleðslu útvarpsgeyma. Með 500—600 watta stöð
má auk þess nota rafmagnsstraujárn, smá suðuplötu og heitvatns-
gcymi (þó aðeins eitt tæki i einu og þegar ljós eru ekki notuð).
Með 1000—1200 watta stöð má vafalaust spara eldivið til suðu
og jafnvel hita upp eina stofu, þegar byrlega hlæs og hafa allt að
eins hestafls mótor eða aðrar vinnuvélar. Vindmótorinn byrjár
að hlaða við um 2 vindstig.
Ekki er gott að nota venjulega birfeiðargeyma við vindraf-
slöðvarnar. Hæfilegir rafgeymar kosta sem hér segir: Fyrir 6
volta stöðvar 140—370 kr., fyrir 12 volta stöðvar 280—670 kr. og
fyrir 32 volta stöðvár 1300—1540 kr. Ritstj.)
S