Búfræðingurinn - 01.01.1940, Page 129
B U F R Æ Ð I N -G U R 1 N N
12:5
skal óg gela þess, að vorið 1937 byggði ég gripahús yfir
16 stórgripi ásaint tilsvarandi lilöSu og áburðargeymslu.
í þessa byggingu not'aði ég 80 tn. af cementi. Og einungis
vegna þess að ég er kaupandi að Búfræðingnum, komst
ég yfir upplýsingar, sem mér voru alls ókunnar, en gerðu
það að verkum, að ég gat látið ungling með hest liræra
þessar 80 tn. í hræritunnu, sem ég útbjó sjálfur, eftir leið-
sögn Búfræðingsins, mér að kostnaðarlitlu.“
Ingimundnr lngimundarson á Svanslióli í Strandasýslu
skrifar sem liér segir:
„Síðast liðið suinar gerði ég smá athugun með kartöflur
i litlum og frumlegum stíl. Niðurstaðan varð þessi:
Tn. af ha Meðalstærð g
margf. 19.2 sinnum
gaf 480 50
— 415 53
— 370 30
370 53
Bleik íslenzk
Kerrs pink
Rauð íslenzk
Hornfirzk kart.
16.6 —
14.8 —
14.8 —
Lakar reyndust Blálandskeisari, Stóri Skoti og Rósin.
Síðast liðið vor gerði ég tilraun með geldingu hrút-
lamba, og gáfu geldingarnir lætri raun en hrútarnir. Ég
liafði 3 flokka: hrúta, geldinga og gimbrar. I hverjum
flokki voru 14 einstaklingar. Ég valdi til þessa smæstu
lömbin, og vógu þau i liverjum flokki að meðaltali rúm-
lega 3 kg. Útkoman varð þessi:
Geldingar, haustþungi 41,46 kg og kjöt 16,47 kg eða 39,7 %
Hrútar 39,07 - — 16,11 - 41,2-
Gimbrar 32,60 13,88 - 42,6 -
Geldingskropparnir virtust fallegri en hrútsskrokkarnir.
Af 24 ám fékk ég að meðaltali 25,6 kg af kjöti eftir ána.“
Pétur tieirsson á Vilmundarstöðum i Borgarfirði skrifar:
„Ég gerði tilraun með að þurrka kjöt í refina hjá okkur
í haust, og gafst mér það prýðilega, svo að ég tel það vera
athugandi fyrir refaeigendur að reyna þetta. Kjöt þetta
var mest innyfli úr stórgripum og hefir það geymst mjög
vel og dýrin þrífast vel af ]>ví.“