Búfræðingurinn - 01.01.1940, Blaðsíða 132
126
BÚFRÆÐINGURINN
tengd saman á nokkuð mörgum stöðum með 5 mm vír.
Staur, sem var 6% m á lengd, var liafður 18 cm á hlið að
neðan, en 10 cm að ofan. 1 liann fór um 50 kg af cementi,
og var styrkleiki steypunnar líkur og í venjulegri lofta-
steypu (1 : 2 : 3), og um 20 kg af járni. Kjartan telur,
að vera muni um eilt dagsverk að gera slíkan staur, þegar
mót eru til. Gelur þá liver og einn reiknað út verðið. En
þessir staurar hér á Hvanneyri virðast ágætir, og reynd-
ist engum erfiðleikum bundið að reisa þá. Þeir Kjartan og
Sigursveinn hróðir lians að Fossi hafa einnig gert tilraunir
með að steypa venjulega girðingarstólpa. Lengd þeirra er
2 m og sverleiki 6 cm. á lilið. í hverju horni þeirra er
hafður 4 mm vír, og er hann tengdur saman á noklcrum
stöðum með mjórri vír, 2 mm. Styrkleiki steypunnar er
1:2:2, og fer þá um 3 kg af cementi í hvern staur. Ivjartan
gerir ráð fyrir, að maðurinn geti gengið frá 10—15 staurum
á dag, þegar mótin eru til. Staurunum er fest niður ýmist
með því að grafið er fyrir þeim og þeir festir með grjóti
eða að horað er fyrir þeim með járnkarli og þeim þrýst
niður í holuna með þunga sínum. Lykkjur eru liafðar út
úr staurunum til þess að festa vírinn við. Staurana geta
menn oft steypt í hjáverkum.
4. Huers konar hlið eru hentugust, þar sem bílaumferð
er mikil?
Suar: Eftirfarandi gerð af grindarlausum hliðum liefir
reynzt vel á Þingvöllum nú í mörg ár og á Hvanneyri,
en þar var það gert á síðast liðnu vori. Grunn gryfja er
grafin í veginn milli hliðstólpa 1,75—2,00 m á lengd (á
Þingvöllum 2,35 m). Bezt er að steypa liliðar gryfjunnar.
Yfir liana, hornrétt á veginn eru lagðar járnpípur um 7
cm í þvermál og bilið milli þeirra liafl 6—7 cm. Þa>r eru
ekki steyptar fastar, heldur látnar liggja óþvingað, þannig
að þær geti oltið. Bílar fara óliindrað um þessi lilið, en
þau virðast ágæl vörn fyrir allt húfé. Leggja þarf ])ver-
hita undir pipurnar á nokkrum stöðum.
Guðm. Jónsson