Búfræðingurinn - 01.01.1940, Page 133
Frjóvgunartilraunir á sauðfé.
Eftir Guðmund Gíslason lækni.
Óbein frjóvgun (artificial insemination) er fólgin i þvi, aö sæöi
er tekið frá karldýrinu og flutt i kvendýr. Þessar aðgerðir eru fram-
kvæmdar eftir sérstökum aðferðum, sem ekki verður lýst hér.
í vikunni fyrir jólin síðustu voru framkvæmdar hér í Reykja-
vík og i Árnessýslu tilraunir með óbeina frjóvgun á sauðfé. Þetta
verk var framkvæmt að tilhlutun mæðiveikinefndar i þeim til-
gangi, að hægt væri að auka slíka starfsemi næstu árin og út-
breiða með þvi móti á skömmum tima þau fjárkyn, sem staðizt
hafa mæðiveikina bezt. Tilraunin heppnaðist sæmilega vel. Að
visu héldu ekki nema 50 ær af um 200, sem reynt var við i allt,
en þess var varla að vænta, þar sem verkið var fyrst og fremst
framkvæmt sem byrjunartilraun og við breytileg skilyrði til þess
að fá viðtækari reynslu. Auk þess komu fram i byrjun nokkrir
erfiðleikar, t. d. vegna kulda i fjárhúsum, sem siðar tókst að bæta
úr. í hverju sáðfalli hrútsins eru mjög misjafnlega kröftugar sæðis-
fruinur. Þegar þarf að geyma sæði í nokkurn tima, en það getur
heppnazt hvað sauðfé snertir allt að 4 sólarhringum, þá er mjög
undir þvi komið, að hægt sé að velja til þess sæðisskammt með
lífseigum frumum. Til þess höfðuin við ekki aðstöðu að þessu sinni,
nema að mjög litlu Ieyti. Átta ær, sem fengu sæðið innan klukku-
stundar frá þvi það kom úr hrútnum, héldu allar. í einu tilfelli
höfðum við tækifæri til að ákveða um styrk frumanna og notuðum
þá sæði, sem geymt hafði verið í 3 sólarhringa, og heppnaðist sú
tilraun á þremur ám af fjórum. Yfirleitt bendir þessi tilraun ákveð-
ið í þá ált, að hægt sé að taka upp þessa starfsemi í allstórum stíl
strax á næsta ári, og má þá strax vænta miklu betri árangurs.
Það er tvimælalaust mjög þýðingarmikið fyrir íslenzkan land-
In'inað, ef tekst að framkvæma óbeina frjóvgun á sauðfé, kúm og
hestum svo að um muni. Auk þess sem hægt er að ala upp á
skömmum tíma liraust fjárkyn, má væntanlega stórauka afurðir
nautpeningsins. Slík starfsemi hefir farið mjög í vöxt i nágranna-
löndunum siðustu árin, og er t. d. framkvæmd í Danmörku á tug-
um þúsunda af kúm á ári. Nýting beztu kynbótagripanna getur
orðið margfalt meiri en áður með óbeinni frjóvgun. T. d. er hægl
að nota einn hrút fyrir nokkur þúsund ær. Dæmi er til, að sami
hrúturinn hafi verið notaður við 15 þúsund ær.