Búfræðingurinn - 01.01.1940, Page 139
Frá bændaskólanum á Hvanneyri.
Þessi þáttur verður í styttra lagi i þetta sinn, vegna þess
að liér að frajnan, í greinunum um verklega námið og
minningarhátíð skólans, liefir verið skýrt frá ýmsum þeim
atriðum, sem annars hefðn verið rædd Iiér.
Kennslan.
Kennarar hafa verið hinir söniu og undanfarið og
bóklegu kennsluna líkt hagað (sjá skólaskýrsluna), en um
verklega námið er sérstök grein í þessu riti.
Bændanámskeið var liáð itagana 3.—6. janúar. Var það
nýjung, þvi að ekki liefir verið haldið slikt námskeið hér,
siðan veturinn 1927—1928. Námskeiðið var ekki fjölsótt;
fastir gestir voru um 30, en áheyrendur alls 40—60. Þessir
menn fluttu fyrirlestra á námskeiðinu. (í sviga er tala
fyrirlestra hjá hverjum.);
Ásgeir Ólafsson dýralæknir (2) : Um kýr og mjólkurframleiðslu
og olnbogabörnin.
Dr. Eiríkur Albertsson (1): Um sambandsmálið.
Guðmundur Jónsson kennari (3) : Um búreikninga, ábiirð og
verkfæri.
Halldór Pálsson ráðunautur (4) : Um sauðfjárrækt.
Haukur Jörundsson kennari (1): Um garðrækt. (Rvikmynd.)
II. J. Hólmjárn (3): Um refarækt (2) og þangmjöl (1).
Páll Zóphóníasson ráðunautur (3) : Um nautgriparæktarfélög og
mjólkurframleiðslu.
Pálmi Einarsson ráðunautur (3) : Um islenzkar tilraunaniður-
stöður og framræslu.
Runólfur Sveinsson skólastjóri (2) : Um heyverkun.
Þrjú kvöldin voru umræðufundir. Þessi mál voru rædd:
Sambandsmálið, rafmagnsmál Borgarfjarðarliéraðs, mjólk-
urmálið og þegnskylduvinna. Voru umræður fjörugar.