Búfræðingurinn - 01.01.1940, Síða 145
Aðalfundur „Hvanneyrings“ 24. júní 1939.
Laugardaginn 24. júní kl. 2 e. h. hófst aðalfundur í félaginu
„Hvanneyringur" með Jivi að skólastjóri setli hann og gerði stutta
grein fyrir störfum félagsins á síðustu árum. Tilnefndi hanu
Bjarna alþingismann Ásgeirsson til þess að stjórna fundinum.
Tók Bjarni þá við fundarstjórn og nefndi til ritara þá Þorstein
Sigurðsson bónda að Vatnsleysu og Kristján Guðmundsson bónda
nð Indriðastöðum. Þá var gengið til dagskrár og tekið fyrir:
1. Jón Steingrímsson sýslumaður flutti ávarp til skólans og
xifhenti honum, i tilefni af 50 ára afmælinu, ræðustól að gjöf frá
Búnaðarsambandi Borgarfjarðar og Mýra- og Borgarfjarðarsýslu.
Skólastjóri þakkaði gjöfina fyrir skólans hönd.
2. Guðmundur Jónsson kennari skýrði frá störfum félagsins
síðan siðasti aðalfundur var haldinn. Eru þau aðallega þessi:
a. Félagið hefir keypt „Búfræðinginn“ og gefið hann út.
Á árinu 1938 hefir náðst samkomulag við „Hólamannafélagið“ um
útgáfu ritsins, og hafa félögin gert um það samning sin á milli.
b. Félagið hcfir átt þátt í því, að samin var saga Hvanneyrar-
skólans í tilefni af 50 ára afmæli hans og hún gefin út.
Samþykkt var að kjósa nefnd til þess að gera tillögur um fram-
tiðarstarfsemi félagsins og þá einkum útgáfu Búfræðingsins. í
nefndina voru kosnir: Helgi Haraldsson á Hrafnkelsstöðum, Brynj-
ólfur Guðbrandsson í Hlöðutúni, Kristinn Guðmundsson á Mosfelli,
Benedikt Grímsson á Kirkjubóli og Jónas Ivristjánson á Akureyri.
3. Skólastjóri Runólfur Sveinsson las upp lög félagsins og gerði
grein fyrir efni þeirra. Lagði hann til, að nefnd yrði kosin til að
athuga lögin og gera við þau hreytingartillögur, ef þurfa þætti.
Var það samþykkt og þessir kosnir i nefndina: Jörundur Brynj-
ólfsson í Skálholti, Magnús Jónsson í Borgarnesi, Sigurður Tómas-
son á Barkastöðum, Erlingur Daviðsson á Laugum og Helgi Jóns-
son á Seglbúðum.
4. Ými.s mál. a. Stcingrímur Steinþórsson búnaðarmálastjóri
flutti erindi þess cfnis, að aiskilegt væri, að aðalfundur Hvann-
eyrings léti frá sér fara eindregna ályktun um það, að aukin yrði
smíðakennsla við Ilvanneyrarskólann. Gat hann þess i því sam-
bandi, að Búnaðarfélag íslands mundi, i tilefni af 50 ára afmæli
skólans, styðja nokkuð að hinni fjárhagslegu hlið þessa máls.
Skólastjóri lagði til, að nefnd yrði kosin til að gera tillögur um
þetta mál.
b. Guðmundur Jónsson kennari flutti erindi um nauðsyn vinnu-
visinda. Óskaði liann eftir, að málið yrði sett i nefnd, og mætti
það vera sama nefndin, sem fjallaði um næsta mál hér á undan.