Búfræðingurinn - 01.01.1940, Side 159
B Ú FRÆÐINGURI N N
153
9. Bóndi liafSi lofað hestakaupmanni a<5 laka af honum sem
svaraði 15 hestum í 32 daga. Hestakaupmaðurinn sendir fyrst
8 hesta til bóndans. Eftir 12 daga sendir hann 4 hesta til við-
bótar. Enn líða 10 dagar, en þá isendir kaupmaður 4 hesta.
Hvað verður bóndinn að hafa alla hestana lengi, þar til samn-
ingurinn er útrunninn?
10. Þriggja mánaða víxill að upphæð kr. 800.00 er gefinn út li.
febr., seldur 18. s. m. Forvextir eru 6%, þóknun 14%. Hvað
fæst fyrir víxilinn?
Stærðfræði eldri deildar.
1. Hvert er ummál hrings, sem er 4,9 cm að þvermáli?
2. Rétthyrndur jafnarma þríhyrningur er 84,5 cm2 að flatarmáli.
Hvað cru armarnir langir?
3. Flatarmál rétthyrnds þríhyrnings er 3,63 cni2. Önnur hliðin,
sem stendur að rétta horninu, er 220 cm löng. Hvað er hin
skammhliðin löng?
4. Þríhyrningur hefir tvær hliðar 4 og 5 m langar, og hæðin á
þriðju hliðina er 3 m. Hvað er sú hlið löng?
5. Hvert er flatarmál fernings, umritaður af hring, sem er 154
m2 að flatarmáli?
6. Hvað féllu margir 1 vatns í rigningardembu í garð, sem er
37,5 m langur og 22,4 m breiður, þegar vatnið steig 1,8 cm
í keri, sem stóð í garðinum?
7. Hverfisteinn vegur 52,65 kg. Steinninn er 15 cm á þykkt. í
gegnum hann er ferningslagað gal 6 cm á hlið. Iiverl er þver-
mál steinsins?
8. 1 kg af kaffi kostar kr. 1.50 meira en 1 kg al' sykri. En 16 kg
af kaffi og 13 kg af sykri kosta til samans kr. 36.18. Hvað
kostar kg af hvoru?
Keyptar bækur og kennsluáhöld til skólans 1937 og 1938:
Dan. Danielsson: í áföngum. — Yilhjálmur Stefánsson: Ferða-
bækur. — Halldór K. Laxness: Dagleið á fjöllum. — Þórbergur
Þórðarson: íslenzkur aðall. — Jónas Jónsson: Merkir samtiðar-
menn. — Guðmundur Finnbogason: Mannfagnaður. —■ Haraldur
Níelsson: Árin og eilifðin. — Jón Rögnvaldsson: Skrúðgarðar.
— Jakob Thorarensen: Sæld og syndir. — Landbrugets Ordbog.
— Maskinbog for Landmænd. -— Ársrit Skógræktarfélagsins. •—
Eimreiðin. — Menntamál. — Iðunn. — Náttúrufræðingurinn og
nokkur fleiri timarit eru keypt af skólanum árlega. 20 mælistengur,
fjölritari, samleggjari og ýmislegt fleira smávegis hefir verið keypt
til kennslunnar.