Búfræðingurinn - 01.01.1940, Page 167
Framliald aí 2. kápusiðu.
Áskorun þessari var vísað frá með rökstuddri dagskrá, ásamt
ýmsum öSrum áskorunum og tillögum um bindindismál, er Al-
þingi hafSi borizt. Frekari rökstuSningur á þessari afgreiSslu Al-
þingis var sá, aS þessar tillögur og áskoranir um þetta efni gengu
aS meira og minna leyti í bága viS þýSingarmikla milliríkjasamn-
inga milli íslands og annarra landa. Um þessa afgreiSslu Alþingis
á þessu máli skal ekkert sagt hér, en aSeins visaS til frekari rök-
stuSnings okkar i téSu bréfi.
Ilvaiineijringar! Á aSalfundi Vínbindindisfélags Hvanneyringa
á síSast liSnu hausti var samþykkt eftirfarandi grein i lögum fé-
lagsins:
„Tilgangur félagsins er aS vinna aS útrýmingu áfengis meSal
skólapilta á Hvanneyri og Hvanneyringa yfirleitt. Enn fremur aS
vinna aS algjörri útrýmingu áfengis úr landinu.“ — 1 sambandi
viS þessa samþykkt viljum viS skora á ykkur alla Hvanneyringa
aS taka upp öfluga barátlu fyrir bindindi og reglusemi hvarvetna
á landinu, þar sem þiS starfiS. ViS viljum aS lokúm benda á eftir-
farandi staSreyndir:
Hver sá, sem hvorki neytir tóbaks eSa áfengis, mun viS þaS
verSa nýtari og starfshæfari maSur í þjóSfélaginu, langlífari, spar-
ar fjármuni, veldur ekki öSrum óþægindum vegna þessara nautna,
verSur heilsubetri o. m. fl. AthugiS neyzlu þessara eiturlyfja nið-
ur i kjölinn og þið munið sannfærast um, aS hún er öllum alltaf
til ills eins. Vinnum allir lieilir aS aukinni menningú íslenzku
þjóðarinnar. Gerum áhlaup á tóbak og áfengi, sigrum þaS, rekum
það burtu iir landinu.
Með alúðarkveðju
Stjórnir Vín- og Tóbaksbindindisfélaga Hvannegringa, Hvanneyri.
Útbreiðið BÚFKÆÐINGINN
MeSlimir „Hvanneyrings“ og „Hólamannafélagsins“ fá hann
fyrir 3.00 kr. en aðrir 3.50 kr., auk póstkröfugjalds. En póstkrafan
er einfaldasta innheimtuaðferSin, og því völdum við hana.
Sljórn Hvanneyrings.