Ný saga - 01.01.1999, Side 41

Ný saga - 01.01.1999, Side 41
✓ Oþekkti konungurinn sé milli íralands og þessa lands. Sagnfræðing- urinn P. A. Munch (1810-63) taldi að Scir- inges heal væri Kaupangur í Tjplling.4 Þar hefur farið fram uppgröftur undir stjórn Charlotte Blindheim (f. 1917) sem bendir til að þar hafi verið vísir að kaupstað á ní- undu öld.5 Frásögn Óttars gefur til kynna að á þessurn tíma hafi Noregur verið landfræði- leg eining og gerður greinarmunur á því landi og Danmörku og Svíþjóð, sem hvort- tveggja er nefnt í textanum (Sweoland og Danamarc).6 Hvergi er þó nrinnst á konunga þessara landa. í engilsaxneskum annál er nefndur „Yric Haroldes sunu“ en í annál Florence af Worcester „Ircus“ nokkur.7 Á mynt frá Norð- imbralandi kemur hins vegar Ericus eða Eric fyrir. Ekki hefur fengist fullnægjandi skýring á sérhljóðabreytingunni innan Saxaannáls en nafnið Eric er auðvelt að skýra sem danska nafnið Erik, þar sem í austnorrænum málurn verður œi > é.8 Eiríkur þessi er sagður dansk- ur í annálnum sem kernur illa heirn og sam- an við að hér sé á ferðinni Eiríkur blóðöx Haralds son hárfagra. Adam frá Brimum nefnir einnig Norðimbrakonung, sem hann kallar raunar Hiring, en gerir ráð fyrir að sé sonur Haralds Gormssonar Danakonungs (d. 987) sem „sendi hann með her til Eng- lands, en þegar hann hafði lagt eyjuna undir sig var hann svikinn og drepinn af íbúum Norðimbralands.“9 Pessi frásögn vísar greini- lega til þess konungs sem getið er í Engilsaxa- annál og hún eldri en þær sem segja að Eirík- ur þessi hafi verið norskur. Hins vegar fellur hún ekki vel að tímatali, þar sem nú er gert ráð fyrir að Haraldur Gormsson hafi kornið til valda í Dannrörku nálægt 958.10 Kanna má tengsl Haralds við Danmörku frekar. Eini konungurinn sem samtímaheim- ildir gefa til kynna að ríkt hafi í Noregi í heiðni var Haraldur Gormsson „er lagði und- ir sig Danmörku og Noreg allan“, eins og seg- ir í þekktri rúnaáletrun í Jelling. Nafnið Haraldur er þekkt úr dönskum kóngaættum. í vestnorrænum málum er það hins vegar ut- angarðsmaður. Þar þekkjast nöfn eins og Hermundur, Hersteinn, Herjólfur og Herdís. Hefði Haraldur með sama hætti átt að verða :i:Herjoldur. í rannsókn E. H. Linds (1849-1931) kernur frarn að í Noregi var nafnið lítið notað utan konungsfjölskyldunnar og á íslandi er Oddaverjinn Haraldur Sæmundarson (d. 1251) sá fyrsti sem vitað er til að heiti þetta, að frá- töldurn Haraldi hring landnámsmanni. Síðar athugaði Lind þetta nánar og kornst að því að nafnið væri einkum að finna í Austur-Noregi, en væri afar sjaldgæl't annars staðar í Noregi. Hann taldi að nafnið hefði sennilega komið frá Danmörku „og hefði konungsættin haft frumkvæði að því“. Hins vegar komst Lind að því að nafnið kæmi víða fyrir á Bretlandseyj- um, í konungsættum á Mön og á Suðureyj- um." Nafnið Hálfdan þekkist naumast held- ur í Noregi eða á íslandi fyrr en á 13. öld, ef frá er talin ætt Haralds hárfagra á víkinga- öld.12 Oddaverjinn Hálfdan Sæmundarson (d. 1268), bróðir Haralds, er fyrsti íslending- urinn sem ber þetta nafn. Hins vegar er nafn- ið algengt í Danmörku, einnig í Danalögum á Mynd í. Peter Andreas Munch. Mynd 2. Svipmynd af landslagi austanvert við Osióarfjörð. 39
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Ný saga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.