Morgunblaðið - 11.07.2011, Page 11
fór síðan að reka kaupfélagið hérna.
Þá auglýsti hreppurinn eftir rekstr-
araðilum. Ég sótti um og tók að mér
reksturinn í alla vega þrjú ár. Þetta
er þriðja sumarið núna og mér hefur
líkað mjög vel enda hvergi betra að
vera. Konan mín er úr Árnesi í Tré-
kyllisvík og hefur verið að reka þar
minja- og handverkshúsið Kört.“ seg-
ir Einar Óskar.
Nýr matseðill á hverjum degi
Reynt er fá allt hráefni sem not-
að er í matreiðslu staðarins af svæð-
inu í grennd. Fiskurinn kemur beint
úr sjónum og allt lambakjöt er keypt
frá bónda í sveitinni. Einar Óskar
segist meira að segja hafa gengið svo
langt að vera með nánast milliliða-
laust kaffi frá Kólumbíu. Það er keypt
í gegnum Kaffismiðju Íslands en eig-
andi hennar kaupir uppskeru frá
bónda sem fær allan ágóðann í sínar
hendur. Þetta fyrirkomulag hefur
reynst vel en Einar Óskar segist ekki
lengi hafa velt fyrir sér að opna veit-
ingastað.
„Ég er búinn að vera í ferða-
málafræði við Háskóla Íslands og
þetta var bara skemmtilegt sumar-
verkefni með skólanum. Svo er líka
skóli í sjálfu sér að reka fyrirtæki. Við
tókum þann pólinn í hæðina að hafa
engan matseðil heldur krotum við
bara á krítartöflu það sem er í boði þá
stundina. Það er yfirleitt einn fisk-
réttur, einn eða tveir kjötréttir og síð-
an súpur, brauð, kökur og fleira. Allt
bakað hér á morgnana. Traffíkin er
gloppótt svo að þetta reynist best til
að hráefnið sé alltaf ferskt. Fólk hef-
ur verið ánægt með þetta og enginn
kvartað yfir því að úrvalið sé of lítið,“
segir Einar Óskar. Hann segir kjöt-
súpuna hans pabba vera langvinsæl-
asta réttinn og kóteletturnar. Þá sé
eitthvað alveg sérstakt við að smakka
á Strandalambi sem gangi bæði á fjöll
og í fjöru. Plokkfiskurinn sé líka vin-
sæll svo og veglegir hamborgarar og
vöfflur húsins.
Göngugarpar og ferðalangar
„Hér eru mestmegnis Íslend-
ingar á ferð en ferðaþjónustan hefur
byggst dálítið upp á siglingafyrirtæk-
inu Freydísi. Það heldur uppi sigl-
ingum héðan og siglir norður Strand-
ir alveg að Hornbjargsvita. Slíkar
ferðir eru vinsælar hjá göngufólki.
Annars hefur lausatraffík aukist mik-
ið og í hreppnum eru núna gistirými
af ýmsu tagi fyrir örugglega 150
manns. Við tökum eftir því að fólk
ferðast nú meira saman í rútum og
gefur sér meiri tíma til að stoppa á
söfnum og kaffi- og veitingahúsum.
Það er dálítið meira ferðalag hingað
fyrir erlenda ferðamenn því við erum
botnlangi og 100 km frá Hólmavík
sem er svona næsti hringvegur. Þeir
útlendingar sem koma hafa ýmist
komið til Íslands áður eða leigja sér
bíl og hafa nógan tíma þeir koma
hingað. Laugin á Krossnesi hefur
mikið aðdráttarafl en annars hafa
náttúran og rólegheitin aðalaðdrátt-
araflið hér. Kaffihúsið hefur verið vel
metið og gestafjöldinn örugglega þre-
faldast á síðastliðnum þremur árum.
Við höfum ekki látið veðrið í sumar á
okkur fá enda er bannað að tala um
veðrið og pólitík hjá okkur,“ segir
Einar Óskar bætir við að ágúst og
september geti líka verið góðir mán-
uðir til að ferðast á þessum slóðum. Í
öllum hreppnum búa rúmlega 40
manns með fasta búsetu en sú tala
margfaldast á sumrin.
Ball með Bleki og byttum
Spurður um það sem sé fram-
undan á Kaffi Norðurfirði segir Einar
Óskar að verslunarmannahelgin í Ár-
neshreppi verði mjög góð. Hefð er
fyrir því að halda sveitaball á laugar-
deginum í félagsheimilinu í Árnesi.
Hljómsveitin Blek og byttur mun
leika þar undir dansi annað árið í röð
en meðlimir hennar eru meðal annars
úr Sinfóníuhljómsveit Íslands. Á
Kaffi Norðurfirði verður skrall fyrir
ball á föstudegi og síðan róleg stemn-
ing í „pub quiz“ á sunnudeginum.
Vinsæl Matargestir eru hrifnir af kjötsúpunni hans pabba.
Jerky Á Kaffi Norðurfirði er kjöt
bæði reykt og þurrkað.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚLÍ 2011
Ferðaþjónustuaðilar á Hallormsstað
og í Fljótsdal hafa stofnað til klasa-
samstarfs til að efla ferðaþjónustu
á Upphéraði með sameiginlegri
kynningu og áætlanaferðum frá Eg-
ilsstöðum. Nú þegar eru hafnar
ferðir á vegum Tanna Travel og
verða þrjár ferðir á dag milli Egils-
staða og Végarðs í Fljótsdal til 3.
ágúst. Fyrsta ferð að morgni er frá
Upplýsingamiðstöðinni á Egils-
stöðum kl. 7:30 en síðasta ferð úr
Fljótsdal er kl. 16:45, að því er fram
kemur í tilkynningu. Stoppistöðvar
eru á Skriðuklaustri, við Hengifoss
og á Hallormsstað.
Hallormsstaður og Fljótsdalur
státa af stærsta skógi landsins,
fjórða hæsta fossinum, aflmestu
virkjuninni, klausturminjum, menn-
ingarsetri og vistvænni gestastofu
fyrir stærsta þjóðgarð Evrópu. Á
svæðinu eru allar tegundir af gist-
ingu, allt frá svefnpokaplássi og
tjaldsvæðum upp í hótelsvítur og
sumarhús. Þar er einnig að finna úr-
val gönguleiða, hesta- og bátaleigu
og yfir sumarið eru starfræktir þar
þrír veitingastaðir sem leggja
áherslu á hráefni svæðsins, s.s.
hrútaber, lerkisveppi og hrein-
dýrakjöt.
Ferðaþjónustan efld á Upphéraði
Stærsti skógurinn, fjórði hæsti
fossinn og klausturminjar
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Sá stærsti Hallormsstaðarskógur er tæpa 30 km frá Egilsstöðum.
Snurfusað Plönturnar þarf að snyrta til og laga.
Fallegt Nota má blóm á margan hátt.
KORTIÐ GILDIR TIL
30.09.2011
MOGGAKLÚBBURINN
– MEIRA FYRIR ÁSKRIFENDUR
Allir fastir áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa félagar í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða.
Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á mbl.is/moggaklubburinn.
Hafðu samband í síma 569 1122 hafi Moggaklúbbskortið ekki borist þér.
HEILSU- OG DEKURFERÐ Á LÚXUSHÓTEL Í LITHÁEN
Innifalið í 15 daga dvöl er:
• Flugferðir og ferðir milli flugvalla og hótels
• Gisting í tveggja manna herbergjum með
öllum þægindum
• Morgun-, hádegis- og kvöldverðahlaðborð
• Viðtal við lækni staðarins sem gefur
hverjum gesti læknisskoðun og ráð
• Mismunandi meðferðir, svo sem leirböð,
míneralvatns-heilsuböð, jurta-freyðiböð,
ýmis konar sýruböð og sundleikfimi
MOGGAKLÚBBSTILBOÐ
Fullt verð er 286.000 kr. Moggaklúbbsverð 236.000 kr.
Brottför 18. september 2011.
Upplýsingar og bókanir á www.sunnuferdir.is eða í síma 555 4700.
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á MBL.IS/ASKRIFT
EÐA Í SÍMA 569 1122
• Ein lækningameðferð samkvæmt læknis-
ráði, gæti til dæmis verið nudd í vatni,
sitjandi bað eða kalt bað
• Allir sem þess óska fá svo daglega klassískt
nudd í 10 mínútur, „kinesitherapy“
(hópmeðferð), læknandi sturtumeðferð
og „physiotherapy“
• Aðgangur að interneti