Birtingur - 01.01.1965, Síða 67
sat svo lengi að áhorfendur urðu örvita og
fóru að láta öllum illum látum og það var
uppákoman. í þessum uppákomum virðast
egg hafa þýðingarmikið hlutverk. Stundum
er þeim fleygt í áhorfendur, væntanlega svo
þeir verði ekki fyrri til.
Ein uppákoma: stórt svið. Autt. Fjórir menn
koma inn á sviðið með stóran kassa. Þeir láta
kassann á mitt sviðið. Fara út. Það líður löng
stund. Tveir menn koma inn á sviðið og ganga
að kassanum. Þeir setjast á kassann. Þegja.
Annar kveikir sér í sígarettu. Hinn kveikir
sér ekki í sígarettu. Þegar sígarettan er búin
kastar maðurinn stubbnum á gólfið. Hann
stígur ofan á stubbinn. Þeir fara éit. Það líð-
ur löng stund. Tveir menn koma inn á sviðið.
Þeir ganga að kassanum. Taka lokið af kass-
anum. Maður stendur upp í kassanum. Það
er annar maður. Hann sezt. Lokið er látið á
kassann. Mennirnir fara út. Löng stund líður.
Tveir menn koma inn á sviðið og taka lokið
af kassanum. Maður stendur upp. Hann heid-
ur á pönnu. Hann sezt, lokið á kassann. Menn-
irnir út. Það líður löng stund. Tveir menn
koma inn á sviðið. Þeir taka lokið af kass-
anum. Hinn maðurinn í kassanum stendur
upp. Hann er með eggjaköku á höfðinu.
Uppákoma.
Þegar sýningunni var lokið var farið á veit-
ingaliús til að fagna sigri. Æ ég er svöng,
segir ung kona. Einn listamannanna renndi
lásnum niður á buxnaklaufinni, sótti þangað
egg. Bauð.
Uppákomur geta verið hvað sem er. Kona að
strauja þvott. Maður að hengja sig í kálfs-
görnum. Smiður að reka nagla.
Kannski segir áhorfandinn: Ef það væri nú
eitthvað gaman að þessu. En þetta er bara svo
hundandskotileiðinlegt.
Leiðinlegt, segir impressaríóinn: það er nú
einmitt einsog á að vera. Það er nefnilega það
sko. Og gefur augaleið. Heimurinn, hann er
orðinn svo leiðinlegur. Lífið. Allt. Það er allt
svo leiðinlegt. Að lifa. Og þá er listin sönn
þegar hún er nógu andskoti leiðinleg. Og læt-
ur sluma í þeim sem hafa ekki tekið eftir
því vegna þess hve þeir eru önnum kafnir að
vera glaðir eða hryggir, við að hugsa og vinna,
gróðursetja tré, gefa smáfuglunum, mála
myndir sem þeim finnst sjálfum þeir þurfi
að rnála, yrkja ljóð, svara eða leita uppi þenn-
an fræga gamaldags innblástur . . .
Birtingur 10 ára
Birtingur hefur náð fyrsta tugnum einsog all-
ir vita. Hann var upphaflega stofnaður af
mönnum með ólíkar skoðanir í mörgum efn-
um en þeir töldu sig hafa næg sjónarmið sam-
eiginleg til að geta starfað saman. Við vor-
um að hugsa um liver um sig að það væri eng-
BIRTINGUR
65