Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.2000, Blaðsíða 24

Freyr - 01.05.2000, Blaðsíða 24
í 18. sæti yfir héraðið. Gáski er kattlágfættur með mikinn frampart og sterka afturbyggingu en full stuttur og feitlaginn. Auk þess er rétt að nefna Dropa 98-480 í Enni, keyptur frá Mávahlíð og 98-518 í Hofstaðaseli sem báðir eru ágætlega gerðir. I Hjaltadalnum var ein- ungis sýndur einn hrútur og var hann frá Skólabú- inu á Hólum. Hrúturinn var Bárður 98-387, keypt- ur ffá Hjarðarfelh, sonur Hnoðra 95-801. Bárður er hreinhvít glæsikind, virkjamikill, langvaxinn með mikil bak-, mala- og lærahold en ekki laus við galla í fótum. Bárður hafn- aði 5. sæti yfir Skagaíjörð. í Óslandshlíð, Höfða- strönd og Sléttuhlíð voru sýndir 4 hrútar og fengur þeir allir I. verðlaun. Hvati 98-259 í Litlu- Brekku dæmdist besti hrútur sveitarinnar og jafnframt stigahæsti hrútur Skagafjarðarsýslu haustið 1999 og er það annað árið í röð þar sem stigahæsti veturgamli hrúturinn kemur frá Litlu-Brekku. Hvati er rígvænn, hefur geysigóða frambyggingu, frábær bakhold og hold- grónar malir. Auk þess mikla og hreinhvíta ull en er ekki laus við smá fóta- galla, glæsilegur einstakl- ingur. Kubbur 98-341 á Hlíðarenda er einnig at- hyglisverður hrútur með Smári 98-080, Deplum. Sindri 98-086, Þrasastöðum. sérlega holdgróið bak en heldur hár á herðar. I Fljótunum var þátt- taka í sýningunum lang mest, þar voru alls sýndir 38 veturgamlir hrútar og margt um föngulega gripi. Þeirra fremstur stóð Sindri 98-086 á Þrasa- stöðum, keyptur frá Smá- hömrum, sonur Sindra 97-505. Sindri stigaðist sem 4. besti hrútur sýsl- unnar, jafnframt því að vera besti kollótti hrútur- inn. Hann er hreinhvítur fremur langur með breitt og holdgróið bak og frá- bær mala- og lærahold. Annar í röðinni og jafn- framt annar besti kollur sýslunnar var Smári 98- 080 á Deplum, heimaal- inn undan Bjarti 97-083. Hann er hreinhvítur, jafn- vaxinn með frábæran frampart og læri en helst til stuttur. Þriðji í röðinni og jafnframt 4. besti koll- ur sýslunnar varð Lúði 98-077 á Deplum, heima- alinn sonur hins marg af- kvæmadæmda Karls 93- 428. Hann er langvaxinn með holdgrónar malir og þykk læri. Þá er komið að einum kollinum enn, Skipper 98-093 á Þrasa- stöðum, hann er sonar- sonur Stera 92-323 á Heydalsá. Hann er hrein- hvítur virkjamikill og lang- vaxinn, með sterk bak- og malahold en ekki laus við fótagalla. Þá er rétt að nefna Aula 98-041 í Stóra- Holti sem varð 14. í röðun, Smára 98-015 á Hraunum, keyptur ffá Smáhömmm, sonur Kopars 97-506, Gest 98-180 á Ysta-Mói, keypt- ur frá Gestsstöðum, sem allir em mjög vel gerðir hrútar, og Sónar 98-087 á Þrasastöðum, keyptur frá Smáhömmm, undan Són- ari 97-507, en hann er með óvenju þykkan bakvöðva, 37 mm, af kollóttu að vera. Eyjafjarðarsýsla Talsvert færri hrútar komu þar til sýninga en haustið 1998 eða samtals 107 hrútar og vom sex þeirra úr hópi eldri hrút- anna. Veturgömlu hrút- amir vom örlítið vænni en jafngamlir hrútar á svæðinu árið áður, eða 82,2 kg, og fengu 78,2% veturgömlu hrútanna I. verðlauna viðurkenningu. í Ólafsfirði dæmdist bestur Dúnn 98-125 á Kvíabekk en hann er son- arsonur Gnýs 91-967. Dúnn er jafnvaxinn með hreinhvíta ull. I Svarfaðardal var Kubb- ur 98-562 á Göngustöðum talinn bestur en hann er keyptur frá Holti í Þist- ilfirði, sonur Varpa 97-717 sem er undan Kúnna 94- 997. Kubbur er ágædega gerður og með mjög vel holdfýlltan afturpart. A Arskógsströnd var Einar 98-468 í Brimnesi dæmdur bestur en hann er sonarsonur Skjanna 92- 968. Einar hefur þykkan bakvöðva og hreinhvíta og góða ull. í Amameshreppi var tal- inn bestur Kópur 98-351 í Litla-Dunhaga, sonur Hnoðra 97-344, og þar með sonarsonur Frama 94- 998, en Hnoðri dæmdist besti hrútur í Amames- hreppi 1998. Kópur er smár en vel gerður og með fíngerða, hreinhvíta ull. Að venju vom margir vel gerðir hrútar dæmdir í Skriðuhreppi og vom Stað- arbakkahrútar þar mjög 24 - FREYR 4-5/2000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.