Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.2000, Blaðsíða 47

Freyr - 01.05.2000, Blaðsíða 47
Kjötmatið haustið 1998 Nokkrar niðurstöður úr uppgjöri fjárræktarfélaganna s rið 1998 var kindakjöt hér á landi metið eftir nýjum reglum. Þessar nýju reglur byggja á þeim grunni sem kjötmat í öllum nálægum löndum gerir og hefur í umræðu oft verið nefnt EUROP mat, með tilvísun til sam- ræmdra reglna hjá Evrópusam- bandinu um þetta. Meginástæða breytinganna var að fá betri greiningu á kjötinu þannig að markaðsfærsla þess geti verið markvissari. Ein af röksemdunum fyrir umræddum breytingum var einnig að með breyttu mati fengjust niðurstöður sem nýst gætu bændum miklu betur í ræktunarstarfi sínu en upplýsingar úr eldra kjötmati gerðu. Þetta hefur þegar rækilega verið staðfest með úrvinnslu gagna úr kjötmatinu ffá haustinu 1998. Þær niðurstöður, sem þegar liggja fyrir, segja að með skipulegri nýtingu á þessum upplýsingum er mögulegt að ná umtalsverðum ræktunarárangri á skömmum tíma. Allir munu geta verið sammála um að íslensk dilka- kjötsífamleiðsla þarfnast þess. Þess vegna hlýtur að vera mikilvægt að miðla sem mest þeim niðurstöðum sem þama fást til þess að fá bændur til að velta þeim fyrir sér og nýta þá þekkingu sem þannig fæst í eigin ræktunarstarfi. Við framkvæmd á matinu haustið 1998 komu að vísu fram ýmsir eðli- legir byijunarannmarkar enda tæpast hægt að ætlast til að full samræming í framkvæmd á matinu næðist í upphafi. Til að markmið matsins gagnvart markaðsstarfi náist er samt algert forgangsverkefni að full samræming náist sem allra fyrst. Með því að bera saman niðurstöður á milli sláturhúsanna um matið og eftir Jón Viðar Jónmundsson, Bænda- samtökum íslands fallþunga í viðkomandi gæðaflokkun má fá nokkra hugmynd um framkvæmd á matinu á hverjum stað. Þannig skoðun á gögnum bendir til að í sláturhúsunum í Borgamesi og á Höfn hafi átt sér stað ákveðið ofmat gagnvart vöðvafyllingu í samanburði við önnur sláturhús. Til að vinna úr upplýs- ingum úr kjötmatinu er nauðsynlegt að breyta mat- inu yfir á tölulegan skala sem leyfir útreikning á meðaltalstölum. Eins og margir þekkja hefur þetta verið gert með því að fella matið að samfelldum tölulegum skala þar sem gert er ráð fyrir að fyrir hendi séu allir und- irflokkar eins og reglugerð gerir ráð fyrir að megi nota þó að slíkt sé ekki gert hér á landi. Þannig verða tölugildi í mati fyrir vöðvafyllingu gerð, (en þessi tvö hugtök em notuð jöfnum höndum) 2 fyrir P flokk, 5 fyrir O flokk, 8 fyrir R, 11 fyrir U og 14 fyrir E. Fyrir fituflokkun verða talnagildin því 2 fyr- ir fituflokk 1, 5 fyrir fituflokk 2, 8 fyrir fituflokk 3,9 fyrir fituflokk 3+ (sem er eini und- irflokkur sem notaður er), 11 fyrir fituflokk 4 og 14 fyrir fituflokk 5. I töflu 1 hafa niðurstöður úr mat- inu sem fram koma í skýrslum fjár- ræktarfélaganna verið dregnar sam- an í meðaltalstölur eftir hémðum fyrir öll lömb sem hafa slíkar upp- lýsingar í fjárræktarfélögunum, en þetta eru samtals rúmlega 225 þús- und föll sem slíkar upplýsingar em fyrir hendui um. Vegna þess sem að framan segir er varhugavert að draga miklar frekari ályktanir af Tafla 1. Meðaltal úr kjötmati í fjárræktarfélögunum haustið 1998 í einstökum sýslum. Sýsla Fjöldi Gerð Fita Kjósarsýsla 48 6,98 7,23 Borgarfjörður 5139 6,75 5,78 Mýrasýsla 7077 7,09 5,84 Snæfellsnes 11472 7,41 6,35 Dalasýsla 15002 6,34 6,40 Barðastrandas 6653 6,55 6,81 V-ísafj. 4063 6,24 7,05 N-ísafj. 1806 6,36 7,22 Strandasýsla 13117 6,62 6,15 V-Húnav. 16883 6,38 5,94 A-Húnav. 8543 6,62 6,35 Skagafjörður 17923 6,60 6,32 Eyjafjörður 11680 6,23 6,21 S-Þingeyj. 22285 6,21 5,53 N-Þingeyj. 16951 6,77 7,16 N-Múlas. 19711 5,63 5,73 S-Múlas. 5768 5,97 6,18 A-Skaftaf. 10535 7,26 5,83 V-Skaftaf. 12915 6,76 5,60 Rangárv. 7497 6,73 6,45 Amessýsla 10417 6,68 6,34 Landið 225485 6,52 6,16 FREYR 4-5/2000 - 47
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.