Bændablaðið - 17.04.2007, Qupperneq 11
Bændablaðið | Þriðjudagur 17. apríl 200711
Sonur minn sem býr fyrir sunn-
an hringdi fyrir rúmu ári og sagði
sig langa í svið. Það var verið að
elda svið í næstu íbúð, sonur minn
veit að það eru hvorki salmonella
né kílapestarhausar sem vaxa á
fénu hér fyrir austan, þó merkingar
umbúða gefi annað til kynna.
Þetta hafði ég í huga, rétt fyrir
jólin var ég í búð og viti menn, sé
ég þá ekki í kæliborðinu hausinn
af honum Kjamma mínum undan
henni Kápu. Ég þekkti strax vanga-
svipinn og ákvað að nú skyldi
sonur minn svið fá.
Ef ég hefði keypt heimsendingu
á hausnum þá hefði það kostað
3600 kr.
Þegar ég sendi Kjamma í slát-
urhús fékk ég fyrir slátrið af honum
90 kr., en slátur af lambi er: a)
hausinn, b) lappirnar, c) blóðið ca.
1 lítri, d) mörinn ca. 1 kg, e) pung-
urinn, f) hjartað, g) lifrin, h) nýrun,
i) þindin, i) hálsæðar ofl.
Ég áætla að hausinn sé 1/3 af
slátrinu og er það ríflega áætlað. Ég
bóndinn hef þá fengið 30 kr fyrir
hausinn af Kjamma, mér reiknast
til að minn hlutur sé 3,2% af verði
haussins út úr búð. Ef ég tek flutn-
ings- og umbúðakostnað með þá er
minn hlutur 1,56% af heildarverð-
inu en hlutur ríkisins í vsk 16%.
Einnig fékk ég beingreiðslur frá
ríkinu til að framleiða hausinn af
Kjamma, í mínu tilfelli voru það
32 kr. Ef ég hefði gefið hausinn af
Kjamma og ríkið ekki lagt á vsk,
þá hefði hann samt kostað 788 kr.
út úr búð.
Oft sér maður eitt lambslæri í
búðarborði og það í lágvöruverðs-
verslunum sem kostar nánast jafn-
mikið og bóndinn fær fyrir lambið
allt með húð og hári.
Ég tel það hljóti að vera Hagfræði
Andskotans (nafn á grein um sama
efni er birtist í Morgunblaðinu 22.
desember 2005) að komast að því
að hátt matvælaverð sé bara bænd-
um að kenna, þó að það sé að sjálf-
sögðu alltof hátt.
Smáhugleiðingar að lokum.
Eins og sjá má af framansögðu þá
er hlutur flutningsaðila í pakkanum
hátt í helmingur af heildarverðinu .
Stjórnvöld gerðu okkur á lands-
byggðinni ljótan grikk þegar þau
lögðu niður Skipaútgerð ríkisins,
þar spöruðu þau fimmeyringinn en
hentu krónunni með því að setja
alla flutninga á vegina. Einnig er
hlutur sláturleyfishafa og verslunar
nokkuð hátt hlutfall í heildarverði
haussins, en taka verður tillit til
þess að ekki má slátra kind til sölu
nema í hátækni sláturhúsi sem
aðeins er notað smá hluta úr árinu.
Vafalaust er ég haldinn skítlegu
eðli, slíkt eðli er vel þekkt í minni
ætt, en ég ætla stjórnvöldum svo
illt að þessar ströngu kröfur séu
ekki vegna umhyggju stjórnvalda
um neytendur heldur skal ekki ein
einasta kind fara framhjá þessum
snarvitlausu fjárfestingum.
Ég tel að stjórnvöld hafi langa
reynslu í slæmum lagasetningum,
má þar nefna píningsdóm frá 1490.
Átti ekki tilgangurinn að vera sá að
stemma stigu við förumönnum og
flökkulýð? En í raun var verið að
setja megnið af þjóðinni í ánauð til
mörg hundruð ára. Hvað um þjóð-
lendulögin, var þeim ekki ætlað
að skerpa landamerki jarða inn til
landsins gagnvart væntanlegum
þjóðlendum? En í raun er verið að
hirða þinglýstar eignir af jarðeig-
endum í stórum stíl.
Ekki má gleyma lögunum um
stjórn fiskveiða, var ekki tilgang-
urinn að vernda fiskistofna og
treysta á byggð í landinu? Hvorugt
hefur gengið eftir, í raun snerust
lögin um markaðsvæðingu sjáv-
arútvegsins og þjófnað, þar sem
veiðirétturinn er tekinn af jörðum
og settur á báta, án allra heimilda.
Sigurður Filippusson bóndi
Dvergasteini
Allt að
90% fjármögnun
*Verð miðast við beina sölu
Nýjum vörulista
verður dreift í næstu viku
Ég keypti hausinn hann kostaði 933 kr. þar af vsk 115 kr.
Ég keypti pakka til
að senda hann í hann kostaði 145 kr. þar af vsk 29 kr.
Ég keypti flutning
með bíl suður hann kostaði 847 kr. þar af vsk 167 kr.
Samtals 1925 kr. þar af vsk 311 kr.
Kjammi undan henni Kápu
Opið hús á Reykjum!
Á Sumardaginn fyrsta verð-
ur hið árlega opna hús hjá
Landbúnaðarháskóla Íslands á
Reykjum í Ölfusi. Þessi dagur á
Reykjum hefur verið af sumum
kallaður þjóðhátíð garðyrkjunn-
ar á Íslandi. Í ár eru það nem-
endur garðyrkjubrauta skólans
sem standa fyrir þessum degi.
Öllum er boðið að heimsækja
skólann frá kl. 10:00 – 18:00 og
fjölbreytt dagskrá verður í boði. Í
aðalbyggingu kynna ýmis fyrirtæki
starfsemi sína og hægt verður að
njóta gróðursins í garðskálanum
og bananahúsinu. Í verknámshúsi
kynna nokkur fyrirtæki starfsemi
sína og pottaplöntuhúsið með hinu
glæsilega pottaplöntusafni skólans
verður opið. Þá verða kaffiveit-
ingar í matsal skólans og mark-
aðstorg með garðyrkjuafurðir, svo
sem grænmeti, plöntur og fleira.
Skátaleiktæki verða á útisvæð-
inu. Nám við Landbúnaðarháskóla
Íslands verður einnig kynnt í máli
og myndum.
Kl. 14:30 hefst hátíðardag-
skrá í garðskálanum, en þar verð-
ur nýr samstarfssamningur um
Grænni skóga undirritaður, Guðni
Ágústsson landbúnaðarráðherra
afhendir Garðyrkjuverðlaunin 2007
og forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar
Grímsson, afhendir umhverfis-
verðlaun Hveragerðisbæjar. Boðið
verður upp á tónlistaratriði. Dag-
urinn er haldinn í samvinnu við
Hveragerðisbæ.
Takið daginn frá og fagnið sumr-
inu á Reykjum og í Hveragerði, bæ
grósku og gróðurs.
Frekari upplýsingar: Ingimar
Ingimarsson formaður nemenda-
félagsins á svæðinu, í síma 693
3929.