Bændablaðið - 17.04.2007, Blaðsíða 15
Bændablaðið | Þriðjudagur 17. apríl 200715
Mengun í íslenskum jarðvegi er
mun meiri og algengari en ætla
mætti og ljóst að mörg verkefni er
varðar jarðvegsmengun bíða fag-
manna í framtíðinni. Umfang er þó
ekki að öllu leyti þekkt. Hreinsun
er kostnaðarsöm og felur í sér
mörg stig, svo sem áhættugrein-
ingu, hreinsunaraðgerðir, lokamat,
vöktun, auk mats og bóta fyrir
skaða eða tjón sem mengunin veld-
ur, beint eða óbeint.
Landbúnaðarháskóli Íslands
og University of Aberdeen í sam-
starfi við Umhverfisstofnun standa
að námskeiðinu Mengun í jarðvegi
og mótvægisaðgerðir dagana 7. til
9. maí næstkomandi í húsakynnum
Landbúnaðarháskólans á Keldna-
holti og verður Graeme Paton frá
Háskólanum í Aberdeen leiðbein-
andi ásamt fleirum frá þeim skóla.
Námskeiðið er ætlað fyrir fagfólk,
eftirlitsaðila, sérfræðinga á verk-
fræðistofum og ráðgjafa sem koma
að umhverfismálum og aðra sem
fjalla um mengunarmál.
Ólafur Arnalds hjá Landbúnað-
arháskóla Íslands segir að jarðvegs-
mengun sé sérstakt og stórt fræðasvið
í Evrópu og í álfunni sinni því margir
fræðimenn, „Við Íslendingar höfum
ekki þurft að sinna þessu málefni af
sömu hörku og þar er gert, landið er
strjálbýlt og við höfum sem betur fer
búið við minni vandamál af völd-
um jarðvegsmengunar en nágrannar
okkar í Evrópu,“ segir Ólafur. Bendir
hann þó á að landið sé ekki alveg
laust við jarðvegsmengun, en hún
sé staðbundnari en í Evrópulöndum.
Jarðvegsmengun sé t.d. þekkt hér á
svæðum þar sem bandaríski herinn
hafði umsvif, í kringum olíubrennslur,
sorpeyðingarstaði og víðar.
Brýnt að huga að þessum málum
Hann vekur athygli á því að nú sé
væntanleg sérstök Evróputilskipun
um varnir gegn mengun í jarðvegi.
Reglur varðandi mengun í jarðvegi
og hreinsun séu sífellt að aukast í
Evrópu, sem og rannsóknarskyldur
og kvaðir í þessum efnum, þannig
megi til að mynda núorðið víða ekki
byggja á svæðum fyrr en athugað
hefur verið með hugsanlega mengun í
jarðvegi. Reglur Evrópusambandsins
í þessum efnum hafa í auknum mæli
verið teknar upp hér á landi, segir
Ólafur og því brýn þörf á að menn
hugi að þessum málum í tíma.
Ólafur nefnir að töluverð mengun
í jarðvegi geti fylgt landbúnaði sem
m.a. geti safnast fyrir í lækjum, ám
og vötnum. Hann segir að einnig geti
safnast fyrir mengun í jarðvegi út
frá áburðarnotkun og þá hafi menn í
nokkrum mæli áður fyrr brennt plasti
heima við bæi. „Það er lítið vitað
um hvaða áhrif þetta hefur haft, því
það hefur ekki verið rannsakað, en
vissulega er um að ræða staðbundna
mengun ef hún er fyrir hendi.“
Nýjar aðferðir að ryðja sér til rúms
Sérfræðingarnir sem væntanleg-
ir eru frá Háskólanum í Aberdeen
hafa mikla reynslu við greiningu á
mengunarvandamálum í jarðvegi.
„Þeir hafa sérhæft sig á þessu sviði
og vita hvernig bregðast á við og
leysa úr málum sem upp koma,“
segir Ólafur. Nýjar aðferðir hafa
verið að ryðja sér til rúms segir
hann og nefnir í því sambandi ör-
veirur sem notaðar eru til að safna
saman mengunarefnum í jarðvegi.
„Það hafa orðið miklar framfarir
á þessu sviði undanfarin ár og full
ástæða til að okkar sérfræðingar fái
tækifæri til að fylgjast með þróun
mála,“ segir Ólafur.
Námskeiðinu er skipt í tvo hluta,
í þeim fyrri er sjónum beint að sýna-
töku og mati á mengunarhættu en
fjallað verður um lögfræðilegar hlið-
ar jarðvegsmengunar, helstu meng-
unarefni og mat á mengun, sýnatöku
af jarðvegi og jarðvegsvatni, meng-
unarlíkön og túlkun gagna sem og
um mengunarhættu og búsetu. Í
síðari hluta námskeiðsins er svo
fjallað um möguleika á líffræðileg-
um mótvægisaðgerðum, og þá tekið
fyrir mælitækni og aðgerðir, örveir-
ur í mótvægisaðgerðum og líkön og
skipulag mótvægisaðgerða.
Frestur til að skrá sig á nám-
skeiðið rennur út 18. apríl, en hægt
er að skrá þátttöku hjá Ólafi Arnalds
í Landbúnaðarháskólanum og einnig
á vefsíðu skólans, lbhi.is undir nám-
skeið sem og með tölvupósti á net-
fangið endurmenntun@lbhi.is.
Síminn stækkar
GSM-kerfi sitt á
hringveginum
Fyrsta áfanga verkefnis sem
felst í því að klára GSM-væð-
ingu hringvegarins lauk 16.
mars þegar starfsmenn Sím-
ans kveiktu á nýjum sendum
sem þekja 33,5 kílómetra
vegarkafla. Þau svæði sem
um er að ræða eru Streiti,
Álftafjörður, Hvalnesskriður,
Papafjörður-Almannaskarð
á Austurlandi og Vatnsdalur í
Húnaþingi.
Verkefnið hófst 12. jan-
úar þegar Fjarskiptasjóður og
Síminn undirrituðu samning,
að undangengnu útboði, um að
klára GSM-væðingu hringveg-
arins og fimm fjölfarinna fjall-
vega. Verkefnið í heild sinni
mun taka 12 mánuði og á þeim
tíma verður 500 kílómetra veg-
arkafli kominn í GSM-sam-
band. Einnig verður settur upp
sendir í Flatey á Breiðafirði.
Næsti áfangi er Norðurár-
dalur-Öxnadalur og Vatnsnes-
fjall sunnanvert. Stefnt er að
því að þeim áfanga ljúki í júlí.
Ráðstefna um
háhraðafjarskipti í
dreifbýli á Íslandi
Skýrslutæknifélag Íslands stend-
ur fyrir ráðstefnu á Akureyri
föstudaginn 4. maí n.k. þar sem
umfjöllunarefni verður háhraða
fjarskipti í dreifbýli á Íslandi.
Ráðstefnan fer fram á Hótel
KEA og stendur frá 9:30-15:30.
Hluti íslensku þjóðarinnar hefur
ekki átt kost á háhraða fjarskipt-
um en við sölu Símans ákvað rík-
isstjórnin að verja hluta af sölu-
andvirðinu til að bæta fjarskipti til
íbúa í dreifbýlinu.
Markmiðið með þessari ráð-
stefnu er að upplýsa um stöðu
mála út frá sjónarhóli notenda,
fjarskiptafyrirtækja og ráðamanna.
Meðal fyrirlesara verða full-
trúar frá fjarskiptafyrirtækjunum,
fulltrúi frá fjarskiptasjóði, fulltrúar
stjórnmálaflokkanna og fulltrúar
notenda.
Skráning verður auglýst síðar.
Nánari upplýsingar má fá á vefsíðu
Skýrslutæknifélags Íslands (www.
sky.is), netfanginu sky@sky.is eða í
síma 553 2460
Námskeið um jarðvegsmengun og mótvægisaðgerðir
Mengun í íslenskum jarðvegi meiri en ætla mætti