Bændablaðið - 17.04.2007, Page 26
Bændablaðið | Þriðjudagur 17. apríl 200726
Á markaði
Áætlað er að mjólkurfram-
leiðsla í Bretlandi geti minnkað
um 900 milljón lítra, eða 7%,
á næstu tveimur árum. Það
er spá stofnunarinnar Milk
Developement Counsil, (MDC).
Ástæða þessa er sú að þess er
vænst að 16% mjólkurframleið-
enda í Bretlandi hætti, á sama tíma
og einungis fimmtungur þeirra
stefnir að því að stækka bú sín.
Að baki skýrslu MDC er við-
horfskönnun meðal breskra kúa-
bænda. Í henni kemur einnig fram
að margir þeirra telja að staða
þeirra í framtíðinni sé óviss og að
þeir sjái fram á erfiðari tíma.
Margir bændanna telja sig
þurfa að endurnýja búrekstur
sinn verulega á sama tíma og þeir
sjá fram á tekjusamdrátt á næstu
árum, að sögn Helen Eustace,
hagfræðings hjá MDC í viðtali
við Farmers Weekly.
Viðhorfskönnun MDC sýndi
að öðru leyti eftirfarandi:
• 12% af mjólkurframleiðend-
um, með yfir 1,2 milljón lítra
mjólkurframleiðslu að jafnaði,
stefna að því að hætta búskap.
• Meira en helmingur bænda
telja sér ekki fært að búa eftir
að ný lög um umhverfismál
tóku gildi.
• Meira en þrír af hverjum fjór-
um bændum stefna að því
að fjárfesta fyrir minna en
275.000 d.kr., um 3 millj. ísl.
kr., í búrekstri sínum á næstu
fimm árum en einungis 3%
hyggjast fjárfesta fyrir meira
en 1,1 millj. d.kr., um 12 millj.
ísl. kr. á sama tíma.
LandbrugsAvisen
Spáð samdrætti í mjólk-
urframleiðslu í Bretlandi
Innflutningur á kartöflum og grænmeti í febrúar 2007
magn, kg fob, kr cif, kr
Kartöflur 50.900 2.970.110 3.270.996
Tómatar 4.577 532.779 693.501
Nýtt blómkál og
hnappað spergilkál
27.097 2.512.096 3.174.791
Nýtt hvítkál 60.150 1.028.160 1.395.133
Nýtt spergilkál 18.581 1.941.429 2.661.488
Jöklasalat 86.830 8.721.741 12.476.442
Annað nýtt salat 198.258 27.459.970 40.036.411
Gulrætur og næpur 68.841 5.246.634 8.250.937
Nýjar gulrófur 12.519 433.990 487.380
Gúrkur 43.643 7.590.219 9.753.683
Ný paprika 104.998 18.060.393 21.917.360
Ný jarðarber 23.020 11.362.796 14.430.877
Nýir sveppir 8.923 2.499.873 3.628.303
Árið 2002 var fyrsta fram-
kvæmdaár samnings um starfs-
skilyrði garðyrkjunnar. Myndin
sýnir að neysla á íslenskum gúrk-
um og tómötum á íbúa hefur
aukist umtalsvert en framleiðsla
og neysla á innlendri papriku
hefur heldur dregist saman. Á
sama tíma hefur innflutning-
ur dregist saman á tómötum en
aukist á gúrkum og papriku.
Innvigtun mjólkur febrúar 2007
Bráðabirgðayfirlit
Breyting frá fyrra ári, %
Mjólkurstöðvar/
samlög febrúar
síðustu
mánuðir
síðustu 12
mánuðir febrúar
3
mánuðir
12
mánuðir
MS Reykjavík 1.157.926 3.538.729 13.820.306 1,97 1,71 5,38
MS Búðardal 556.730 1.808.670 7.051.136 3,51 8,26 30,53
MS Ísafirði 102.432 337.364 1.527.038 13,02 13,84 9,56
MS Blönduósi 319.787 974.312 4.012.628 3,97 6,26 2,16
Ms. Kaupfélags
Skagfirðinga
904.366 2.729.673 10.889.338 6,88 8,92 6,09
MS Akureyri 2.370.014 7.299.137 29.784.909 14,09 15,14 10,14
Ms. Vopnafirði 0 0 115.078 -100,00 -100,00 -84,94
MS Egilsstöðum 376.057 1.121.866 4.327.666 38,77 32,93 23,77
MS Selfossi 4.051.654 12.361.672 47.165.463 7,66 7,89 9,47
SAMTALS 9.838.966 30.171.423 118.693.562 8,34 9,02 8,15
Af vettvangi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar
Reynt að koma Doha-viðræðunum í gang á ný
Lítið hefur verið um formlega fundi
innan WTO síðan sl. sumar. Þó var
fundur í landbúnaðarnefndinni nú í
lok mars. Aftur á móti hefur mikið
verið fundað í ýmsum ríkjahópum
og eins hafa forystumenn WTO
farið um heiminn. Svokallaður Osló
6 hópur kom saman í fyrsta skipti í
haust en hefur alls fundað þrisvar
sinnum. Í honum eru Noregur,
Kanada, Kenya, Chile, Indonesía
og Nýja-Sjáland. Þetta eru ríki með
mjög mismunandi hagsmuni en
þau munu vinna, eftir því sem næst
verður komist, að því að auka skiln-
ing á mismunandi sjónarmiðum í
viðræðunum. ESB og USA eru sögð
vinna að samkomulagi. Mandelson
framkvæmdastjóri ESB hefur látið
þau orð falla að ESB geti fallist á
4% af tollalínum sem viðkvæmar
vörur og 54% meðaltollalækkun.
Þetta er þó ekki formlegt boð að
hálfu ESB. Niðurskurður á beinum
framlögum til landbúnaðar stendur
verulega í Bandaríkjamönnum sem
hafa nýlega afgreitt „Farm bill“
sem er þeirra landbúnaðarsamning-
ur. Mikill kosningaskjálfti er þar í
landi fyrir komandi forsetakosning-
ar virðast þeir mjög ósveigjanlegir.
Tillögur G10 eru langt frá því sem
þessir aðilar eru að ræða sín í milli
en þau kynntu sín sjónamið m.a. á
fundi G33 landa í Indónesíu í mars.
Þar var enn undirstrikað að G10
muni ekki fallast á tollaþak.
Þessu til viðbótar eru ýmsar
breytingar í G10 löndunum. Fyrst
má auðvitað nefna samning Íslands
og ESB um tollalækkun og aukna
tollkvóta. S-Kórea er á lokasprett-
inum að gera fríverslunarsamning
við Bandaríkin, sem tekur einnig
til landbúnaðarvara. Sá samningur
mun gerbreyta rekstrarumhverfi
bænda þar í landi, helst að græn-
metisframleiðsla geti staðist sam-
keppni við Bandaríska framleiðslu
en aðrar afurðir ekki. Japanir munu
hefja fríverslunarviðræður við
Ástralíu á þessu ári. Án efa munu
þær taka til landbúnaðarafurða,
óvíst hve víðtækt það verður þó.
Þessi tvö lönd eru núna greinilega
á fullu að keppa um stöðu á mörk-
uðum heimsins við Kína.
Talið er að stjórnvöld í Banda-
ríkjunum muni með vorinu leggja
fyrir þingið fjölda tvíhliða viðskipta-
samninga við önnur lönd til sam-
þykktar. Jafnframt munu þau biðja
þingið um framlengingu á samn-
ingsumboði fram á haust, en form-
lega fellur það niður í júní nk.
Þessi frestun samninganna
hentar ESB vel en þar vilja menn
bíða fram yfir forsetakosningar í
Frakklandi, þar sem kosið verður
22. apríl og 6. maí, áður en vinna
við tvíhliða viðskiptasamninga fer
á fullan skrið.
WTO hefur einnig mátt horfa
upp á að tímafrestir hafa ekki stað-
ist. Hvað Doha-viðræðulotuna
varðar er staðan hins vegar sú að
náist ekki samningar í sumar eða
haust þá eru nýir samningar innan
WTO úr sögunni að þessu sinni
og þá verða nýjar ríkisstjórnir og
nýir samningamenn á vegum aðild-
arlanda WTO að byrja upp á nýtt
um áramótin 2009-2010.
(Úr Internationella Perspektiv og frá fundi
fulltrúa bænda í G10 löndum í mars sl).
EB&ME
Prýðileg
páskasala
Prýðileg sala var á vörum
Norðlenska núna fyrir pásk-
ana og gildir það t.d. bæði um
grillkjöt og hangikjöt, að sögn
Sigmundar Hreiðarssonar,
vinnslustjóra Norðlenska á
Húsavík.
Salan á kjöti um páska tekur
yfirleitt mið af veðrinu. Ef góð-
viðri er um páska er mikil sala
í grillkjöti, en páskahret þýðir
meiri sölu í hangikjöti. Um
nýliðna páska var hvorttveggja
uppi á teningnum. Veður hefur
verið fádæma gott að undan-
förnu um allt land og margir
hafa þegar tekið fram grillin. En
góð sala í grillkjöti hefur þó ekki
dregið úr áhuga landsmanna á
hangikjötinu, nema síður sé.
„Páskasalan hefur verið
mjög góð og við getum ekki
annað en verið vel sáttir,“ segir
Sigmundur á vef félagins og
bætir við að sala Norðlenska í
nýliðnum mars hafi verið tölu-
vert meiri en í sama mánuði í
fyrra.
Innflutningur á grænmeti,
tonn
2002 2006
Tómatar 642 521
Gúrkur 193 273
Paprika 641 1110
Innflutningur á kjöti og ostum frá áramótum, kg
Nautakjöt 35.270
Alifuglakjöt 41.414
Svínakjöt 3.393
Aðrar kjötvörur af áðurtöldu 196
Samtals 80.273
Ostur 21.255
Meðal cif-verð á innfluttu nautahakki er 302 kr/kg og á ostum 744 kr/kg.
Stórfelld hækkun
á fiskimjöli
Samkvæmt verslunarskýrslum
Hagstofu Íslands hefur útflutnings-
verð á fiskimjöli hækkað mikið
frá áramótum 2005/2006. Í janúar
2006 var meðal fob-verð á öllu
fiskimjöli (kolmunnamjöli, síld-
armjöli, loðnumjöli, rækjumjöli og
öðru mjöli úr fiski, krabbadýrum
og lindýrum) 42 kr/kg. Loðnumjöl
var þá á 48 kr/kg. Í janúar 2007 var
meðal fobverð komið í 98 kr/kg.
Verð á loðnumjöli var þá komið í
97 kr/kg. Hækkunin frá sama tíma
árið í fyrra nemur því 130%.
Kr./kg fob
kg/íbúa
Breytingar á grænmetismarkaði frá 2002
2006
2002
Heildarneysla
grænmetis
2002 og 2006
Japanskir bændur krefjast þess að fá að framleiða sinn eigin mat.