Bændablaðið - 17.04.2007, Síða 35
Bændablaðið | Þriðjudagur 17. apríl 200735
áburðardreifarar
Tvær dreifiskífur úr ryðfríu stáli,
vökvastýring úr ökumannssæti,
kögglasigti, hárnákvæm dreifing, vandaður
og endingargóður drifbúnaður, auðveld og
þægileg notkun.
AMAZONE áburðardreifararnir eru löngu
landsþekktir fyrir afburða endingu og mikla
nákvæmni.
ÞÓR HF | Ármúla 11 | Lónsbakka | www.thor.is
Aukabúnaður á mynd: kastvörn
Skil á búreikningum vegna
ársins 2006 til Hagþjón-
ustu landbúnaðarins
Skil á búreikningum til Hagþjón-
ustu landbúnaðarins eru hluti af
árlegri hagtölusöfnun í landbún-
aði. Uppgjör búreikninga er
m.a. notað við gerð samninga
milli ríkis og bænda, við gerð
rekstraráætlana fyrir bændur,
búnaðarkennslu og margt fleira.
Búreikningar vegna ársins 2006
eru þegar teknir að berast til
Hagþjónustunnar. Einstaklingar
í rekstri geta skilað framtölum í
síðasta lagi 31. maí. Með hliðsjón
af því er best að búreikningar
berist Hagþjónustu landbúnaðar-
ins um svipað leyti en ekki síðar
en 20. júní.
Þegar senda á búreikning úr
dkBúbót til Hagþjónustunnar, er
valið Verkfæri í valröndinni og
síðan Gagnaflutningar-dkBúbót-
Hagþjónusta landbúnaðarins.
Þá er valið bókhaldstímabil og
ákveðið hvernig ganga á frá gögn-
unum. Best er að senda gögnin sem
viðhengi í tölvupósti á netfangið
hag@hag.is
Mikilvægt er að slá inn viðbót-
arupplýsingar sem ekki koma fram
í bókhaldinu. Hér er um að ræða:
Rekstrarform búsins, ársverk, tún-
stærð, stærð grænfóðurs- og korn-
akra, aldur bænda, lömb til nytja,
greiðslumark og heyuppskeru í FE.
Hafi ekki verið gert skattframtal í
forritinu er mikilvægt að fyllt sé út
bls. 4.08r2 (bústofnsblaðið) í fram-
tali 4.08 en þar koma fram upplýs-
ingar um bústofn.
Við þennan gagnaflutning birt-
ir forritið á skjánum samanlagðar
niðurstöðutölur nokkurra tekju-
lykla og því magni og þeim fjölda
sem tengjast þeim. Til þess að hægt
sé að senda reikninginn áfram þarf
að staðfesta (haka við) að upplýs-
ingar séu réttar.
Aðrir þættir sem búreikningur
þarf að uppfylla svo að hann sé
nothæfur í uppgjöri Hagþjónustu
landbúnaðarins eru:
1. Efnahagur og rekstur þurfa að
stemma.
2. Áburður, sem keyptur var og
gjaldfærður í bókhaldi fyrir lok
ársins 2006 (til nota á árinu
2007) þarf að bókfæra á lykil
2930 í kredit (án vsk.) og mót-
færa sem birgðir í debet á lykil
7530.
3. Fyrir búreikninga sem færðir
voru á sama hátt í árslok 2005
er nauðsynlegt að sá áburður sé
bakfærður á lykil 2930 í debet
og kredit á birgðir 7530. Með
því er tryggt að sú fjárhæð sem
eftir stendur á lykli 2930 hafi
einungis að geyma fyrirfram-
keyptan áburð sem keyptur var
á bókhaldsárinu.
4. Búreikningur þarf að innihalda
magn og/eða fjölda þess, sem
framleitt er á búinu sem ann-
aðhvort er selt eða notað heima.
Einnig er æskilegt að fram komi
magn helstu aðfanga, þ.e. fóðurs
(lyklar 3100-3260), áburðar og
sáðvöru (lyklar 3310-3390) og
eldsneytis (lyklar 3510-3520).
5. Undir liðnum „ársverk (mán)“ á
að skrá þann fjölda mánaða, sem
starfað var í fullu starfi við búið.
Hér er átt við bæði ábúendur
sjálfa og aðkeypt vinnuafl.
6. Undir liðnum „Heyuppskera
FE“ skal skrá heyuppskeru í
fóðureiningum, skipt á milli
rúlluheys, þurrheys og votheys.
Ef einhverjar spurningar
vakna má hafa samband við Ingi-
björgu Sigurðardóttur hjá Hag-
þjónustu landbúnaðarins í síma
433-7081.
Hagþjónusta landbúnaðarins hvetur bændur til að skila
búreikningum vegna rekstrarárs 2006 til stofnunarinnar.
Búreikningar eru mikilvægir í kjarabaráttu bænda og
t.d. undirstaða við gerð búvörusamninga
Búreikningar eru forsenda
við gerð rekstraráætlana
Þú hagnast á þátttöku!
Rekstur búsins mun ganga
betur og
Hagþjónustan
greiðir fyrir þitt
framlag!
Fullur
trúnaður ríkir í
meðferð gagna.
Til þeirra sem
færa bókhald í
DK-Búbót!
Búreikningar
Árið 2006
Frestur hefur nú verið framlengdur til 20. júlí n.k. Allar nánari
upplýsingar veitir Ingibjörg Sigurðardóttir í síma 433-7084.
Farsími 863 2583. Tölvupóstfang: ingibj@hag.is
Hagþjónusta landbúnaðarins,
Hvanneyrargötu 3, Hvanneyri, 311
Borgarnes. Sími 433-7081.