Bændablaðið - 08.07.2008, Blaðsíða 21

Bændablaðið - 08.07.2008, Blaðsíða 21
22 Bændablaðið | Þriðjudagur 8. júlí 2008 Á þessu ári kartöflunnar og ári hækkandi matvælaverðs líta menn í auknum mæli til þesssar- ar hógværu jurtar þegar finna þarf lausnir á fæðuvanda mann- kyns í framtíðinni. Kartaflan hefur verið lofsungin sem „gjöf af himnum“ og „brauð jarðar“ enda var hún mikil blessun fyrir almúgann í Evrópu þegar hún barst þangað. Þá upplifðu marg- ir fyrst þá tilfinningu að verða mettir. Stórskáldið norska, Knut Hamsun, hyllir kartöfluna í bók sinni GRÓÐUR JARÐAR sem Helgi Hjörvar þýddi. Þegar korn- akrarnir voru brunnir upp vegna þurrka hjá Ísak var allt undir kart- öflunum komið, en gefum skáld- inu orðið: „Hvernig var um kart- öflurnar? Voru þær bara kaffiteg- und frá framandi landi og hægt að vera án þeirra? O-kartaflan er óviðjafnanlegur ávöxtur, hún þrífst í þurrki, hún þrífst í vætu, hún vex. Hún lætur ekki veðrið á sig fá og þolir mikið, ef ofurlítið er að henni hlynnt af manninum, þá launar hún það fimmfalt aftur. Já, kart- aflan hefur ekki safa vínþrúgunn- ar, en hún hefur kjöt kastaníunnar, það er hægt að steikja hana eða sjóða hana og hafa hana til alls. Maðurinn getur verið brauðlaus, en hafi hann kartöflur er hann ekki matarlaus. Kartöfluna má steikja í heitri ösku og hafa til kvöldmatar, það má sjóða hana í vatni og hafa til morgunmatar. Hvað þarf hún í viðmeti? Lítið, kartaflan er nægju- söm, ein skál af mjólk, ein síld er nóg með henni. Ríkismaðurinn hefur smjör við henni, fátækling- urinn dýfir henni í örlítið salt á skál. Ísak gat á sunnudögum leyft sér að renna henni niður með einum rjómasopa úr mjólkinni úr henni Gullhyrnu. Vanmetin og blessuð er kartaflan!“. Með sínu alhliða næringargildi er kartaflan sem sköpuð fyrir okkur. Segja má að stór hluti írsku þjóð- arinnar hafi lifað á kartöflunni nán- ast einni saman áður en kartöflu- myglan eyðilagði uppskeruna árin 1845 og 1846 með afdrifaríkum afleiðingum, hungurdauða og land- flótta. Þrátt fyrir að dregið hafi úr hefðbundinni kartöfluneyslu með breyttum neysluvenjum og auknu framboði á alls konar hráefni til matargerðar er hún enn fastur hluti flestra máltíða hjá bæði ungum sem eldri. Kartaflan er síung og nýt- ingarmöguleikar hennar endalaus- ir. Hún er soðin með öllum mat, brúnuð með steikinni og bökuð eða í salati með grillmatnum. Hún er djúpsteikt sem „franskar kartöflur“ með kjúklingum, hamborgurum og steiktum fiski. Hún er í vax- andi mæli notuð í ljúffenga ofnrétti (báta, gratín) og salöt. Loks má nefna notkun hennar í flögur, skrúf- ur og strá sem brakandi snakk. Fyrstu kartöflur í Evrópu Talið er að kartaflan hafi borist eftir tveimur leiðum til Evrópu. Annars vegar kom hún frá Suður-Ameríku til Spánar um 1570 og barst þaðan um Ítalíu til Belgíu. Philippe de Sivry, héraðsstjóri í Mons í Belgíu, sendi árið 1588 kartöflur til hins fræga grasafræðings Clusiusar (Jules Charles de l’Ecluse) í Vín sem skráði niður lýsingu á þeim. Frá þessum spænska uppruna fór kartaflan um alla Evrópu sem grasafræðilegt fágæti. Um tveimur áratugum eftir að kartaflan barst fyrst til Spánar er talið að hún hafi borist til Englands frá Ameríku. Enski læknirinn og grasafræðing- urinn John Gerard lýsti henni þar árið 1596 og segir hana komna frá Virginíu í N-Ameríku. Fræðimenn eru sammála um að það fái ekki staðist því kartaflan var ekki komin til N-Ameríku á þessum tíma. Goðsagnir hafa tengt aðalsmenn- ina og landkönnuðina Sir Francis Drake og Sir Walter Raleigh við komu kartöflunnar til Evrópu en það þykir nú ólíklegt að þeim beri sá heiður. Francis Drake sá kart- öflur í Chile árið 1578 en hann kom ekki til Englands fyrr en árið 1580 og er því nær útilokað að hann hafi komið með lifandi kart- öflur með sér. Auk þess er til lýs- ing grasafræðingsins Clusiusar árið 1581 á þeim plöntum sem Drake hafði með sér og er kartöfluna þar ekki að finna. Sagt er að Walter Raleigh hafi séð og tekið með sér kartöflur í einni ferða sinna en ekki er vitað til þess að hann hafi farið þar sem kartöflur var að finna á þeim tíma. Í einhverjum tilvikum má skýra óvissu í gömlum heim- ildum með ruglingi við annan svip- aðan, en þó óskyldan, jarðarávöxt, sæthnúða, sem upprunnir eru frá svæðinu kringum Karabíska hafið. Sæthnúðar heita á ensku „sweet potato“ eða sætar kartöflur og er kartöfluheitið „potato“ (á ensku) og hinar ýmsu myndir þess s.s. potet (á norsku), potatis (á sænsku), patetur o.fl. reyndar leitt af heiti þessa jarðávaxtar. Á spænsku heita sæthnúðar „batatas“ og kartöflur „patatas“ sem er í raun samruni á gamla Inkaheitinu yfir kartöfluna, „papa“, og sæthnúðaheitinu „bata- tas“. Aðrar algengustu orðmyndirn- ar sem notaðar eru um kartöfluna eru annars vegar samlíkingin við epli, s.s. jarðepli, pomme de terre (á frönsku) og aardappel (á hollensku) og hins vegar samlíkingin við jarð- sveppi (á ensku truffles) sem á ítölsku hétu tarfufi eða tartufoli og varð að tartuffolo (á ítölsku, nú reyndar patata), cartoufle (gamalt heiti á frönsku), kartoffel (á dönsku og þýsku) og kartafla hjá okkur. Fyrstu kartöflur á Íslandi Birni Halldórssyni, prófasti í Sauðlauksdal við Patreksfjörð, var yfirleitt eignaður heiðurinn af því að hefja kartöflurækt á Íslandi og er hann vel að þeim heiðri kom- inn. Hann mun þó ekki hafa verið sá fyrsti sem setti niður kart- öflur í íslenska mold. Í 6. bindi af Sögu Íslendinga (1751-1770) eftir Þorkel Jóhannesson kemur fram að hinn þýskættaði sænski barón, Friederich Wilhelm Hastfer, setti niður kartöflur á Bessastöðum vorið 1758. Heimild Þorkels gæti m.a. verið bréf Magnúsar Gíslasonar, amtmanns, til Rentukammersins (danska fjármálaráðuneytisins) dags. 28. september 1758, þar sem fram kemur að kartöflur (pota- ters) hafi verið settar niður og að Hastfer muni skýra nánar frá því eða bréf Hastfers sjálfs til danskra stjórnvalda, ritað á Bessastöðum 19. september 1758 þar sem hann segist hafa reynt ræktun kartaflna. Björn pantaði reyndar kartöflur 1758 en þær komu ekki fyrr en 6. ágúst 1759 frá Kaupmannahöfn og setti Björn þær í ker ásamt mold og fékk smá hnýði undan þeim í októ- ber. Þessi ber setti Björn niður 1760 ásamt nýju útsæði sem hann fékk með skipinu þ. 4. júní. Prófastur Guðlaugur Þorgeirsson í Görðum á Álftanesi og Jón Bjarnason, prestur á Ballará á Skarðströnd, settu einn- ig niður kartöflur á þessum árum. Áðurnefndur Hastfer barón kom hingað 1756 á vegum danskra stjórnvalda til að setja upp fjárrækt- arbú við Elliðavatn. Hafði hann keypt kynbótahrúta í Svíþjóð og kom hingað með 10 hrúta af ensku kyni ásamt sænskum fjárhirði, Bottschach að nafni, er starfað hafði á fjárbúi Jonas Alströmers í Svíþjóð. Árin 1758 og 1759 komu fleiri hrútar, m.a. spænskir Merínó hrútar, og er talið að hrútar þess- ir hafi borið með sér fjárkláða og verið valdir að fyrri fjárkláðaplág- unni er lauk árið 1779. Það er einmitt áðurnefndur Jonas Alströmer sem talinn er eiga heið- urinn af því að útbreiða kartöflu- rækt í Svíþjóð þótt aðrir hafi reynd- ar áður verið farnir að rækta kart- öflur þar í landi. Jonas Alströmer var sænskur konsúll í London þar til hann árið 1723 yfirgaf England og hélt til Frakklands og Hollands. Alströmer tókst að taka með sér til Svíþjóðar ýmsar vörur og tæki, einkum til vefnaðar, ásamt sérþjálf- uðum verkamönnum frá þessum löndum þrátt fyrir að slíkt væri bannað. Kom hann upp vefn- aðarverksmiðju í Alingsås og fjár- ræktarbúi í tengslum við hana með enskum og spænskum hrútum. Hinir innfluttu verkamenn voru vanir kartöflum til matar og lét hann þá sem hann fékk í Frakklandi hafa með sér kartöflur. Þær voru rauðar og voru komnar af þeim sem upphaflega komu til Spánar. Árið 1724 hóf hann kartöflutilraunir á býli sínu Nolhaga. Árið 1727 gaf Alströmer út rit um sauðfjárrækt ásamt viðauka um kartöflur. Til gamans má geta þess að íslensk- ir garðyrkjubændur rækta hér jurt sem heitir sóllilja en latneska ætt- kvíslarheiti hennar er Alstroemeria. Heitir hún í höfuðið á syni Jonas Alströmer, Clas, sem um tíma var nemi hjá sænska grasafræðingn- um Linné og ferðaðist víða á hans vegum. Friederich Hastfer var fæddur árið 1722 og var hann því aðeins 34 ára er hann kom fyrst til Íslands. Hann hafði þá þegar getið sér orð sem sérfræðingur í sauðfjárkynbót- um. Árið 1752 kom út bók eftir hann í Svíþjóð um sauðfjárrækt sem hann tileinkar Jonas Alströmer og hafði hann því augljóslega kynnst starfi Alströmers í Alingsås en Jonas Alströmer deyr árið 1761. Í það minnsta hefur hann vart kom- ist hjá því að lesa um kartöflur í riti Alströmers frá 1727. Hastfer minnist þó ekki á kartöflur í skrif- um sínum frá 1757 þar sem hann fjallar um ástandið á Íslandi og um leiðir til úrbóta (Upartiske Tanker om Iislands Nerværende Tilstand Applicerede til dets Forbedring Forfattede udi Eet Fremmed, og nu Oversadte udi Det Danske Sprog Anno 1757). Þar veltir hann hins vegar fyrir sér korntegundunum, hveiti, byggi, rúgi og höfrum og möguleikum þeirra hér á landi. Hastfer er gagnrýninn á einokun- arverslunina og hjá honum kemur fram einlægur vilji til að bæta hag landsins og samúð með landsmönn- um vegna bágra kjara þeirra. Í bréfi því sem Hastfer skrif- ar yfirvöldum og dagsett er í Kaupmannahöfn 28. apríl 1757 biður hann um leyfi til að búa á Bessastöðum og nýta þá 5 afgirtu garða sem þar eru til að rækta tóbak, hör og kartöflur (Potatoes). Að afloknu verkefni Hastfers á Íslandi skrifar hann yfirvöldum í Kaupmannahöfn bréf í febrúar 1761 og segir frá væntanlegri skýrslu sinni sem muni innihalda 5 kafla um fjárræktina en hann leyfi sér að bæta við 6. kaflanum er fjalla muni um hina velheppnuðu kartöflurækt en þriggja ára reynsla sannfæri hann um að hún muni verða til hagsbóta fyrir landið eins og fjár- ræktarbúin. Sést hér samsvörun við rit Alströmers frá 1727. Þegar skýrsla Hastfers kom út það sama ár 1761 voru þar einungis 5 kaflar en 6. kaflann vantaði. Hastfer lést í Kaupmannahöfn árið 1768 aðeins 46 ára að aldri. Þegar saga kartöflunnar er skoðuð vekur það athygli hversu snemma hún berst til Íslands. Kart- öflur voru þó nokkuð ræktaðar í Frakklandi og Þýskalandi fyrir 1700 en til Danmerkur berst hún fyrst á fyrri hluta 18. aldar. Tveir atburðir eru þar einkum nefndir. Sá fyrri var 1719-20 þegar land- flótta fjölskyldur franskra húgen- otta settust að í Fredericia á Jót- landi og ræktuðu þar kartöflur til eigin nota. Hinn atburðurinn var 1759-62 þegar þýskar fjölskyldur frá Rínarlöndum (Pfalz, Darmstadt og Württemberg) settust að á jósku heiðunum að frumkvæði Friðriks fimmta Danakonungs. Þessar fjöl- skyldur höfðu með sér kartöflur og spruttu þær ágætlega í hinum rýra jarðvegi heiðanna. Í Danmörku gengu þessir Þjóðverjar undir nafn- inu „kartoffeltyskerne“. Á Sjálandi voru kartöflur fyrst settar niður Úr sögu jarðepla Íslensku afbrigðin þrjú sem varðveitt eru í norræna genbankanum, Rauðar íslenskar, Gular íslenskar og Bláar íslenskar. Sigurgeir Ólafsson sérfræðingur á Matvælastofnun sigurgeir.olafsson@mast.is Kartöflurækt Síða úr bréfi Hastfers, ritað á Bessastöðum 19. september 1758, þar sem fram kemur að hann hafi reynt ræktun kartaflna. Jonas Alströmer

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.