Fréttablaðið - 20.01.2012, Side 4
20. janúar 2012 FÖSTUDAGUR4
Í frétt um beitartilraun Matvælastofn-
unar vegna díoxínmengunar í Skutuls-
firði í gær sagði að díoxín hefði
mælst 60% yfir aðgerðamörkum,
en það á að vera 60% af aðgerða-
mörkum. Ef mengunin hefði verið yfir
aðgerðamörkum, hefði MAST þurft að
bregðast við. Aðgerðamörk eru hins
vegar helmingi lægri en hámarksgildi,
þess vegna var niðurstaða tilraunar-
innar góð.
LEIÐRÉTT
SAMFÉLAGSMÁL Kynferðisbrotamál
gegn börnum sem fjallað hefur
verið um innan velferðar- og réttar-
gæslukerfisins eru tvöfalt fleiri nú
en á árunum 1995 til 1997 sam-
kvæmt niðurstöðum rannsóknar
Barnaverndarstofu.
Árin 1995 til 1997 voru 369 mál
sem vörðuðu kynferðisbrot gegn
börnum stödd einhvers staðar í
kerfinu. Árin 2006 til 2008 voru
þau 740 en það eru nýjustu tölur
sem hægt er að styðjast við. Að
mati Braga Guðbrandsson, forstjóra
Barnaverndar stofu, bendir allt til
þess að síðan hafi málafjöldi verið
svipaður.
„Nú erum við í rauninni miklu
betur stödd. Við höfum heildarsýn
yfir þetta, það er ein af ánægjuleg-
ustu breytingunum frá fyrra tíma-
bilinu til hins seinna,“ segir Bragi.
Á fyrra tímabilinu höfðu barna-
verndarnefndir aðeins vitneskju um
75 prósent þessara mála, önnur mál
voru til meðferðar hjá lögreglu eða
annars staðar án vitundar barna-
verndaryfirvalda.
„Nú hefur orðið sú breyting að
þessi 740 mál voru öll til meðferðar
í barnaverndarkerfinu. Það hefur
úrslitaþýðingu um að börnin fái
viðeigandi aðstoð og meðferð. Það
skiptir máli að barnaverndarkerfið
sé meðvitað um öll mál, og það er
búið að tryggja í dag.“
Á fyrra tímabilinu, 1995 til 1997,
voru 170 af 369 málum til rann-
sóknar hjá lögreglu. 146 mál fóru
áfram til ákæruvaldsins, sem gaf
út ákæru í 51 máli. Á seinna tíma-
bilinu, 2006 til 2008, komust 340
mál inn á borð lögreglu. Þar af fóru
315 til meðferðar ákæruvaldsins, og
ákærur voru gefnar út í 155 málum.
„Ákærurnar höfðu þrefaldast á
seinna tímabilinu, þrefalt fleiri
mál fóru í dómskerfið.“ Á fyrra
þriggja ára tímabilinu var sakfellt
í 49 málum en á seinna tímabilinu
voru sakfellingar 108.
„Ég held að við séum eina land-
ið í Evrópu þar sem er svona góð
heildar sýn yfir fjölda mála,“ segir
Bragi. Hann segir þó að tölurnar
veki að sumu leyti upp fleiri spurn-
ingar en þær svari. „Spurningin er
sú hvort samfélagsvitundin hafi
bara aukist, við séum orðin meðvit-
aðri og kerfið betur undir það búið
að glíma við þessi mál, eða hvort
um raunverulega aukningu þess-
ara mála er að ræða.“ Bragi seg-
ist telja að fyrst og fremst sé þetta
vegna kerfisbreytinga með til-
komu Barnahúss og þeirrar vinnu
sem þar á sér stað. „En ég held líka
að það megi færa rök fyrir því að
umfang þessara brota hafi raun-
verulega aukist líka. Í rauninni eiga
báðar skýringar við þó að sú fyrri
sé í mínum huga hugsanlega þýð-
ingarmeiri.“
Bragi mun halda erindi á ráð-
stefnu um meðferð kynferðisbrota
í HÍ í dag. thorunn@frettabladid.is
Ég held að við séum
eina landið í Evrópu
þar sem er svona góð
heildarsýn yfir fjölda mála.
BRAGI GUÐBRANDSSON
FORSTJÓRI BARNAVERNDARSTOFU
GENGIÐ 19.1.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
220,2
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
123,76 124,36
191,24 192,16
159,59 160,49
21,459 21,585
20,816 20,938
18,204 18,31
1,6123 1,6217
189,85 190,99
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson
orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Brynja Gunnarsdóttir brynjag@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-
5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
Kynferðisbrotamál í
kerfinu tvöfalt fleiri
Gríðarleg breyting hefur orðið á meðferð kynferðisbrota gegn börnum frá því
fyrir fimmtán árum. Tvöfalt fleiri mál koma til kasta kerfisins og þrefalt fleiri
mál rata til ákæruvaldsins. Bæði um vitundarvakningu og fleiri mál að ræða.
BROTUNUM FJÖLGAÐ Bragi telur að fyrst og fremst hafi kerfisbreyting orðið til þess
að fleiri mál koma til kasta barnaverndar nú en áður. Myndin tengist efni fréttarinnar
ekki beint. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
18°
6°
3°
3°
6°
5°
3°
3°
19°
10°
18°
4°
24°
-9°
10°
13°
-2°
Á MORGUN
5-10 m/s.
SUNNUDAGUR
Fremur stíf NA-átt NV-
til annars mun hægari.
-2
-2
-2
-1
-1
-1
4
1
-3
2
-6
7
8
6
3
2
2
6
5
15
5
7
00
0
-2
-1
-1
-2
-2
-3
-4
RÓLEG HELGI
Með kvöldinu
gengur smám sam-
an í norðanátt og
heldur stífa norðan
og norðvestan til.
Annars verður vind-
ur yfi rleitt hægur
um helgina með
éljum norðan til
á landinu en bjart
syðra. Hitinn víðast
um frostmark.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
SJÁVARÚTVEGUR Þegar hafa um
2.800 tonn af loðnu verið fryst í
uppsjávarfrystihúsi HB Granda á
Vopnafirði. Markaður fyrir þessa
afurð er í ýmsum Austur-Evrópu-
löndum og nú í vikunni var skip-
að út alls um 1.800 tonnum af
afurðum í erlent flutningaskip.
Loðnuafli skipa HB Granda frá
áramótum nemur alls um 13.800
tonnum. Þrjú skip hafa stund-
að veiðarnar fram að þessu en
nú hefur verið ákveðið að senda
Víking AK einnig til veiða.
- shá
HB Grandi á Vopnafirði:
Vel gengur að
frysta loðnu
REYKJAVÍK Oddný Sturludóttir, for-
maður skóla- og frístundaráðs
Reykjavíkurborgar, segir það mis-
skilning að hún hafi hafnað því að
funda um fyrirhugaðar breyting-
ar á skólahaldi með foreldum í
Hamraskóla.
Foreldrarnir eru margir hverjir
óánægðir með að flytja skuli ung-
lingastig Hamraskóla yfir í Folda-
skóla næsta haust.
Fullyrt var í fjölmiðlum í fyrra-
dag að Oddný hefði neitað boði frá
foreldrunum um að ræða málið á
fundi með þeim og fulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins í ráðinu, Kjartan
Magnússon, lét í
kjölfarið bóka á
fundi ráðsins að
slík vinnubrögð
væru fáheyrð.
Oddný segir
að foreldrarn-
ir hafi kynnt
opinn fund um
málið með þátt-
töku fulltrúa
borgarinnar án
nokkurs sam-
ráðs við hana eða aðra frá borginni
um tímasetningu eða annað. Slík-
ur opinn fundur hafi síðast verið
haldinn í Hamraskóla í desember.
„Í kjölfarið bauð ég þeim að
koma til fundar við mig og ræða
það sem þeim fannst ekki hafa
komist nógu skýrt til skila í des-
ember,“ segir Oddný.
Það sé fráleitt að hún vilji ekki
hafa samráð við foreldra eins og
Kjartan heldur fram í bókun sinni,
enda hafi hún kappkostað að eiga
sem mest samskipti við þá sem eiga
hlut að máli. Skoðanir um málið séu
afar skiptar í hverfinu og hún vilji
gera það sem hún geti til að leysa
málið í sátt við sem flesta. Sífellt
sé fundað um þessi mál. - sh
Fulltrúi Sjálfstæðisflokks segir fáheyrt að fundi með borgurum sé hafnað:
Oddný segir misskilning á ferð
KJARTAN
MAGNÚSSON
UTANRÍKISMÁL Össur Skarphéðins-
son utanríkisráðherra fundaði í
gær með Teodor Baconschi, utan-
ríkisráðherra Rúmeníu, í Búk-
arest, höfuðborg landsins. Þar að
auki hitti Össur Petru Filip, for-
seta rúmenska þingsins, og Leon-
ard Orban, Evrópumálaráðherra
landsins.
Á fundunum kynnti Össur
hugmyndir um að styrkir úr
Þróunar sjóði EFTA, sem Ísland á
aðild að, verði nýttir til að hefja
jarðhitaverkefni í Rúmenía.
Össur ræddi einnig aðildarum-
sókn Íslands að ESB og þá var
rætt um leiðir til að auka við-
skipti ríkjanna. Þetta er í fyrsta
sinn sem íslenskur utanríkisráð-
herra fer til Rúmeníu í opinbera
heimsókn. - mþl
Opinber heimsókn til Rúmeníu:
Hitti rúmenska
ráðherra í gær
BÚKAREST Í GÆR Össur ásamt Teodor
Baconschi, utanríkisráðherra Rúmeníu.
DÓMSMÁL Róbert Ragnar Spanó,
lagaprófessor og forseti laga-
deildar Háskóla Íslands, veitti
verjendum
Baldurs Guð-
laugssonar,
fyrrverandi
ráðuneytis-
stjóra, ráðgjöf
eftir að ákæra
var gefin út á
hendur honum
fyrir innherja-
svik.
Þetta upp-
lýsir Róbert í neðanmálsgrein í
nýrri bók sinni sem fjallar um
réttarregluna Ne bis in idem, sem
snýst um bann við endurtekinni
málsmeðferð sakamála.
Í bókinni fjallar Róbert meðal
annars um mál Baldurs, eins og
greint hefur verið frá í Frétta-
blaðinu. Þar kemst hann að þeirri
niðurstöðu að Fjármálaeftirlitinu
hafi að öllum líkindum ekki verið
heimilt að taka rannsókn málsins
upp aftur eftir að hafa tilkynnt
Baldri um niðurfellingu þess. - sh
Forseti lagadeildar HÍ:
Veitti verjanda
Baldurs ráðgjöf
RÓBERT SPANÓ
VINNUMARKAÐUR Fjarskiptafyrir-
tækið Vodafone sagði upp 28
starfsmönnum sínum í gær.
Í tilkynningu frá fyrirtækinu
segir að ástæðan sé hagræðing í
rekstri. Uppsagnirnar eigi ekki
að hafa áhrif á þjónustu Voda-
fone, en eftir þær eru starfsmenn
fyrirtækisins 390 talsins.
Starfsfólkið fær greidd laun út
uppsagnarfrest og heldur hlunn-
indum án þess að vinnuframlags
sé óskað á móti. Auk þess býðst
því, að kostnaðarlausu, ráðgjöf
og aðstoð við atvinnuleit.
Uppsagnir á fjarskiptamarkaði:
28 sagt upp hjá
Vodafone í gær