Morgunblaðið - 19.02.2014, Blaðsíða 10
Ljósmyndir/Aasa Charlotta Ingerardóttir
Listamaðurinn Jóhann Sigmarsson í París. Verkefnið teygir anga sína vítt
og breitt um heiminn, meðal annars til franska þorpsins Oradour-sur-Glane.
Malín Brand
malin@mbl.is
K
vikmyndagerðamað-
urinn og listamaðurinn
Jóhann Sigmarsson
eða Jonni Sigmars leið-
ir verkefnið sem geng-
ur alla jafna undir nafninu Mið-
baugsminjaverkefnið (e. The
Equator Memorial Project). Utan um
verkefnið hefur verið stofnað fyrir-
tækið 40.074 km ehf. og heldur lög-
fræðingurinn Gísli Gíslason utan um
það. Listamannateymið í Miðbaugs-
minjaverkefninu er skipað góðu fólki
sem hefur það að markmiði að gera
listaverk úr hlutum sem tengjast sög-
unni og hafa jafnvel mótað menningu
þjóða í gegnum tíðina.
„Þetta er alþjóðlegt farandverk-
efni listamanna sem snýst um að
vinna úr minjum, einhverju sem er
kannski orðið að rústum víðsvegar
um heiminn. Þetta er endurvinnsla og
vinnsla með söguleg menningar-
verðmæti,“ segir Jóhann sem hefur
getið sér gott orð fyrir kvikmyndir
sínar og listsköpun.
Ævafornt timbur notað
Athygli vakti þegar Jóhann tók
að smíða húsgögn úr meira en hundr-
að ára gömlum viðardrumbum haust-
ið 2012. Það atvikaðist þannig að
hann sá í fréttum að Faxaflóahafnir
sf. voru að fjarlægja ónýta bryggju-
drumba vegna breytinga á Reykja-
víkurhöfn. Þetta vakti upp þá spurn-
ingu í huga Jóhanns hvort timbrið
væri í raun og veru ónýtt þó að það
væri gamalt. „Það datt engum í hug í
rauninni að fara að endurvinna úr
þessum við. Það átti bara að fleygja
þessu,“ segir hann. „Þetta var að
Berlínarmúrnum
gefið framhaldslíf
Nokkrir íslenskir og erlendir listamenn hafa sameinast í æði mögnuðu verkefni
sem felst í að endurnýta sögulegar menjar og gera úr þeim listaverk. Úr fornminj-
unum búa listamennirnir til listaverk sem síðar verða boðin upp. Efniviðurinn
nær allt frá síðustu brotunum úr Berlínarmúrnum og hinni fornu Hamborg-
arhöfn til leifanna af Tvíburaturnunum og ef verða vill hluta frá Hiroshima.
Hamborgarhöfn Einstakt er að fá að vinna með við úr höfninni sem verður
einmitt 825 ára á þessu ári. Hópurinn fékk úr henni þrjár viðartegundir.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 2014
Fyrstu tónleikar vortónleikaraðar
Jazzklúbbsins Múlans verða haldnir í
kvöld kl. 21 en þetta verða fyrstu tón-
leikar Múlans á Björtuloftum í Hörpu.
Alls verða 11 tónleikar í tónleikaröð-
inni, allir í sal Björtulofta í Hörpu.
Á tónleikunum í kvöld kemur fram
hljómsveitin Múla sextettinn sem
skipuð er Birki Frey Matthíassyni á
trompet, saxófónleikurunum Hauki
Gröndal og Ólafi Jónssyni, píanóleik-
aranum Eyþóri Gunnarssyni, Þor-
grími Jónssyni á bassa og trommu-
leikaranum Scott McLemore.
Sextettinn mun leika tónlist Art Bla-
keys og djass sendiboða hans.
Múlinn er að hefja sitt átjánda
starfsár en hann er samstarfsverk-
efni Félags íslenskra hljómlistar-
manna (FÍH) og Jazzvakningar.
Klúbburinn heitir í höfuðið á Jóni
Múla Árnasyni sem jafnframt var
heiðursfélagi og verndari Múlans.
Vefsíðan Facebook - Múlinn jazzklúbbur
Trommari Scott McLemore ætlar að berja húðir á tónleikunum í kvöld.
Múla sextettinn spilar í kvöld
Á heimspekikaffi Gerðubergs í kvöld
kl. 20 ætlar Gunnar Hersveinn, rit-
höfundur og heimspekingur, að fjalla
um hæglæti og biðlund sem lífsspeki
og Ásgerður Einarsdóttir, ferðamála-
fræðingur og leiðsögumaður, fjallar
um hæglæti sem lífsstíl í daglegu lífi
og ferðalögum. Hæglæti hjálpar fólki
til að finna rétta taktinn í lífinu.
Tæknin gerir fólki fært að skjótast á
milli staða, eiga hindrunarlaus sam-
skipti milli heimsálfa óháð stað og
stund. En það sem oft skortir er hæg-
læti, biðlund og virðing fyrir náttúr-
unni. Hæglæti og gæði eru gott mót-
vægi við hraða og magn nútímans.
Endilega …
… fræðist um
hæglætið
Ásgerður Fjallar um hæglæti í kvöld.
Fyrr í þessum mánuði fékk leikskól-
inn á Laugalandi í Holtum ART-vottun
en hann er fyrsti leikskóli landsins
sem fær slíka vottun. ART er vel af-
mörkuð og árangursrík aðferð sem
byggist á félagsfærni, sjálfstjórn og
siðferði og miðar að því að draga úr
erfiðri hegðun hjá börnum og ungu
fólki, t.d. þeim sem greinst hafa með
ýmiss konar þroskaraskanir, ofvirkni
og alvarlegar atferlistruflanir. Sjálf-
stjórn, félagsfærni og siðferðisvitund
eru öllum börnum mikilvæg til að
geta átt góð samskipti og eignast
vini. Í sjálfstjórnun læra nemendur
t.d að bregðast við árekstrum með
því að þekkja hvað kveikir reiði
þeirra, hvað gerist innra með þeim
þegar þau reiðast, hvernig þau eru
vön að bregðast við og hvaða afleið-
ingar það hefur. Þeim er kennt að
rjúfa ferlið með ýmsum aðferðum og
innleiða nýjar samskiptaleiðir og efla
þannig félagslega færni. Leikskólinn
á Laugalandi hefur unnið með ART
frá því haustið 2008 og mikið og gott
samstarf er milli leikskólans og
heimila barnanna.
Leikskólinn á Laugalandi fær ART-vottun
Dregur úr erfiðri hegðun og þau
læra að bregðast við árekstrum
Hátíðisdagur Mikið var um dýrðir daginn sem vottunin fékkst.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
-VOTTUÐ FRAMLEIÐSLA
Smiðjuvegi 7 - 200 Kópavogi - Sími: 54 54 300 www.ispan.is - ispan@ispan.is
Opið alla virka daga
08:00-17:00
Sendum um allt land
Hafið samband
við sölumenn okkar
ÍSPAN,
SMIÐJUVEGUR 7,
S. 54-54-300
Ispan.is
HLJÓÐ-
VARNARGLER
Er hávaðinn
að trufla?
The picture is used with permission from Saint-Gobain.