Morgunblaðið - 19.02.2014, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 19.02.2014, Blaðsíða 23
23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 2014 Á göngu Þessir tveir kumpánar nutu þess að viðra sig í sólríku en köldu veðri á Seltjarnarnesi á dögunum. Ómar „Héraðsdómur sogar til sín alla orku og gefur ekkert jákvætt eða gleðilegt frá sér.“ Sá sem mælti þessi orð er Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs. Sum- ir geta leyft sér að tala til annarra af lítilsvirðingu. Við Héraðsdóm Reykjavíkur starfar vandað og vel menntað fólk sem gegnir störfum sínum af sam- viskusemi og kostgæfni. Að- allega eru það lögfræðingar sem eru dómarar og aðstoð- armenn dómara en einnig íslenskufólk; prófarkales- arar og málfarsráðunautar. Ekki má gleyma því að þar vinna einnig lögmenn löngum stundum þó að þeir séu með skrifstofur annars staðar. Þá koma sérfræð- ingar af ýmsum sviðum að rekstri dómsmála sem sér- fróðir meðdómendur og dómkvaddir matsmenn. Það geta til dæmis verið verkfræðingar, byggingafræð- ingar, sálfræðingar, endurskoðendur, hagfræðingar og læknar. Lítið þó af stjórnmálalæknum. Allt þetta fólk á daglega í jákvæðum samskiptum um vinnu sína þó að tekist sé á um efni dómsmálanna. Á fáum stöðum er gætt jafn vel að jákvæðum atriðum eins og stundvísi, vönduðu íslensku máli, jafnræði og kurteisi í fram- komu. Í Héraðsdómi Reykjavíkur er mikið líf og stöð- ugt streymi lögmanna og umbjóðenda þeirra inn og út úr byggingunni sem hittast, heilsast og taka hver ann- an tali. Fáir slíkir vinnustaðir eru orðnir eftir í mið- borginni. Við Héraðsdóm Reykjavíkur er tekist á um sakamál og einkamál. Það er gert á vandaðan, skipulegan og lögformlegan hátt. Þar verður endir margrar þrætu, annar tapar en hinn gengur glaður út á torg. Gjarnan nást sættir svo báðir mega sæmilega við una. Það hlut- verk dómarans er afar gleðilegt. Með sama hroka og formaður borgarráðs leyfir sér ætti væntanlega að losa sig við Landspítalann því þar eru allir veikir eða farlama. Og líklega ætti að flytja kirkjugarðinn á Suðurgötu burt því þar er ekkert líf. Héraðsdómur Reykjavíkur á heima í hjarta borg- arinnar eins og aðrar mikilvægar stjórnarstofnanir. Stjórnendur borgarinnar eiga ekki að tala niður til slíkrar stofnunar. Eftir Magnús Óskarsson Höfundur er lögmaður hjá Lögmáli ehf. Héraðsdóm- ur í hjarta borgarinnar » Við Hér- aðsdóm Reykjavíkur er tekist á um sakamál og einkamál. Magnús Óskarsson Alþingi kemst ekki hjá því að gera róttæk- ar breytingar á lögum um Seðlabanka Ís- lands. Reynslan síð- ustu ár er með þeim hætti að við óbreytt ástand verður ekki un- að, ekki ef ætlunin er að ná árangri í upp- byggingu efnahagslífs- ins. Þó að ekki væri nema af þessum ástæðum er það rétt og lögum samkvæmt að auglýsa stöðu seðlabankastjóra, en fimm ára skipunartími Más Guðmundssonar rennur út 20. ágúst næstkomandi. Allt frá því að lögum um Seðla- bankann var breytt í febrúar 2009 hefur bankinn sætt gagnrýni, ekki aðeins frá stjórnmálamönnum heldur ekki síður frá sérfræðingum og fjöl- miðlum. Upplýsingaöflun bankans hefur verið sögð brothætt og gölluð. Sala eigna hefur vakið upp alvarlegar spurningar, framkvæmd hafta falið í sér óþolandi mismunun og hávaxta- stefnan hefur verið harðlega gagn- rýnd. Þáttur Seðlabankans í Icesave- deilunni er svo sérstakur kafli. Höft og sala eigna Í ársbyrjun 2011 seldi Seðlabank- inn meirihluta í Sjóvá en Eignasafn Seðlabanka Íslands ehf. (ESÍ) hélt um 73% hlut í trygg- ingafélaginu. ESÍ eign- aðist hlutabréfin eftir nokkrar fjármálalegar fléttur en trygginga- félagið sigldi í strand. Bæði fyrir og eftir söl- una kom fram hörð gagnrýni á vinnubrögð Seðlabankans við söl- una. Þá greip bankinn til talnaleikja þar sem gefið var í skyn að tap bankans væri minna en það var í raun. Framkvæmd fjármagnshafta hef- ur verið harðlega gagnrýnd. Inn- lendir fjárfestar sitja ekki við sama borð og erlendir eða íslenskir fjár- festar sem eiga erlent fé. Þeir síð- arnefndu fá 20% forskot. Eftirlit með höftunum hefur vakið upp efasemdir um að jafnræðis sé gætt og kærum Seðlabankans vegna meintra brota hefur verið vísað frá. En ein- staklingar og fyrirtæki eru varn- arlaus og eiga erfitt með að standa á rétti sínum og fá upplýsingar um hvað þeim er gefið að sök. Peningastefna Seðlabankans sætir einnig stöðugt meiri gagnrýni enda eiga margir erfitt með að skilja há- vaxtastefnu bankans með krónu í höftum og litla fjárfestingu. Alvarlegar skekkjur En hörðust hefur gagnrýnin á Seðlabankann verið vegna þess hlut- verks sem forráðamenn bankans ákváðu að leika í Icesave-deilunni. Þá fór hnífurinn vart á milli bankans og vinstriríkisstjórnarinnar í viðleitninni við að koma Icesave-skuldum Lands- bankans yfir að herðar íslensks al- mennings. Alvarlegar skekkjur í mati Seðla- bankans á erlendri stöðu þjóðarbús- ins nýttust til að færa rök fyrir því að ríkissjóður réði ágætlega við að greiða Icesave-kröfuna án þess að fjármálalegum stöðugleika væri stefnt í hættu. Sérfræðingar utan bankans vöruðu við og bentu á að vandinn væri stórlega vanmetinn. Í áróðursstríðinu fyrir því að sam- þykkja ólögvarða kröfu var Seðla- bankinn í fararbroddi. Í álitsgerð sem bankinn sendi frá sér rúmlega mán- uði eftir að Svavars-samningurinn var undirritaður sagði meðal annars: „Ef áhersla verður lögð á hagvöxt þurfa efnahagsleg áföll að dynja yfir til að Icesave-skuldbindingar einar og sér leiði til þess að ríkissjóður geti ekki staðið við erlendar skuldbind- ingar sínar.“ Samkvæmt mati Seðla- bankans var ríkissjóður að taka á sig 340 milljarða króna skuldbindingu vegna Svavars-samningsins. Sem betur fer Seðlabankastjóri hélt áfram að berjast fyrir Icesave og á ársfundi bankans í apríl 2011 sagði Már Guð- mundsson: „Verði niðurstaðan já munu haftaaf- nám og lántökur ríkissjóðs ganga fram eins og áformað er. Ef Icesave- samningunum verður hafnað eru hins vegar vísbendingar um að stóru bandarísku matsfyrirtækin tvö ákveði að setja lánshæfismat ríkissjóðs niður í spákaupmennskuflokk. Þá verður þyngra fyrir fæti varðandi erlenda lántöku ríkissjóðs og framgangur áætlunar um afnám gjaldeyrishafta myndi af þeim sökum ganga hægar. Óvissa er hins vegar um hversu sterk og langvinn þessi áhrif yrðu.“ Almenningur féll ekki fyrir rök- semdunum ríkisstjórnarinnar eða Seðlabankans og neitaði í tvígang að axla skuldir einkafyrirtækis. Sem betur fer og 28. janúar á liðnu ári hafnaði EFTA-dómstóllinn öllum kröfum í Icesave-málinu. Í lok apríl gaf Seðlabankinn síðan út skýrslu um fjármálastöðugleika en í formáls- orðum sagði Már Guðmundsson: „Í sem stystu máli felst vandinn í því að miðað við óbreytt gengi nægir fyrirsjáanlegur undirliggjandi við- skiptaafgangur næstu ára ekki til að fjármagna samningsbundnar afborg- anir erlendra lána. Því mun íslenska þjóðarbúið ekki skapa nægan gjald- eyri að óbreyttu gengi krónunnar til að losa út krónueignir búa gömlu bankanna til erlendra kröfuhafa og það jafnvel þótt þær yrðu verðlagðar mjög lágt í erlendum gjaldmiðlum.“ Sem sagt: Í nær fjögur ár hafði Seðlabankinn haldið því fram að fjármálalegum stöð- ugleika Íslands væri ekki stefnt í hættu með Icesave-samningunum, ríkissjóður réði við byrðarnar en eftir dóminn kom bankinn fram og varaði við því að íslenskt þjóðarbú geti ekki að óbreyttu staðið undir skuldbind- ingum sínum! Þegar sagan allt frá 2009 er höfð í huga er vandséð hvernig stjórnvöld komast hjá því að auglýsa stöðu seðlabankastjóra og stokka síðan upp spilin með nýjum lögum, þar sem m.a. er litið til sameiningar Seðla- bankans og Fjármálaeftirlitsins. Eftir Óla Björn Kárason »En hörðust hefur gagnrýnin á Seðla- bankann verið vegna þess hlutverks sem for- ráðamenn bankans ákváðu að leika í Ice- save-deilunni. Óli Björn Kárason Höfundur er varaþingmaður Sjálf- stæðisflokksins. Uppstokkun í Seðlabankanum er nauðsynleg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.