Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.2002, Blaðsíða 44

Læknablaðið - 15.11.2002, Blaðsíða 44
UMRÆÐA & FRÉTTIR / A F SJÓNARHÓLI STJÓRNAR LÍ Hagdeild lækna Birna Jónsdóttir Höfundur á sæti í stjóm Læknafélags íslands. Sjónarmið þau er fram koma í pistlunum Afsjónarhóli stjórnar eru höfundar hverju sinni og ber ekki að taka sem samþykktir stjórnar LÍ. Nýafstaðinn aðalfundur Læknafélags íslands (LI) er efst í huga mínum þessa stundina. Fundurinn var gagnmerkur þar sem á honum samþykktu gal- vaskir aðalfundarfulltrúar breytingar á lögum félagsins sem líklega eru þær róttækustu í 50 ár. Læknar eiga nú möguleika á að skipa sér niður á öðr- um forsendum en landfræðilegri dreifingu. Það er athyglisvert að skoða hvernig læknar skip- ast í aðildarfélög eftir búsetu. Við erum heldur hlut- fallslega fleiri á höfuðborgarsvæðinu en aðrir lands- menn sem skýrist eðlilega af Landspítalanum. Aðild- arfélög LÍ fá hvert um sig 10% af félagsgjöldum með- lima sinna en þeir sem höfðu einstaklingsaðild að LÍ greiddu allt félagsgjaldið þangað. Arið 2001 voru stærstu aðildarfélögin: Læknafélag Reykjavíkur (LR) sem fékk 73% af endurgreiðslunni, Félag ungra lækna (FUL) 10%, og þriðja stærst er Akureyrarfé- lagið með rúm 6% af endurgreiðslu. Aðalástæða fyrir breytingum á uppbyggingu LÍ er sú að tilteknir hópar lækna, til dæmis skurðlæknar, vilja eiga möguleika á að gera eigin kjarasamning. LÍ hefur verið stéttarfélag og hefur gert samning við ríkið. Ekki er vilji þeirra sem berjast við að ná sjálf- stæðum samningsrétti að kljúfa LI og því var þessi leið valin að skilgreina aðildarfélög öðruvísi en gert hefur verið. Tilteknir hópar lækna hafa trú á að þeir sjálfir í smærri einingum séu líklegri til að ná kjarasamningi sem fellur að sérkröfum hópsins. Af eigin reynslu úr samningagerð við ríkið sem sjálfstætt starfandi sér- fræðingur veit ég að samninganefnd Tryggingastofn- unar ríkisins áður fyrr og Heilbrigðisráðuneytis nú skirrist ekki við að semja við litla hópa lækna. Einn aðalfundarfulltrúi nefndi þörf á sameigin- legu baklandi lækna í samningagerð. Framkvæmda- stjóri LI, sem lengi hefur verið löglærður maður, hefur verið samningamönnum lækna innan handar. Þegar við blasir að æ fleiri hópar lækna semja sjálfir má kannski hugsa sér að heildarsamtök lækna, LÍ, kæmu sér upp sinni eigin hagdeild. Áætlanagerð og kostnaðargreining í heilbrigðisþjónustu er umfangs- mikil vinna sem krefst sérhæfðrar kunnáttu ef vel á að vera. Án þess að ég þekki að gagni til í dag hjá samn- inganefnd LR sem semur fyrir sérfræðilækna við Heil- brigðisráðuneytið um sérfræðilæknaþjónustu utan sjúkrahúsa trúi ég að mikið af gagnlegum upplýsing- um sé þar að finna og kannski má byggja á langri reynslu þeirrar nefndar vísi að hagdeild. Reyndar má búast við því að LR verði það félag sem mest „veik- ist“ fjárhagslega við uppstokkun lækna í aðildarfélög og því eðlilegt að LÍ haldi uppi hagdeild sem þjónust- ar aila lækna. Skoðun formanns Samfylkingarinnar sem útvarp- að var á dögunum varð einnig til þess að ég óskaði okkur hagdeildar. Stjórnmálamaðurinn hljómaði í mín eyru einhvern veginn svona, ég er þó ekki viss um að hafa þetta orðrétt eftir: „ Við vitum öll hvað það þýðir aðfœra sérfrœði- lœknisþjónustu á einkastofur lœkna úti í bœ: meiri álögur á sjúklinga og meiri peninga í vasa sérfrœðinganna. “ Svei mér þá ef mér fannst mér ekki líða eins og einhverjum Össuri í augnablik, ég snöggreiddist svei mér þá. Eg hélt að álögur á sjúklinga hefðu aukist vegna minnkandi kostnaðarþátttöku ríkisins. Og ég fullyrði að mörg dæmi eru um að einstök læknisþjón- usta er krónulega ódýrari í dag en hún var fyrir nokkr- um árum vegna þess að verkið fluttist á stofu sérfræð- ings úti í bæ. Þar sem heilbrigðisráðuneytið, sem er jú framkvæmdavald ríkisins, ákvað að sjúklingsgjald skyldi vera hlutfallsgjald af heildarkostnaði Iæknis- verks en ekki fastagjald eins og verið hafði má neyt- andinn þakka sínum sæla að sérfræðilæknisþjónusta er ekki rekin af ríkinu meir en gert er. Annar stjórnmálamaður sagði í útvarpinu um daginn að núverandi stjórnarflokkar væru greinilega uppgefnir á rekstri heilbrigðiskerfisins og tími kom- inn til að skipta um valdhafa. Eg held að við ættum frekar að skoða aðra rekstraraðila en ríkið, það trúi ég væri ekki síðri kostur en að skipta um stjórnmála- flokk í heilbrigðisráðuneytinu. Því virkari þátttakendur sem við læknar erum í ákvörðun sjúklingagjalds, því frekar er nauðsynlegt að við höfum virka hagdeild. Sem sjálfstætt starfandi sérfræðingum í fámennum hópi lækna sem er innan við tíu manns, en sér sjálfur um samningsgerð við TR um kaup á þjónustu, fyndist mér tíund minni af fé- lagsgjaldi ekki illa varið í uppbyggingu hagdeildar og þangað ætti að vera hægt að sækja verðmætar upplýs- ingar bæði við samningsgerð og til þess að leiðrétta einatt vafasamar og jafnvel rangar fullyrðingar sem kjósendum er boðið upp á. 836 Læknablaðið 2002/88
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.