Læknablaðið - 15.11.2002, Blaðsíða 77
RAÐSTEFNUR
Ellefta ráðstefnan um rannsóknir í
læknadeild, tannlæknadeild og
lyfjafræðideild Háskóla íslands
3. og 4. janúar 2003
Skilafrestur ágripa 7. nóvember
Umsjón með ráðstefnunni hefur Vísindanefnd.
Staðsetning: Ráðstefnan fer fram í Læknagarði, Vatnsmýrarvegi 16.
Þátttakendur: Þátttaka í dagskrá ráðstefnunnar miðast fyrst og fremst vió kennara og starfsmenn deildanna en
kennarar og starfsmenn annarra deilda Háskóla íslands eru jafnframt velkomnir. Enn fremur er gert ráð fyrir þátt-
töku starfsmanna stofnana sem tengjast deildunum, kennslusjúkrahúsum landsins og öðrum kennslustofnunum
deildanna. Aðilum sem vinna að rannsóknum í samvinnu við starfsmenn læknadeildar, lyfjafræðideildar og tann-
læknadeildar er einnig boðin þátttaka.
Þátttökugjaid: Kr. 3500 almennt gjald, kr. 1500 fyrir háskólanema. Ekki verður tekið við greiðslu með kortum.
Greiði stofnun/deild þátttökugjald/-gjöld fylgi skrifleg beiðni til framkvæmdastjóra ráðstefnunnar.
Erindi og veggspjöld: Gert er ráð fyrir frjálsum erindaflutningi (10 mínútur hvert erindi, með fyrirspurnum, skipt-
ist þannig: sjö mínútur í kynningu og þrjár í umræðu) og spjaldasýningu (stærð veggspjalda 90x120 cm). Vegg-
spjöld verða til sýnis einn dag. Höfundar komi með veggspjöld tilbúin til uppsetningar.
Ágrip: Ágrip erinda og veggspjalda verða gefin út í Fylgiriti Læknablaðsins sem mun koma út fyrir ráðstefnuna.
• Hámarkslengd ágripa miðast við 1800 letureiningar (characters with spaces), talið án nafna höfunda og
stofnana.
• Ágrip skulu skrifuð á íslensku.
• Eftirtalin atriði komi fram í ágripi í þeirri röð sem hér er getið: titill, nöfn höfunda, nafn flytjanda feitletrað,
vinnustaðir með tilvísun til höfunda, inngangur, efniviður og aðferðir, helstu niðurstöður og ályktanir.
Semja þarf sérstaklega um birtingu á töflum og myndum.
• Eftirtaldir efnisflokkar standa til boða: augnlæknisfræði, barnalæknisfræði, faraldsfræði, hjarta- og æða-
sjúkdómafræði, krabbameinslæknisfræði, handlæknisfræði, lífeðlisfræði, lífefnafræði og erfðafræði,
lyfjafræði, lyflæknisfræði, ónæmisfræði, sýkla- og smitsjúkdómafræði, tannlæknisfræði, taugalæknis-
fræði, sjúkraþjálfun og ýmislegt. Efnisflokkarnir eru miðaðir við reynslu undanfarinna ára, en möguleiki er
að bæta við flokkum ef mörg skyld verkefni lenda í flokknum ýmislegt.
• Höfundar taki fram hvort þeir óska eftir að flytja erindi eða sýna veggspjald.
Vísindanefndin áskilur sér rétt til að hafna innsendum ágripum sem ekki uppfylla ofangreind skilyrði og eins að
meta hvort ágrip verði kynnt með erindi eða veggspjaldi.
Skilafrestur fyrir ágrip erinda og veggspjalda er 7. nóvember, kl. 17.00. Ágrip skulu send í tölvupósti sem
viðhengi til framkvæmdastjóra ráðstefnunnar, sjá netfang að neðan.
Tæknibúnaður: Boðið verður upp á tölvuskjávarpa (windows stýrikerfi) og skyggnuvél við flutning erinda.
Höfundar taki fram hvaóa útbúnað þeir óska að nota við flutning erindis og hvort þeir hafi útbúnað meðferðis, svo
sem fistölvu.
Skráning: Framkvæmdastjóri ráðstefnunnar tekur við skráningu, þátttakendur er hvattir til að skrá sig tíman-
lega.
Framkvæmdastjóri ráðstefnunnar er Birna Þórðardóttir, símar: 862 8031 / 552 1570 / 552 9075 (h); netfang:
birna@birna.is
Vísindanefnd læknadeildar, tannlæknadeildar og lyfjafræðideildar
Elín Soffía Ólafsdóttir Sigfús Þór Elíasson
Gísli Sigurðsson Svandís Sigurðardóttir
Jórunn Erla Eyfjörð Þór Eysteinsson
Læknablaðið 2002/88 869