Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1986, Blaðsíða 22

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1986, Blaðsíða 22
Tímarit Mdls og menningar stundum að væri eitt og hið sama. En í þessari merkingu var orðið ekki langlíft: rannsókn á bóka- og greinatitlum bendir til þess að það sé að mestu úrelt í sálfræði nú. Orðið Mentalité kom ekki aftur fram á sjónarsviðið í vísindamáli fyrr en með hugarfarssögunni frönsku og telur Le Goff að hliðstæð notkun orðana mentality, Mentalitat, mentalidad o. þ. h. í Evrópumálum sé til komin fyrir frönsk áhrif. En neikvæður blær franska orösins mentalité virðist ennþá setja mark sitt á þá grein sagnfræðinnar sem við það er kennd og stuðla jafnvel að því að móta viðhorf manna til hennar og þá stefnu sem hún hefur tekið. Le Goff bendir á, að þeir sem fást við hugarfarssögu hneigist talsvert til að velja sér viðfangsefni meðal þeirra fyrirbæra fortíðarinnar, sem nú eru talin „órökrétt" eða flokkuð undir „hjátrú“ (t. d. viðhorf til kraftaverka, bið eftir heimsendi o. þ. h.) eða eru í eðli sínu neikvæð og bjóða heim órök- réttum viðhorfum (hræðsla, dauði). Þeir fjalli einnig gjarnan um þjóðfélags- hópa í mótun, t. d. kaupmenn á lénstímabilinu. Við þessi dæmi Le Goffs má svo bæta, að þessi ákveðni blær orðsins í frönsku hefur tvímælalaust einnig kynt undir þá kenningu Labrousse, sem áður var nefnd, að í þróun sögunnar sé hugarfarið á eftir öðrum hliðum þjóðfélagsins, og stuðlað að því að efla þetta afbrigði „þróunarkenningarinnar“. Tískuorðið „hugarfar" er því ekki aðeins „merkimiði" á vissri grein sagnfræðinnar heldur hefur saga þess í málinu og blæbrigði haft áhrif á greinina sjálfa. En það er ekki allt og sumt: eins og er um mörg tískuorð reynist merking þess harla óljós og loðin, þegar á að skilgreina hana nánar, og því ákaflega erfitt að sjá að fyrra bragði hvert er raunverulegt viðfangs- efni þeirrar sagnfræðigreinar, sem við slík fyrirbæri á að fást. Auðvelt er að gefa viðunandi skilgreiningu á því hvað er „hugmynd" eða „heimsskoðun“ og er þá jafnframt ljóst hvernig fjalla megi um þau atriði í tímans rás. Hugmyndir og heimsskoðanir eru settar fram í rituðu máli, myndum o. þ. h. og hafa áhrif og vekja viðbrögð, og að öllu þessu getur sagnfræðing- urinn gengið, hann getur afmarkað þessi fyrirbæri, lýst þeim, rannsakað innbyrðis tengsl, þróun og slíkt. En hvað er hugarfar? Orðið virðist þýða það sem er „huglægt“, þau sérkenni, sem „hugur“ einhvers manns eða einhverra manna hefur, og er allt slíkt svo almennt að naumast er hægt að skilgreina það nánar og afmarka, þannig að einhver fræðigrein geti tekið það til meðferðar. En af þessu leiðir tvennt, sem torveldar málið ennþá meir: annars vegar virðist hugarfar vera það sem er innra með hverjum manni og aðrir geta aldrei kynnst með neinni vissu, síst þeir sem eru uppi löngu síðar — „hugur einn það veit“ — og hins vegar virðist það vera svo persónubund- ið að ekki sé unnt að tala um annað en hugarfar einhvers ákveðins einstaklings. Bæði þessi atriði gera það að verkum að hugarfar í slíkri 420
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.